Borgríki - sýnishorn 3
Ný stikla fyrir spennumyndina Borgríki en íslenskir kvikmyndahúsagestir hafa tekið myndinni opnum örmum. Borgríki var frumsýnd fyrir tveimur vikum síðan og hefur haldið góðri aðsókn frá frumsýningu. Nú í vikunni rauf hún tíu þúsund gesta múrinn og ekkert lát virðist á aðsókninni.
Aðstandendur Borgríkis eru vitanlega í skýjunum með þessar góðu viðtökur kvikmyndahúsagesta og gagnrýnenda.