Maðkur í mysunni í bikarsigri Arsenal? Leikmaður Oxford er grunaður um veðmálasvindl í bikarleik liðsins gegn Arsenal á mánudagskvöldið. Enska knattspyrnusambandið er með málið til rannsóknar. Fótbolti 11. janúar 2023 18:00
Íslands- og bikarmeistari semur við kvennalið HK HK-konur ætla sér greinilega upp í Bestu deild kvenna í fótbolta næsta haust en liðið hefur bætt við sig erlendum leikmanni sem varð Íslands- og bikarmeistari með Val síðasta sumar. Íslenski boltinn 11. janúar 2023 16:01
Bikarklúður Barcelona: Gætu dottið úr bikarnum þrátt fyrir 9-0 sigur Kvennalið Barcelona vinnur ekki tvöfalt fjórða árið í röð eftir grátleg mistök hjá stjórnendum félagsins. Fótbolti 11. janúar 2023 15:30
Stjórn franska knattspyrnusambandsins setti forsetann til hliðar Stjórn franska knattspyrnusambandsins tók þá ákvörðun á fundi sínum í dag að leysa forseta sambandsins tímabundið frá störfum. Fótbolti 11. janúar 2023 13:38
Hásæti Pele er hér eftir á fótboltaleikvangi í Mexíkó Mexíkóska félagið Pachuca heiðraði brasilísku knattspyrnugoðsögnina Pele með sérstökum hætti í vikunni. Fótbolti 11. janúar 2023 13:01
Félix sá fjórði sem Chelsea kaupir í janúar Chelsea hefur fengið Portúgalann João Félix á láni frá Atlético Madrid á Spáni. Hann fjórði leikmaðurinn til að ganga í raðir liðsins þegar aðeins ellefu dagar eru liðnir á janúargluggann. Enski boltinn 11. janúar 2023 12:22
Lloris segir að Martínez hafi gert sig að fífli Hugo Lloris, fyrrverandi fyrirliði franska fótboltalandsliðsins, hefur bæst í hóp þeirra sem hafa gagnrýnt Emiliano Martínez, markvörð heimsmeistara Argentínu. Fótbolti 11. janúar 2023 07:31
Hvetja forseta knattspyrnusambandsins til að segja af sér eftir ummæli um Zidane Patrick Anton, yfirmaður siðanefndar franska knattspyrnusambandsins, hefur hvatt forseta sambandsins, Nöel Le Graët, til að segja af sér eftir óheppileg ummæla forsetans um knattspyrnugoðsögnina Zinedine Zidane. Fótbolti 10. janúar 2023 22:45
Inter í átta liða úrslit eftir dramatíska endurkomu Inter Milan er á leið í átta liða úrslit ítölsku bikarkeppninnar, Coppa Italia, eftir að liðið vann dramatískan 2-1 endurkomusigur gegn Parma í framlengdum leik í kvöld. Fótbolti 10. janúar 2023 22:36
Rashford skoraði í sjötta leiknum í röð er United komst í undanúrslit Marcus Rashford hefur verið sjóðandi heitur í liði Manchester United undanfarnar vikur og hann skoraði í sínum sjötta leik í röð fyrir liðið er United tryggði sér sæti í undanúrslitum enska deildarbikarsins með 3-0 sigri gegn C-deildarliði Charlton í kvöld. Fótbolti 10. janúar 2023 22:00
Newcastle í undanúrslit eftir sigur gegn Leicester Newcaslte er á leið í undanúrslit enska deildarbikarsins, Carabaoi Cup, eftir 2-0 sigur gegn Leicester í úrvalsdeildarslag í kvöld. Fótbolti 10. janúar 2023 21:54
Jón Daði skaut Bolton í undanúrslit Jón Daði Böðvarsson skoraði eina mark Bolton er liðið tryggði sér sæti í undanúrslitum enska EFL bikarsins í fótbolta í kvöld með 1-0 sigri gegn Portsmouth. Fótbolti 10. janúar 2023 21:39
Haller snéri aftur á völlinn eftir krabbameinsmeðferð Knattspyrnumaðurinn Sebastian Haller snéri aftur á völlinn í dag í vináttuleik fyrir þýska liðið Borussia Dortmund. Haller hafði verið frá keppni frá því seinasta sumar þegar hann greindist með illkynja æxli í eista. Fótbolti 10. janúar 2023 21:01
Úlfarnir krefjast svara um af hverju markið gegn Liverpool fékk ekki að standa Julen Lopetegui, knattspyrnustjóri Wolves, segir að félagið hafi sent enska knattspyrnusambandinu, FA, bréf þar sem sambandið er beðið um að útskýra af hverju þriðja mark liðsins gegn Liverpool í FA-bikarnum um liðna helgi fékk ekki að standa. Fótbolti 10. janúar 2023 20:15
Eigendur PSG vilja kaupa hlut í ensku úrvalsdeildarfélagi Qatar Sports Investment (QSI), eigendur franska stórveldisins Paris Saint-Germain, eru sagðir vera að skoða möguleikann á því að kaupa hlut í liði í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Fótbolti 10. janúar 2023 18:01
Fjórir þjálfarar úr bandarísku kvennadeildinni í ævilangt bann Bandaríska kvennadeildin í fótbolta, NWSL, hefur dæmt fjóra fyrrum þjálfara í deildinni í ævilangt bann í kjölfar rannsóknar á kynferðisbrotum og eða harðstjórn í þeirra þjálfaratíð. Fótbolti 10. janúar 2023 11:31
Margrét hitti goðsögnina Buffon strax á fyrsta degi Margrét Árnadóttir samdi við lið Parma í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á dögunum. Hún var vart lent á Ítalíu þegar hún hafði fengið sjálfu með einni af skærustu stjörnum Parma, goðsögninni Gianluigi Buffon. Fótbolti 9. janúar 2023 23:30
Keflavík byrjað að safna liði Eftir að hafa statt og stöðugt misst leikmenn úr leikmannahópi sínum hefur Keflavík loks sótt liðsstyrk fyrir komandi tímabil í Bestu deild karla í fótbolta. Sá heitir Gunnlaugur Fannar Guðmundsson og lék síðast með Kórdrengjum í Lengjudeildinni. Íslenski boltinn 9. janúar 2023 22:30
Skytturnar kláraðu C-deildarliðið í seinni hálfleik Arsenal vann C-deildarlið Oxford United 3-0 í ensku bikarkeppninni í fótbolta í kvöld. Öll mörkin komu í síðari hálfleik. Enski boltinn 9. janúar 2023 22:00
Kjartan Henry í þann mund að semja við FH Samkvæmt heimildum hlaðvarpsins Dr. Football mun FH tilkynna að framherjinn Kjartan Henry Finnbogason sé genginn í raðir félagsins og muni spila með því í Bestu deild karla í fótbolta næsta sumar. Íslenski boltinn 9. janúar 2023 20:45
Rúnar Alex hélt hreinu í stórsigri á meisturunum Landsliðsmarkvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson hélt hreinu þegar lið hans Alanyaspor vann 5-0 stórsigur á Tyrklandsmeisturum Trabzonspor í tyrknesku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Fótbolti 9. janúar 2023 20:05
Segja Félix hafa náð munnlegu samkomulagi við Chelsea Þó ekkert gangi innan vallar er líf og fjör á skrifstofu Chelsea þessa dagana. Það virðist sem portúgalski framherjinn João Félix sé að ganga í raðir félagsins á láni frá Atlético Madríd. Enski boltinn 9. janúar 2023 18:17
Hraunaði yfir dómara og var rekinn út af á eigin góðgerðamóti Þjóðverjinn Lukas Podolski, fyrrum framherji Arsenal, virðist hafa verið illa fyrir kallaður þegar hann var á meðal leikmanna á góðgerðamóti sem hann sjálfur stóð að. Fótbolti 9. janúar 2023 17:01
Bale leggur skóna á hilluna Gareth Bale, leikmaður Los Angeles FC og velska landsliðsins í fótbolta, hefur tilkynnt að skórnir séu komnir upp í hillu. Bale er aðeins 33 ára gamall. Fótbolti 9. janúar 2023 15:33
Drama í Frakklandi: Koma Zidane til varnar eftir vanvirðingu forsetans Ummæli Nöel Le Graët, forseta franska knattspyrnusambandsins, um þjálfarann og goðsögnina Zinedine Zidane hafa kallað á hörð viðbrögð víða af. Kylian Mbappé og spænska félagið Real Madrid hafa séð sig knúin til að láta forsetann heyra það. Le Graët hefur beðist afsökunar á ummælunum. Fótbolti 9. janúar 2023 15:00
Eiður Smári minnist Vialli: „Hvíl í friði Luca“ Fyrrum landsliðsmaðurinn Eiður Smári Guðjohnsen hefur minnst ítölsku goðsagnarinnar Gianluca Vialli á samfélagsmiðlinum Instagram en Vialli tapaði baráttunni við krabbamein fyrir helgi. Enski boltinn 9. janúar 2023 14:00
Roberto Martinez tekur við portúgalska landsliðinu Roberto Martinez, fyrrum þjálfari Belga, er tekinn við sem þjálfari portúgalska landsliðsins. Portúgalska sambandið staðfesti þetta á sínum miðlum. Fótbolti 9. janúar 2023 13:07
Svava kveður Brann og leiðin liggur til Englands Svava Rós Guðmundsdóttir, landsliðskona í fótbolta, er farin frá Noregsmeisturum Brann. Fótbolti 9. janúar 2023 13:01
Englandsmeistararnir og toppliðið mætast líklega í 32-liða úrslitum Dregið var í fjórðu umferð FA-bikarsins í knattspyrnu í dag og eins og alltaf er nóg um áhugaverðar viðureignir. Englandsmeistarar Manchester City mæta annað hvort toppliði ensku úrvalsdeildarinnar, Arsenal, eða Oxford sem leikur í ensku C-deildinni. Fótbolti 8. janúar 2023 22:45
Börsungar styrktu stöðu sína á toppnum Barcelona er nú með þriggja stiga forskot á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta eftir sterkan 0-1 útisigur gegn Atlético Madrid í stórleik 16. umferðarinnar. Fótbolti 8. janúar 2023 21:56