Haraldi lýst sem sameiningartákni

Norðmenn flykkjast að konungshöllinni í Osló og leggja niður blóm, kort og kerti til stuðnings Haraldi Noregskonungi sem liggur þungt haldinn á spítala. Hann glímir við blóðsjúkdóm og hefur verið á spítala frá 17. ágúst en norska hirðin greindi frá því í morgun að heilsu hans hafi hrakað hratt og að ástandið væri mjög alvarlegt. Hákon krónprins og konungsfjölskyldan eru hjá honum á spítalanum og haft hefur verið eftir yfirlækni að Norðmenn ættu að búa sig undir það versta.

4
00:50

Vinsælt í flokknum Fréttir