Ajax hrifsar Carlos Borges úr klóm West Ham Hinn efnilegi Carlos Borges verður leikmaður Ajax á næsta tímabili en West Ham virðist hafa klúðrað kaupunum á honum algjörlega. Í tæpar tvær vikur tókst West Ham ekki að reka endahnút á félagskiptin. Fótbolti 1. ágúst 2023 17:46
Sádarnir beina athyglinni að Osimhen og gera honum tjúllað tilboð Fyrst Kylian Mbappé hefur ekki áhuga á að ganga í raðir Al Hilal í Sádi-Arabíu hefur félagið beint athygli sinni að Victori Osimhen og gert honum sannkallað risatilboð. Fótbolti 1. ágúst 2023 16:00
Lét gömlu liðsfélagana heyra það: „Stöngin var maður leiksins“ Carli Lloyd, ein besta fótboltakona allra tíma, var ekki hrifin af frammistöðu bandaríska landsliðsins gegn Portúgal og sagði það stálheppið að vera ekki úr leik á HM. Fótbolti 1. ágúst 2023 14:01
Stuðningsmenn hótuðu að skjóta eigin leikmenn í fæturna Leikmenn argentínska fótboltafélagsins Vélez Sarsfield segja að stuðningsmenn þess hafi setið fyrir þeim og hótað að skjóta þá. Fótbolti 1. ágúst 2023 13:30
Lauren James er stærsta stjarna fjölskyldunnar í dag England og Danmörk eru komin áfram á heimsmeistaramóti kvenna í fótbolta í Ástralíu og Nýja Sjálandi en Kína er úr leik líkt og Víetnam. Fótbolti 1. ágúst 2023 13:05
Dani Alves enn í fangelsi og verður ákærður Dani Alves verður ákærður fyrir kynferðisbrot en dómari ákvað þetta og tilkynnti i spænskum réttarsal í gær eftir að hafa fundið næg sönnunargögn gegn brasilíska knattspyrnumanninum. Fótbolti 1. ágúst 2023 12:30
„Reyndum að róa þá niður en þeir tóku bara bikarinn“ Það er óhætt að segja að lið knattspyrnuakademíu Ascent frá Malaví hafi unnið hug og hjörtu þjóðarinnar á fótboltamótinu Rey Cup um nýliðna helgi en tveir Íslendingar, sem búa í Malaví, ýttu hugmyndinni að komu liðsins, úr vör. Fótbolti 1. ágúst 2023 10:00
Bandaríkin stálheppin að fylgja Hollandi Holland tryggði sér sigur í E-riðli á HM kvenna í fótbolta í dag, með stórsigri gegn Víetnam, en Bandaríkin voru stálheppinn að falla ekki úr keppni í viðureign sinni við Íslandsbanana í Portúgal. Fótbolti 1. ágúst 2023 09:00
Chelsea vill Vlahović í staðinn fyrir Lukaku og Sanchez í samkeppni við Kepa Chelsea er á fullu að smíða saman lið fyrir komandi átök í ensku úrvalsdeildinni. Félagið er sagt vilja Dušan Vlahović í skiptum fyrir Romelu Lukaku og einnig Robert Sanchez í samkeppni við Kepa. Sport 31. júlí 2023 22:02
Hetja á HM nokkrum árum eftir að hún vissi ekki hvort hún gæti gengið aftur Ástralar þurftu á hjálp að halda til að koma liði sínu áfram í sextán liða úrslitin á heimsmeistaramóti kvenna í fótbolta sem fram fer á þeirra heimavelli. Pressan hefur verið mikil á liðinu en líklega aldrei meira en fyrir leikinn í morgun. Fótbolti 31. júlí 2023 16:00
BBC baðst afsökunar á fúkyrðaflaumi í beinni Breska ríkisútvarpið hefur beðist afsökunar á fúkyrðaflaumi sem heyrðist í beinni útsendingu frá leik Ástralíu og Ólympíumeistara Kanada á HM í fótbolta kvenna. Fótbolti 31. júlí 2023 15:00
Dóttir Ronaldos í Liverpool-treyju Dóttir Cristianos Ronaldo sást í Liverpool-treyju merktri Mohamed Salah. Fótbolti 31. júlí 2023 14:00
Höttur fékk rúmar fimmtán milljónir úr mannvirkjasjóði KSÍ í ár Höttur á Egilsstöðum fékk langmest af öllum félögum þegar KSÍ úthlutaði úr mannvirkjasjóði fyrir árið 2023. Íslenski boltinn 31. júlí 2023 12:32
Ástralar brunuðu í sextán úrslitin og skildu þær kanadísku eftir í rykmekki Ástralía og Nígería tryggðu sér sæti í sextán liða úrslitum HM kvenna í fótbolta í dag eftir lokaumferðina í B-riðli. Cloé Lacasse og félagar hennar í Kanada eru á heimleið. Fótbolti 31. júlí 2023 12:01
Rekinn fyrir að slá leikmann í fýlu Aðstoðarþjálfari Flamengo hefur þurft að taka pokann sinn eftir afar óheppilegt atvik í búningsklefanum eftir sigurleik hjá brasilíska félaginu. Fótbolti 31. júlí 2023 11:00
Guðmundur Baldvin til Mjällby Fótboltamaðurinn Guðmundur Baldvin Nökkvason er genginn í raðir sænska félagsins Mjällby frá Stjörnunni. Mjällby staðfesti félagaskiptin í morgun. Fótbolti 31. júlí 2023 10:00
Japan valtaði yfir Spán og mætir Noregi Japan rúllaði með afar sannfærandi hætti yfir Spán, 4-0, í lokaumferð C-riðils HM kvenna í fótbolta. Bæði liðin fara þó áfram í 16-liða úrslitin eins og ljóst var fyrir leik. Fótbolti 31. júlí 2023 09:03
Horfði á mörkin sín og komst svo á toppinn Norska landsliðskonan Sophie Román Haug varð í gær ein af markahæstu leikmönnum HM í fótbolta í Eyjaálfu þegar hún skoraði þrennuna sína í 6-0 sigrinum gegn Filippseyjum, sem kom Noregi áfram í 16-liða úrslit. Fótbolti 31. júlí 2023 08:00
Jay Z sagður íhuga alvarlega að gera tilboð í Tottenham Rapparinn Jay Z er sagður fylgjast vel með þróun mála hjá eigenda Tottenham, Joe Lewis, sem hefur verið ákærður fyrir innherjaviðskipti. Jay Z er yfirlýstur aðdáandi Arsenal en hefur hingað til ekki látið góð viðskiptatækifæri sér úr greipum renna. Fótbolti 31. júlí 2023 07:00
Mané mun maka krókinn með myndarlegum mánaðarlaunum Sadio Mané mun ekki þurfa að lepja dauðann úr skel næstu misserin en hann mun þéna um 650.000 pund á viku hjá Al Nassr, skattfrjálst. Fótbolti 30. júlí 2023 22:46
Arsenal vill fá David Raya til að veita Aaron Ramsdale samkeppni David Raya markvörður Brentford er eftirsóttur bæði af Arsenal og Bayern Munchen en Brentford vill fá 40 milljónir punda fyrir Spánverjann sem á ár eftir af samningi sínum við liðið. Fótbolti 30. júlí 2023 21:30
„Við erum ótrúlega flott lið núna, það eru allir að vinna 100%“ KA og HK gerðu 1-1 jafntefli í Bestu deild karla á Akureyri í dag. KA-menn spiluð svo til allan leikinn manni færri en Hallgrímur Jónasson þjálfari KA var ekki alveg sammála dómnum. Fótbolti 30. júlí 2023 19:14
Patrik hélt hreinu þegar Viking lagði Brann Sex leikir fara fram í norsku úrvalsdeildinni í dag og er fimm þeirra lokið. Viking halda uppi pressu á topplið Bodø/Glimt en Viking vann góðan 0-2 útisigur á Brann en þetta var sjöundi sigur Viking í deildinni í röð. Fótbolti 30. júlí 2023 17:21
Breiðablik vann Bayern í vító | Strákarnir frá Malaví sóttu gullið Rey-Cup mótinu í fótbolta stráka og stelpna lauk á Laugardalsvellinum í dag. Á mótinu er leikið í 4. og 3. flokki karla og kvenna. Fótbolti 30. júlí 2023 16:51
Mark Arnórs Ingva dugði skammt Arnór Ingvi Traustason skoraði mark Norrköping þegar liðið beið lægri hlut, 2-1, gegn Hammarby í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta karla í dag. Fótbolti 30. júlí 2023 15:20
Freysteinn Ingi yngsti markaskorari í sögu Njarðvíkur Freysteinn Ingi Guðnason varð í gær yngsti markaskorari í sögu Njarðvíkur í Íslandsmóti meistaraflokks karla þegar hann gulltryggði sigur Njarðvíkurliðsins gegn nágrönnum sínum frá Grindavík í Lengjudeildinni. Fótbolti 30. júlí 2023 14:36
Sverrir Ingi stóð vaktina í hjarta varnarinnar í sigri Sverrir Ingi Ingason, landsliðsmiðvörður í fótbolta, karla hóf leikinn í miðri vörn Midtjylland þegar liðið sigraði Silkeborg, 2-0, á heimavelli sínum í annarri umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í dag. Fótbolti 30. júlí 2023 14:29
Manchester City tapaði fyrir Atlético Madrid Atlético Madrid bar sigur úr býtum með tveimur mörkum gege einu þegar liðið atti kappi við Manchester City í æfingaleik liðanna í Seúl í Suður-Kóreu í dag. Fótbolti 30. júlí 2023 13:52
Hólmbert Aron tryggði Holstein Kiel sigurinn í fyrstu umferð deildarinnar Hólmbert Aron Friðjónsson skoraði sigurmark Holstein Kiel þegar liðið hafði betur gegn Eintracht Braunschweig en liðin leiddu saman hesta sína í fyrstu umferð þýsku B-deildarinnar í fótbolta karla í dag. Fótbolti 30. júlí 2023 13:41
Erik ten Hag þögull sem gröfin um Højlund Erik ten Hag vildi ekkert tjá sig um væntanlega komu danska framherjans Rasmusar Højlund til Manchester United þegar hann ræddi við Skysports í aðdraganda æfingaleiks liðsins gegn Borussia Dortmund sem leikinn verður á morgun. Fótbolti 30. júlí 2023 13:34
Uppgjörið og viðtöl: Fram - Fylkir 2-0 | Langþráður sigur Fram setur níu tær í efstu deild að ári Íslenski boltinn