Að minnsta kosti 389 látnir
Að minnsta kosti 389 eru látnir og meira en níu hundruð er saknað eftir hamfaraflóð í Nepal og Tíbet í gær. Umfangsmiklar björgunaraðgerðir standa yfir og um sex hundruð er sagt hafa verið komið til bjargar. Í hópi þeirra sem er saknað eru hátt í þrjú hundruð ferðamenn, meðal annars frá Bretlandi, Bandaríkjunum og Indlandi. Jökulhlaup, eða hrun úr jökli er sagt hafa komið flóðinu af stað og varað er við hættu á frekari flóðum þar sem aurstíflur í ám gætu brostið.