Hernaðaraðgerðum haldið áfram þar til „öllum markmiðum okkar er náð“ Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Bandaríkin ekki munu hætta hernaðaraðgerðum sínum í Íran fyrr en hverju einasta markmiði sé náð. Hann kveðst eiga von á frekara mannfalli innan raða Bandaríkjahers en heitir því að hefna hinna föllnu og segir klerkastjórnina heyja stríð við siðmenninguna. Erlent 1. mars 2026 21:50
Sprengdu höfuðstöðvar byltingarvarðarins í loft upp Bandaríkjaher gerði umfangsmiklar loftárásir á höfuðstöðvar Íranska byltingarvarðarins í gær og sprengdu þær nánast í loft upp. Eyðileggingin er gríðarleg og yfirmaður byltingarvarðarins er látinn. Erlent 1. mars 2026 19:10
Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Donald Trump Bandaríkjaforseti segir bandaríska herinn hafa sökkt níu skipum íranska flotans. Sum þeirra segir hann „stór og mikilvæg“. Erlent 1. mars 2026 17:53
Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Mahmoud Ahmadinejad, fyrrverandi forseti Írans, er látinn eftir að hafa fallið í loftárásum bandaríska og ísraelska hersins í Íran. Erlent 1. mars 2026 15:53
Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Þrír bandarískir hermenn féllu og fimm hermenn særðust alvarlega í tengslum við átök Írans við Ísrael og Bandaríkjamenn, að sögn Bandaríkjahers. Auk þess létu hið minnsta níu Ísraelsmenn lífið í árás á í ísraelsku borginni Beit Shemesh í dag, að sögn viðbragðsaðila. Erlent 1. mars 2026 15:15
Íslendingar óska eftir aðstoð Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu hefur nokkur fjöldi íslenskra ríkisborgara á áhrifasvæðum í Miðausturlöndum haft samband við borgaraþjónustu ráðuneytisins. Þeim hafi verið veittar upplýsingar og aðstoð eftir fremsta megni. Innlent 1. mars 2026 14:04
Útilokað að steypa stjórninni með loftárásum Engin skipulögð stjórnarandstaða er til staðar í Íran segir fyrrverandi sendiherra og sérfræðingur í öryggis- og varnarmálum. Útilokað sé að steypa klerkastjórninnni með einungis loftárásum. Innlent 1. mars 2026 13:12
Gerir stólpagrín að Von der Leyen Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, gerir stólpagrín að Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, sem tilkynnti í gær að hún hefði boðað til fundar í öryggisráði ESB. Erlent 1. mars 2026 12:20
Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Ísraelsher segist aftur hafa hafið loftárás á skotmörk djúpt inni í írönsku höfuðborginni Teheran, rúmum sólarhringi eftir að herinn felldi æðstaklerk Írans í samvinnu með Bandaríkjunum. Íranir hafa skotið flugskeytum í átt að nágrannaríkjum í nótt til að hefna æðstaklerksins. Erlent 1. mars 2026 09:04
Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Íranir heita hefndum eftir að fjöldi háttsettra manna, þar á meðal æðsti leiðtogi landsins, var felldur í árásum Ísraels og Bandaríkjanna í gær. Ísraelsmenn segjast hafa drepið æðstaklerkinn í fyrstu sprengjuhríðinni í gær, sem lagði aðsetur hans í eyði. Erlent 1. mars 2026 08:25
„Ólíklegt“ að Íran fari á HM vegna árásarinnar Tafarlaust hlé hefur verið gert á öllum fótboltakeppnum í Íran í skugga árásar Bandaríkjanna og Ísraels á ríkið í gær. Forseti knattspyrnusambands landsins segir ólíklegt að íranska landsliðið keppi á HM í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó í sumar. FIFA fundar um málið. Fótbolti 1. mars 2026 08:01
Stríðið muni halda áfram út vikuna Þrátt fyrir að æðstiklerkur Írans sé sagður látinn hyggjast Bandaríkjamenn og Ísraelsmenn halda árásum á Íran áfram í einhverja daga. Meint andlát Ayatollah Ali Khamenei þarf ekki að jafngilda hreinum stjórnarskiptum í Íran. En hver tekur þá við? Erlent 1. mars 2026 00:28
Trump: Khamenei látinn Ayatollah Ali Khamenei, æðsti leiðtogi Íran, er sagður látinn eftir umfangsmiklar loftárásir Ísraelsmanna og Bandaríkjamanna á Íran í dag. Þetta segir Bandaríkjaforseti en aðsetur Khamenei í Teheran var lagt í rúst í árásunum í dag. Erlent 28. febrúar 2026 19:43
Segir áhyggjuefni að leikreglur séu virtar að vettugi Erlingur Erlingsson, hernaðarsagnfræðingur, setur spurningamerki við réttlætingu Bandaríkjanna og Ísrael fyrir árásum á Íran. Það séu vonbrigði að farið sé á svig við alþjóðalög og erfitt sé að ráða í umfang og árangur aðgerðanna á þessum tímapunkti, svo stuttu eftir að þær hófust. Íranski herinn hefur sagst ætla að kenna Bandaríkjunum og Ísrael „sögulega lexíu“ en Erlingur segir eftir að koma betur í ljós hver viðbrögð Írana verða með gagnárásum. Innlent 28. febrúar 2026 13:09
Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Skömmu eftir að Bandaríkin og Ísrael réðust á Íran í morgun birti Donald Trump Bandaríkjaforseti ávarp á samfélagsmiðli sínum Truth Social. Erlent 28. febrúar 2026 10:16
Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Hið minnsta tvö hundruð eru taldir látnir eftir að Ísrael og Bandaríkin hófu árás á Íran í morgun. Ísraelsríki segir árásina fyrirbyggjandi og Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að æðstiklerkur Írana hafi verið felldur. Vísir færir ykkur nýjustu fréttir í vaktinni hér að neðan. Erlent 28. febrúar 2026 07:32
Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Starfsmönnum sendiráðs Bandaríkjanna í Jerúsalem barst tölvupóstur frá sendiherranum Mike Huckabee í morgun, þar sem hann hvatti þá sem vildu yfirgefa Ísrael vegna mögulegra árása Bandaríkjanna á Íran ættu að gera það strax í dag. Erlent 27. febrúar 2026 12:11
Ráðamenn tvísaga um markmið viðræðanna við Íran Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa gefið út afar misvísandi skilaboð um afstöðu sína í samningaviðræðum við Írana, sem halda áfram í Genf í dag. Erlent 26. febrúar 2026 06:54
Ráðast Bandaríkin á Íran? Segja Trump munu reiða sig á ráðgjöf Witkoff og Kushner Ákvörðun Donald Trump Bandaríkjaforseta um að ráðast eða ráðast ekki á Íran mun meðal annars velta á mati Steve Witkoff og Jared Kushner á því hvort Íranir séu viljandi að tefja fyrir samningi um kjarnorkuáætlun landsins. Erlent 24. febrúar 2026 08:28
Segir Trump ekkert botna í því hvers vegna Íranir gefa ekki eftir Steve Witkoff, sérlegur sendifulltrúi Donald Trump Bandaríkjaforseta, segir forsetann ekkert botna í því hvers vegna Íranir hafa ekki gefið eftir í samningaviðræðum við Bandaríkjamenn, þrátt fyrir þann hernaðarmátt sem Bandaríkin hafa byggt upp á svæðinu á síðastliðnum vikum. Erlent 23. febrúar 2026 06:27
Íranir mótmæla á ný Stúdentar við háskóla víðs vegar um Íran hafa staðið fyrir mótmælum gegn klerkastjórninni í dag. Mótmælin eru þau fyrstu síðan mótmælahrinunni, sem hófst í lok desember og áætlað er að hafi kostað þrjátíu þúsund manns lífið, lauk. Erlent 21. febrúar 2026 23:49
Íranski byltingarvörðurinn kominn á hryðjuverkalista ESB og á Íslandi Evrópusambandið samþykkti formlega í gær að skilgreina Íranska byltingarvörðinn sem hryðjuverkasamtök. Það þýðir að samtökin eru nú á hryðjuverkalista ESB og munu sæta þvingunaraðgerðum og refsiákvæðum ESB á grundvelli baráttu gegn hryðjuverkastarfsemi sem Ísland tekur einnig þátt í. Boðað hafði verið til mótmæla við utanríkismálaráðuneytið á morgun til að kalla eftir því að íslensk stjórnvöld myndu skilgreina Íranska byltingarvörðinn sem hryðjuverkasamtök. Erlent 20. febrúar 2026 17:24
Krefjast þess að Ísland skilgreini byltingarvörðinn sem hryðjuverkasamtök Íslensk-íranska samfélagið á Íslandi hefur boðað til mótmæla við utanríkisráðuneytið á laugardaginn þar sem þess verður krafist að íslenska ríkið skilgreini íranska byltingarvörðinn sem hryðjuverkasamtök. Innlent 19. febrúar 2026 23:50
Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Bandaríkjamenn hafa ekki haft jafn mikinn viðbúnað í háloftunum og getu til loftárása í Mið-Austurlöndum frá árinu 2003, þegar innrás var gerð í Írak. Búið er að senda gífurlegan fjölda herþota og stuðningsflugvéla á svæðið, auk tveggja flugmóðurskipa og fjölda annarra herskipa. Erlent 19. febrúar 2026 11:12
„Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er líklegri en ekki til að hefja stríð gegn klerkastjórninni í Íran og slíkt stríð gæti hafist á næstunni. Árásir yrðu umfangsmiklar og stæðu líklega yfir í að minnsta kosti nokkrar vikur. Trump er sagður vera að missa þolinmæðina gagnvart klerkastjórninni. Erlent 18. febrúar 2026 15:25
Viðræður gengu ágætlega en ekkert fast í hendi Viðræðum fulltrúa Íran og Bandaríkjanna lauk í gær en að sögn Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Íran, tókst mönnum að ná saman um ákveðin grundvallaratriði varðandi framhaldið. Erlent 18. febrúar 2026 07:13
Skutu eldflaugum á Hormuz-sund þegar viðræður hófust Yfirvöld í Íran tilkynntu í dag að Homuz-sundi hafi verið lokað og það yrði lokað í nokkrar klukkustundir vegna heræfinga. Eldflaugum hefur verið skotið út á sundið í þessum æfingum, sem eru haldnar á sama tíma og bandarískir og íranskir erindrekar funda í Genf. Bandaríkjamenn hafa hótað árásum á Íran, semji klerkastjórnin ekki um kjarnorkuvopnaáætlun ríkisins og önnur málefni. Erlent 17. febrúar 2026 12:13
Reyna að stöðva ein átök og koma í veg fyrir önnur Úkraínskir, bandarískir og rússneskir embættismenn eiga að hittast í Genf í Sviss í dag og ræða mögulega leið að friði. Ekki eru þó miklar væntingar á kreiki um að fundurinn muni reynast afdrifaríkur en þetta er í þriðja sinn sem erindrekar ríkjanna þriggja koma saman á þremur vikum. Erlent 17. febrúar 2026 10:54
Viðræður Írana og Bandaríkjamanna að hefjast í Genf Viðræður Írana og Bandaríkjamanna hefjast í dag í Genf í Sviss. Spennan á milli ríkjanna hefur magnast síðustu vikur, ekki síst eftir að Bandaríkjamenn ákváðu að senda stóran flota með flugmóðurskipið Abraham Lincoln í broddi fylkingar að ströndum Írans. Erlent 17. febrúar 2026 07:47
Stærsta flugmóðurskip heims sent aftur til Mið-Austurlanda Bandaríkin eru að senda stærsta flugmóðurskip heimsins aftur til Mið-Austurlanda. Þá verða tvö slík skip og öflugir fylgiflotar þeirra á svæðinu á sama tíma og Donald Trump er að reyna að þvinga klerkastjórn Íran til að semja um kjarnorkuvopnaáætlun ríkisins og önnur málefni. Erlent 13. febrúar 2026 10:12