

Fréttir af málum sem rata fyrir dómstóla.
Lögreglumaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir líkamsárás og brot í opinberu starfi vegna atviks sem átti sér stað í miðbæ Reykjavíkur í lok maí á þessu ári.
Gríðarlega athygli vakti í gær þegar Árni Oddur Þórðarson, sem lengi hefur verið einn farsælasti viðskiptamaður landsins, tilkynnti að hann hafði fengið heimild til greiðslustöðvunar. Greiðslustöðvun er alls ekki algengt fyrirbæri og því vaknar spurningin: Hvað er greiðslustöðvun?
Karlmaður var í síðustu viku sakfelldur fyrir líkamsárás í Héraðsdómi Vesturlands. Honum var þó ekki gerð refsing, en sjálfur hafði hann haldið því fram að hann hafi framið árásina til að verja vinkonu sína. Þá viðurkenndi brotaþolinn að hann hafi átt árásina skilið.
Karlmaður á fimmtugsaldri sem bar vitni í umfangsmiklu fíkniefnamáli árið 2019, sem varðaði meðal annars framleiðslu á amfetamíni, og tók á sig alla sök, hefur verið ákærður fyrir að bera ljúgvitni.
Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps sem átti sér stað innandyra í húsnæði í Skeifunni á nýársnótt 2022. Þá er hann ákærður fyrir aðra árás sama kvöld.
Kona hefur verið dæmd til þriggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir líkamsárás, með því að stinga kærasta sinn tvisvar eða þrisvar í bakið með skærum, sem ýmist er lýst sem nefhára- eða naglaskærum.
Karlmaður hefur verið ákærður í tuttugu ákæruliðum fyrir ýmis brot, líkt og hótanir og ofbeldi í garð opinberra starfsmanna, brot í nánu sambandi, og eignaspjöll.
Kona hefur verið sakfelld fyrir að slá nágrannakonu sína í hesthúsahverfi í Reykjavík tveimur höggum í andlitið. Með vísan til mikils sem gengið hafði á í samskiptum hesthúsaeigenda í hverfinu var konunni ekki gerð refsing fyrir líkamsárásina.
Ungur karlmaður hefur verið dæmdur til þrjátíu daga skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir líkamsárás við frisbígolfvöll í Reykjavík. Árásina framdi hann í félagi með „óþekktum aðilum.“
Hluti safnaðar Kirkju sjöunda dags aðventista hefur sótt samtakastjórn kirkjunnar til saka fyrir að hafa farið út fyrir lögskipað hlutverk kirkjunnar með námarekstri. Þeir hafa kært til héraðsdóms Reykjavíkur.
Hæstiréttur hefur veitt íslenska ríkinu leyfi til að áfrýja dómi Landsréttar í máli sem snýr að launum flugvirkja fyrir tíma sem hann varði í flugvélum á ferðalögum.
Hjúkrunarfræðingur segir að stimpingar milli hennar og sjúklings á bráðamóttökunni í maí 2022 hafa haft gríðarlegar afleiðingar í för með sér. Hún hafi ekki getað mætt til vinnu í það eina og hálfa ár sem er liðið frá þessu og það hafi haft mikil áhrif á líf hennar.
Karlmaður var á föstudag sakfelldur í Héraðdómi Reykjaness fyrir líkamsárás í garð nágranna síns og fyrir að eyðileggja síma hans og stinga á dekk á bíl hans.
Myndatökumanni hefur verið gert að greiða fjölmiðlakonunni Hugrúnu Halldórsdóttur um 1,6 milljón króna vegna vangoldinna launa fyrir gerð þáttanna Ræktum garðinn sem sýndir voru í Sjónvarpi Símans í fyrra.
Karlmaður hefur verið dæmdur í fjögurra mána skilorðsbundið fangelsi fyrir tvær líkamsárásir gegn þáverandi sambýliskonu sinni. Atvikin sem málið varðar áttu sér stað árið 2019 og 2020.
Maður sem hafði verið dæmdur fyrir líkamsárás í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að stinga fingri sínum í endaþarm annars manns hlaut þyngri dóm Í Landsrétti. Ástæðan er sú að Landsréttur telur brot mannsins ekki bara vera líkamsárás, heldur líka nauðgun.
Tveir karlmenn voru sýknaðir af ákæru um nauðgun í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Vitnisburður brotaþola þótti trúverðugur, en framburðir mannanna af atburðunum sem málið varðar þóttu í takt við hvor annan og þótti dómnum ólíklegt að þeir hefðu sammælst um frásagnir sínar.
Meint fíkniefnaskuld var kveikjan að því að ungmenni ákváðu að veitast að 27 ára gömlum Pólverja fyrir utan Íslenska rokkbarinn í apríl. Brotaþoli lést eftir hnífstungur, högg og spörk. Héraðsdómari er ómyrkur í máli og lýsir atburðarásinni sem „leik kattarins að músinni“.
Sæmundur Tryggvi Norðquist Sæmundsson, tæplega nítján ára karlmaður, var í dag dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir manndráp á bílastæðinu við Fjarðarkaup í Hafnarfirði í apríl síðastliðnum. Tveir félagar hans í kringum átján ára aldur fengu tveggja ára dóm fyrir stórfellda líkamsárás. Sautján ára stúlka fékk tólf mánaða skilorðsbundinn dóm til fimm ára.
Landsréttur hefur sýknað íslenska ríkið og snúið við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli sem blaðamaðurinn Björn Þorláksson höfðaði gegn Kjara-og mannauðssýslu ríkisins. Kröfu Björns um miskabætur vegna uppsagnar hans árið 2021 hefur því verið vísað frá.
Fyrrverandi verslunarstjóri verslunar Krónunnar í Nóatúni hefur verið dæmdur í þrjátíu daga fangelsi fyrir að hafa dregið sér samtal tæpa milljón króna frá versluninni.
Bændahjón úr Kjós segjast hafa óttast um líf sitt og fjölskyldu sinnar vegna nágranna sem er ákærður fyrir að aka bíl á ógnandi hátt að þeim, elt þau um tíu kílómetra vegarkafla í Hvalfirði og reynt að þvinga þau af veginum. Atburðirnir sem málið varðar áttu sér stað á júníkvöldi árið 2021.
Maður sem er grunaður um tilraun til að verða fyrrverandi kærustu sinni að bana hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til mánudagsins 27. nóvember. Hann þykir mjög líklegur til að beita konuna frekara ofbeldi fengi hann að ganga laus.
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í tveggja ára fangelsi fyrir að hafa flutt tvö kíló af amfetamínbasa til landsins með flugi.
Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar, vann mál gegn ríkinu; Þórdís Kolbrún Gylfadóttir Reykfjörð fjármála- og efnahagsráðherra þarf að útskýra skriflega hvernig launakjör Elfu Ýrar og annarra forstöðumanna eru ákvörðuð.
Karlmaður sem er ákærður fyrir tilraun til manndráps breytti afstöðu sinni til sakarefna málsins í þann mund sem aðalmeðferð málsins hófst í gærmorgun. Manninum er gefið að sök að stinga annan mann tvisvar sinnum með hníf á bílastæði í Breiðholti að kvöldi til í mars árið 2021.
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt erlenda konu í átján mánaða fangelsi fyrir að hafa flutt um 900 grömm af kókaíni til landsins með flugi. Konan var ekki eigandi efnanna og hafði samþykkt að flytja þau til landsins gegn greiðslu.
Það er eins og spennusaga að heyra um baráttu Nox Medical við það að verja einkaleyfið sitt. Þar sem stóri aðilinn ætlaði sér einfaldlega að drepa þann litla.
Ákvörðun Samgöngustofu um að skemmtiskipið Amelía Rose teljist nýtt skip, sem gerir það að verkum að það má bera færri farþega en ef það teldist gamalt, var endanlega staðfest með dómi Hæstaréttar í dag.
Borgarlögmaður féll frá áfrýjun í skaðabótamáli fyrrverandi leikskólakennara, sem slasaðist í hópefli starfsmanna, daginn áður en málflutningur átti að vera fyrir Hæstarétti. Lögmaður kennarans segir ákvörðun borgarlögmanns hafa komið sér mjög á óvart.