Forsendur kjarasamninga eru brostnar vegna verðbólgu

Verðbólga hefur ekki verið meiri í tvö ár og forsendur kjarasamninga eru brostnar. Í stöðugleikasamningnum sem skrifað var undir fyrir tveimur árum var komist að samkomulagi um forsenduákvæði sem felur í sér að hægt yrði að segja honum upp ef verðbólga mældist nú yfir 4,7 prósentum. Verðbólga mælist 5,6 prósent í ágúst samkvæmt Hagstofunni og jókst á milli mánaða. Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og Halla Gunnarsdóttir formaður VR, mættu í myndver og fóru yfir stöðuna.

1
06:42

Vinsælt í flokknum Fréttir