Alfreð skoraði í 2-1 sigri Augsburg á Hannover
Alfreð Finnbogason skoraði í 2-1 sigri Augsburg á Hannover á útivelli í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Augsburg er í 8. sæti með 12 stig. Dortmund gerði 2-2 jafntefli í dag og er tveimur stigum á undan Bayern Munchen sem vann Herthu Berlín. Borussia Mönchengladbach er í þriðja sæti.