Formúla 1

Formúla 1

Fréttir af þekktasta kappakstri í heimi.

Fréttamynd

Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár

Lewis Hamilton sýndi hvað enn er í hann spunnið þegar hann varð efstur í tímatökum fyrir Mexíkókappaksturinn í Formúlu 1. Hamilton, sem er 41 árs gamall, bætti þar með metið sitt yfir það að hafa oftast verið á ráspól en hann hefur þurft að bíða lengi síðan síðast.

Formúla 1

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

„Mér finnst ég vera byggður öðru­vísi“

Lewis Hamilton, ökumaður Ferrari, þykir það ekki ólíklegt að hann verði enn í Formúlu 1 þegar afríski kappaksturinn fer fram. Búist er við að kappaksturinn verði ekki fyrr en 2030 eða jafnvel seinna ef kappakstursbrautin í Rúanda verður ekki klár í tæka tíð.

Formúla 1
Fréttamynd

Átti erfitt fyrsta tíma­bil en getur nú skrifað söguna

Kimi Antonelli er svo gott sem búinn að tryggja sér heimsmeistaratitilinn í Formúlu 1 þar sem hann þarf aðeins tvö stig í næstu keppni til þess að tryggja sér titilinn formlega. Geri hann það verður hann yngsti heimsmeistari í Formúlu 1 í sögunni og sýnir gríðarlegan viðsnúning frá síðasta tímabili.

Formúla 1
Fréttamynd

Hlustaði ekki á liðið og baðst af­sökunar

Lewis Hamilton bað Ferrari afsökunar á því að hafa ekki hlustað á liðið í keppninni og fór gegn þeirra ráði. Liðið vildi fá Hamilton til að fá ný dekk undir lok keppninnar en hann fór gegn þeirra ráði og missti dýrmæt stig við það.

Formúla 1
Fréttamynd

Hamilton vonast til þess að keppa í Afríku

Í síðustu viku byrjuðu orðrómar að fara á flug sem sögðu að Formúla 1 myndi fara aftur til Afríku. Lewis Hamilton hefur lengi reynt að gera allt í hans valdi til þess að fá kappakstur í Afríku.

Formúla 1
Fréttamynd

Á­föllin halda á­fram að dynja á Russell

Áföllin halda áfram að dynja á George Russell og virðist hann vera að missa af liðsfélaga sínum, Kimi Antonelli, í heimsmeistaramótinu í Formúlu 1. Hann mun þurfa að byrja kappaksturinn í Singapúr aftastur eftir að hafa þurft að setja nýja vél í bílinn sinn.

Formúla 1
Fréttamynd

Vill sjá breytingar svo það komi ekki annað klúður

Klúður er orðið sem lýsir best atvikunum sem gerðust í rigningunni í Bahrein-kappakstrinum í Formúlu 1 um helgina sem var haldinn í Malasíu. Ökumenn náðu varla að keyra vegna bilunar í kerfi bílanna sem tafði að keppnin gæti farið af stað.

Formúla 1
Fréttamynd

Verstappen vann skraut­lega keppni

Max Verstappen fagnaði sigri í Barein-kappakstrinum í Formúlu 1 sem fór þó fram í Malasíu í morgun. Keppnin var skrautleg og var seinkað umtalsvert vegna rigninga.

Formúla 1
Fréttamynd

Kunnug­leg framlína í Malasíu

Max Verstappen verður á ráspól í Barein-kappakstri Formúlu 1 á morgun, en kappaksturinn fer fram í Malasíu sökum stríðsástands í Íran. Lewis Hamilton ræsir honum við hlið í fremstu röð.

Formúla 1