Innherji

Barcla­ys telur Al­vot­ech hafa fært sterk rök gegn kröfu Jans­sen um lög­bann

Hörður Ægisson skrifar
Lisa Graver, forstjóri Alvotech. Hlutabréfaverð félagsins hefur hækkað um tvö prósent á markaði í Bandaríkjunum í dag.
Lisa Graver, forstjóri Alvotech. Hlutabréfaverð félagsins hefur hækkað um tvö prósent á markaði í Bandaríkjunum í dag.

Alþjóðlegi fjárfestingabankinn Barclays telur að Alvotech hafi fært sterk rök gegn kröfu lyfjafyrirtækisins Janssen um tímabundið lögbann sem gæti komið í veg fyrir markaðssetningu hliðstæðulyfs félagsins við Simponi í Bandaríkjunum. Greinendur bankans fylgdust með málflutningi í síðustu viku og segja að niðurstaðann þar hafi aukið bjartsýni þeirra á stöðu Alvotech í einkaleyfisdeilunni.


Tengdar fréttir

Leiðin greiðari hjá Al­vot­ech að samþykki frá FDA fyrir nýjum hliðstæðu­lyfjum

Alvotech ætti nú að eiga greiðari leið að því að fá samþykki FDA fyrir markaðsleyfi á mikilvægum nýjum lyfjum á fjórða ársfjórðungi eftir að eftirlitið veitti félaginu viðbótarleyfi fyrir framleiðslu á hliðstæðu við Humira í verksmiðjunni í Reykjavík. Samþykkið er enn ein staðfestingin á því að fyrri athugasemdir FDA við framleiðsluaðstöðuna, sem komu í veg fyrir markaðsleyfi nokkurra lyfja í fyrra, hafi verið leystar.

Telja vand­ræði keppi­nautar styrkja stöðu Al­vot­ech á markaði með Simponi

Stjórnendur Alvotech telja félagið vel í stakk búið til að nýta sér þá stöðu sem komin er upp á markaði fyrir hliðstæður við gigtarlyfið Simponi í kjölfar vandræða kínverska keppinautarins Bio-Thera. Markaðshlutdeild hliðstæðulyfs Alvotech við Simponi er þegar komin yfir 15 prósent í Evrópu og félagið hefur byggt upp nægar birgðir til að mæta aukinni eftirspurn út árið og inn í 2027.

Sér fram á að hröð skuldalækkun geti tvöfaldað virði Al­vot­ech

Bandaríski fjárfestingabankinn Evercore telur Alvotech talsvert undirverðlagt á markaði og að hlutabréfaverðið geti hækkað skarpt með auknum rekstrarhagnaði og minnkandi skuldsetningu. Samkvæmt nýrri greiningu, sem er sögð byggja á varfærnum forsendum, þá er samt gert ráð fyrir að markaðssetning sumra mikilvægustu hliðstæðna Alvotech muni tefjast vegna deilna um einkaleyfi og að hámarkstekjur verði verulega undir þeim áætlunum sem stjórnendur hafa áður rætt um.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×