Vinsælasta kvikmyndin í Kína er um kvennafótbolta og kungfú Kvikmyndaleikstjórinn Stephen Chow frá Hong Kong er mættur aftur með nýja kvikmynd og nú hefur hann kvennaknattspyrnulið að stjörnum sínum. Myndin er vinsæl en viðbrögðin frá Suður-Kóreu eru allt önnur þar sem vonda liðið í myndinni kemur þaðan. Fótbolti 20.7.2026 15:32
Auka þrýstinginn á Taívan verulega Yfirvöld í Taívan segja ferðum skipa Strandgæslu Kína og kínverskra rannsóknarskipa kringum eyjuna hafa fjölgað mjög. Kínverjar séu að auka þrýstinginn á eyríkið verulega og mögulega að undirbúa að setja Taívan í herkví, ef til átaka kemur. Erlent 20.7.2026 10:50
Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir fyrirhugaðar flugferðir Air China frá Kína til Íslands breyta miklu. Mögulegt sé að fjöldi kínverskra ferðamanna gæti tvöfaldast á tiltölulega stuttum tíma en þeir mynda nú þegar einn stærsta ferðahópinn hérlendis á vissum árstíma. Á sama tíma muni fjölguninni mögulega fylgja áskoranir, til að mynda í tengslum við fyrirtæki sem fari á svig við íslenskar venjur og regluverk. Viðskipti innlent 12.7.2026 00:01
Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Sæþór Benjamín Randalsson, formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokks Íslands, hefur fengið boð í átta daga ferð til Kína. Sæþór þakkar djúpan áhuga sinn á Kína því að hann hafi verið valinn sem fulltrúi Íslands á ráðstefnu fyrir unga evrópska leiðtoga. Sæþór hlakkar til að upplifa það öryggi sem ríkir í Kína og ferðast með háhraðlest. Innlent 9. júní 2026 22:03
Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Xi Jinping, forseti Kína, sótti í morgun kollega sinn Norður-Kóreu heim. Kim Jong Un tók vel á móti Xi og saman hétu þeir því að styrkja samband ríkjanna. Dregið hefur úr áhrifum Kínverja í Norður-Kóreu, samhliða auknum áhrifum Rússa þar og auknu efnahagslegu sjálfstæði Kóreumanna. Erlent 8. júní 2026 16:48
Taívanar líta til Úkraínu og Íran Yfirvöld í Taívan ætla að fjölga verulega eldflaugum sem ætlað er að granda skipum. Markmiðið er að styrkja varnir eyríkisins gegn mögulegri innrás Kínverja á komandi árum og stendur til að fjölga eldflaugum og flugskeytum verulega. Ráðamenn í eyríkinu vilja læra af átökunum í bæði Úkraínu og Persaflóa, þar sem ríki hafa varist árásum mun öflugri andstæðinga. Erlent 4. júní 2026 08:29
Hafnar ásökunum um nýtt hernaðarbrölt Japana Ráðamenn víða um Asíu hyggja á aukna hernaðaruppbyggingu og þá að miklu leyti vegna áhyggja af gífurlegri uppbyggingu í Kína. Kínverjar kalla eftir samstöðu gegn nýju hernaðarbrölti Japana, sem hafna slíkum ásökunum og benda á uppbygginguna í Kína. Erlent 1. júní 2026 16:03
ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins lagði tvö hundruð milljóna evra sekt á kínversku netverslunina Temu fyrir að selja ólöglegan varning í Evrópu í dag. Sektin er sú stærsta frá því að lög um stafræna þjónustu tóku gildi í álfunni. Viðskipti erlent 28. maí 2026 12:35
Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Hið minnsta níutíu eru látnir eftir gassprengingu sem varð í kolanámu í norðanverðu Kína í gær. Á annan hundrað hafa verið fluttir til aðhlynningar en björgunaraðgerðir standa enn yfir. Lögregla hefur handtekið yfirmenn í kolanámunni. Erlent 23. maí 2026 07:26
Trump segist munu ræða við forseta Taívan Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í gær að hann hefði í hyggju að ræða við Lai Ching-te, forseta Taívan. „Ég mun tala við hann,“ sagði forsetinn. „Ég tala við alla... Við munum vinna í þessu; Taívan-vandamálinu.“ Erlent 21. maí 2026 07:20
Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Xi Jinping, forseti Kína, segir hættu á því að alþjóðasamfélagið fari aftur að lúta „frumskógarlögmálinu“. Samband Kínverja og Rússa sé hins vegar til þess gert að stuðla að stöðugleika. Vladimir Pútín Rússlandsforseti er staddur í opinberri heimsókn í Kína. Erlent 20. maí 2026 12:43
Pútín lentur í Peking Vladimír Pútín, forseti Rússlands, lenti í dag í Peking í Kína, þar sem hann mun funda með Xi Jinping, kollega sínum. Fundarhöldin munu standa yfir í tvo daga og ætla forsetarnir, samkvæmt rússneskum stjórnvöldum, að ræða efnahagssamvinnu og sameiginlega hagsmuni ríkjanna. Stutt er síðan Donald Trump Bandaríkjaforseti var í opinberri heimsókn í Kína en talsmaður Pútíns segir það ótengt heimsókn Pútíns. Erlent 19. maí 2026 18:38
Segir Taívani ekki vilja átök en þeir muni ekki gefa eftir Lai Ching-te, forseti Taívan, segir þarlend stjórnvöld ekki munu grípa til aðgerða sem gætu leitt til átaka en á sama tíma muni þau ekki gefa eftir sjálfræði landsins. Erlent 18. maí 2026 06:49
Trump um Xi og Taívan: „Hann vill ekki sjá baráttu um sjálfstæði“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segist ekki búinn að ákveða hvort hann ætli að ganga frá samningi um umfangsmikla vopnasölu til Taívan. Það er eftir að Xi Jinping, forseti Kína, lýsti yfir mótmælum gegn sölunni og hótaði því að til átaka gæti komið milli Bandaríkjanna og Kína vegna Tavían. Erlent 15. maí 2026 14:19
Varaði Trump við átökum vegna Taívan Xi Jinpin, forseti Kína, varaði Donald Trump, kollega sinn frá Bandaríkjunum, við átökum milli ríkjanna við upphaf fundar þeirra í morgun. Þá mun Xi hafa sagt Trump að ef hann heldi rangt á spöðunum varðandi Taívan, eyríkið sem Kínverjar gera tilkall til, gæti það leitt til „gífurlega hættulegs ástands“ og „átaka“. Erlent 14. maí 2026 09:30
Trump fer til Kína: „Við erum tvö stórveldi“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, mætir í dag til Kína þar sem hann mun á næstu dögum funda með Xi Jinping, forseta Kína. Líklegt er að viðskipti ríkjanna verði helsta umræðuefni forsetanna en þeir hafa að öðru leyti margt að tala um, eins og átökin í Mið-Austurlöndum, málefni Taívan og gervigreind, svo eitthvað sé nefnt. Erlent 13. maí 2026 10:56
Handtaka kínverskan meintan njósnara í Noregi Norsk yfirvöld handtóku kínverskan ríkisborgara sem er grunaður um njósnir. Konan er talinn hafa ætla að koma fyrir tæki til þess að safna viðkvæmum gervihnattagögnum. Erlent 7. maí 2026 15:26
Telja samkomulag líklegt á næstu dögum Utanríkisráðherra Íran segir að ríkisstjórn landsins muni eingöngu samþykkja „sanngjarnt og víðtækt“ friðarsamkomulag við Bandaríkin. Íranir muni standa vörð um lögmætan rétt sinn og hagsmuni. Starfsmenn Hvíta hússins segja samkomulag við Írani aldrei hafa verið líklegra en nú. Erlent 6. maí 2026 09:47
Tugir látnir eftir sprengingu í flugeldaverksmiðju Að minnsta kosti tuttugu og sex eru látnir og rúmlega sextíu slasaðir eftir mikla sprengingu sem varð í flugeldaverksmiðju í Kína í gær. Erlent 5. maí 2026 07:37
Líkja forseta Taívan við rottu vegna Afríkuferðar Nýr forseti Taívan hóf opinbera heimsókn sína í Esvatíní í Afríku í morgun með því að segja að Taívan hefði rétt á því að eiga í opinberum samskiptum við önnur ríki. Enginn hefði rétt á að koma í veg fyrir það. Ráðamenn í Taívan segja að Kínverjar hafi reynt að koma í veg fyrir ferðina en Kínverjar hafa fordæmt forsetann taívanska sem „rottu“. Erlent 4. maí 2026 12:51
Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Það er ekki á hverjum degi sem íslenskir leigubílstjórar fá persónulegt boð frá einum virtasta lúxusbílaframleiðanda Kína um að heimsækja höfuðstöðvar fyrirtækisins og kynnast framtíðarsýn þess af eigin raun. Samstarf 28. apríl 2026 13:04
Magaplástrar kínverskra íþróttakvenna vekja furðu Kínversku kappgöngumennirnir sem slógu í gegn á heimsmeistaramóti tuttugu ára og yngri í Brasilíu vöktu ekki bara athygli fyrir að tryggja sér verðlaun. Sport 18. apríl 2026 08:00
J. Cole slítur samningi sínum í Kína Körfuboltamaðurinn Jermaine Cole, betur þekktur undir listamannsnafni sínu J. Cole, hefur slitið samningi sínum við kínverska liðið Nanjing Monkey Kings. Körfubolti 15. apríl 2026 11:01
Banna íbúðakaup til öskugeymslu Stjórnvöld í Kína hyggjast setja lög til að sporna við því að fjölskyldur fjárfesti í íbúðum til að geyma ösku ástvina sinna fremur en að koma hinum jarðnesku leyfum fyrir í þar til gerðum grafreit. Erlent 31. mars 2026 11:41