HM í fótbolta 2026

HM í fótbolta 2026

HM í fótbolta karla fór fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó dagana 11. júní til 19. júlí 2026. Spánverjar stóðu uppi sem heimsmeistarar.

Leikirnir




    Fréttamynd

    Sjáðu stuðnings­menn Kongó fagna marki á Eng­landi

    Hópur stuðningsmanna Kongó var búinn að safna sér saman á götum Lundúna fyrir leik Englands og Kongó í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í fótbolta. Stuðningsmennirnir fögnuðu innilega þegar Kongó komst yfir í leiknum en England endaði á að vinna leikinn 2-1.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Uefa gefur ekki rautt fyrir að hylja munninn

    Uefa hefur staðfest að leikmenn munu ekki fá rautt spjald fyrir að hylja munninn sinn þegar talað er við mótherja í keppnum á vegum sambandsins. Þessi regla var sett á HM eftir atvik sem gerðist í leik á vegum Uefa.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Hvor goð­sögnin kveður í kvöld?

    Í kvöld mætast Portúgal og Króatía í einum af stærstu leikjum 32 liða úrslitum heimsmeistaramótsins í fótbolta og þar munu goðsagnirnar Luka Modrić og Cristiano Ronaldo reyna að forðast kveðjuleik á HM-ferlinum sínum.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Ekki hrifinn af því að spila í bak­verði

    Declan Rice, miðjumaður Arsenal og enska landsliðsins, þurfti að leysa hægri bakvarðarstöðuna á lokakafla 2-1 sigurs liðsins á Kongó í 32-liða úrslitum á HM í gær. Hann hrífst ekkert sérlega af því að spila stöðuna.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    „Leyfið börnunum að vaka“

    Landsliðsþjálfari Englendinga hvetur enska foreldra til að leyfa börnum að vaka yfir leik Englands í sextán liða úrslitum heimsmeistaramótsins í fótbolta.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Kane bjargaði enskum

    Harry Kane kom Englandi til bjargar gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í dag. Englendingar lentu undir en Kane skoraði tvö mörk undir lok leiksins og skaut enska liðinu áfram, 2-1. England mætir heimaliði Mexíkó í sextán liða úrslitum HM aðfaranótt mánudags.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Þýska lands­liðið spegli land stöðnunar

    Þýskaland er úr leik á HM eftir tap gegn Paragvæ í vítaspyrnukeppni. Fallið er stórt áfall fyrir fjórfalda heimsmeistara en í Þýskalandi hefur umræðan ekki aðeins snúist um vítaspyrnur, leikskipulag eða framtíð Julian Nagelsmann. Sumir þýskir miðlar hafa gert ósigurinn að stærri spurningu: hvort landsliðið endurspegli ástand lands sem glímir við stöðnun, slitna innviði og þrýsting á gamla efnahagsmódelið.

    Erlent