

Olís-deild karla
Leikirnir

Umfjöllun og viðtöl: Valur - FH 29-29 | Ótrúleg dramatík undir lokin er Valur og FH gerðu jafntefli
Valur og FH gerðu jafntefli í Olís-deild karla þar sem lokamínúturnar voru vægast sagt dramatískar. Björgvin Páll Gústavsson varði tvö vítaköst en allt kom fyrir ekki, lokatölur 29-29.

Aron Kristjánsson: „Það er auðvelt að lenda í vandræðum“
Í kvöld sigruðu Haukar Víking í Víkinni með ellefu marka mun, 20-31 í sjöundu umferð Olís-deildar karla. Tilla Haukar sér á topp deildarinnar um stundar sakir eftir að Stjarnan tapaði fyrr í kvöld gegn Gróttu.

Arnar Daði: Mér líður ekki eins og ég hafi verið að vinna toppliðið
Arnar Daði Arnarsson, þjálfari Gróttu, var að vonum sáttur eftir að hafa unnið sinn fyrsta sigur í deildinni og á engu öðru en toppliði Stjörnunnar í virkilega spennandi leik fyrr í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Grótta - Stjarnan 34-32 | Fyrsti sigur Gróttu kom gegn toppliðinu
Stjarnan var með fullt hús stiga í Olís-deild karla í handbolta fyrir leik kvöldsins gegn Gróttu sem hafði ekki enn unnið leik. Það getur hins vegar allt gerst á köldu miðvikudagskvöldi og það sönnuðu Gróttumenn er þeir unnu ótrúlegan tveggja marka sigur, lokatölur 34-32.

Umfjöllun og viðtöl: Víkingur - Haukar 20-31 | Öruggt hjá Haukum í Fossvogi
Deildarmeistarar Hauka unnu öruggan 11 marka sigur á nýliðum Víkings í Olís-deild karla í kvöld, lokatölur í Fossvogi 20-31.

Umfjöllun og viðtöl: HK - Selfoss 23-28 | Selfoss aftur á sigurbraut eftir þriggja leikja taphrinu
Selfoss komst aftur á sigurbraut eftir þriggja leikja taphrinu. Þrátt fyrir að spila ekki sinn besta leik var sigur Selfoss aldrei í hættu. Lokatölur 23-28.

Jónatan: Þetta er það sem ég veit að býr í liðinu mínu
Jóntani Magnússyni, þjálfara KA, var nokkuð létt eftir fjögurra marka sigur síns liðs gegn Fram í KA heimilinu.

Halldór Jóhann: Lífsnauðsynlegur sigur
Selfoss komst aftur á sigurbraut eftir að liðið hafði tapað þremur leikjum í röð. Selfoss vann leikinn með fimm mörkum 23-28. Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari Selfyssinga, var ánægður með sigurinn.

Umfjöllun og viðtöl: KA - Fram 37-33 | Heimamenn með góðan sigur
KA og Fram mættust í 7. umferð Olís-deildar karla í handbolta nú í kvöld þar sem heimamenn fóru með nokkuð öruggan sigur af hólmi í miklum markaleik, lokatölur 37-33.

Hita upp fyrir Olís deild karla í kvöld: Flugu Valsmenn of hátt?
Olís deild karla í handbolta fer aftur af stað í kvöld eftir æfingapásu íslenska landsliðsins og það eru fimm leikir í kvöld. Stefán Árni Pálsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson hituðu upp fyrir umferðina í aukaþætti Seinni bylgjunnar.

Þjálfari KA í handbolta segir Akureyrarbæ vera gjörsamlega metnaðarlausan
Aðstöðumál handboltans á Akureyri virðast ekki vera í góðum málum ef marka má það að Jónatan Þór Magnússon, þjálfari karlaliðs KA í Olís deildinni, sendi í gær bæjarstjórn Akureyrar og ráðamönnum í höfuðstað Norðurlands, tóninn, í harðorðari færslu á fésbókinni.

Darri kallaður inn í landsliðið
Darri Aronsson, leikmaður Hauka, hefur verið kallaður inn á æfingar með íslenska handboltalandsliðinu.

Íslensk landsliðshetja spilaði með spænska landsliðinu undir dulnefni
Viggó Sigurðsson skráði soninn Jón Gunnlaug í Víking við fæðingu og strákurinn er nú aðalþjálfari liðsins. Gaupi hitti þá feðga í Víkinni á dögunum og úr varð nýjasti þátturinn af .Eina.

Robbi Gunn brjálaður að missa markametið sitt í Danmörku
Nýr aukaþáttur af Seinni bylgjunni hefur göngu sína á Stöð 2 Sport í dag. Hann nefnist einfaldlega Seinni bylgjan extra en þar tekur Stefán Árni Pálsson leikmenn Olís-deildar karla tali.

Risi í HK, hinn íslenski Per Carlén og of skotglaður Framari
Róbert Gunnarsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson ræddu í Seinni bylgjunni um nokkra leikmenn sem annars voru ekki ýkja áberandi í umræðunni eftir síðustu umferð Olís-deildar karla í handbolta.

Kári fagnaði framan í Framara og var vikið af velli: „Ég hefði orðið brjálaður“
Línumaðurinn Kári Kristján Kristjánsson var sendur í kælingu eftir að hafa fagnað marki fyrir ÍBV gegn Fram af miklum móð. Silfurdrengirnir í sérfræðingateymi Seinni bylgjunnar voru afar ósammála dómaranum.

„Betri heima en á parketinu í Safamýri“
„Á meðan hún stendur sig á parketinu eins og hún gerði í síðasta leik að þá er þetta þess virði. Þú þarft að vinna svolítið fyrir því að fá þessar pásur frá krakkanum,“ grínast Þorgrímur Smári Ólafsson sem er heimavinnandi húsfaðir á meðan að Karen Knútsdóttir blómstrar á toppi Olís-deildarinnar.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - HK 30-24| Haukar í engum vandræðum með nýliða HK
Haukar fóru auðveldlega í gegnum nýliða HK í síðasta leik 6. umferðar. Snemma í seinni hálfleik komust heimamenn tíu mörkum yfir og þá var aðeins spurning hversu stór sigur Hauka yrði. Heimamenn enduðu á að vinna 30-24.

Jónatan Magnússon: KA-menn hafa hingað til ekki gefist upp
Jónatan Magnússon, þjálfari KA var niðurlútur eftir fjórða tap sinna manna í röð. Tapaði KA 28-21 fyrir FH í kvöld.

Öll lið í deildinni eru sterkari en við á pappírum
Haukar voru í engum vandræðum með nýliða HK í kvöld. Leikurinn endaði 30-24. Sebastian Alexandersson, þjálfari HK, reyndist sannspár þar sem hann sagði í viðtali eftir síðasta leik að hann myndi ekki reikna með sigri gegnum Haukum.

Umfjöllun og viðtöl: FH - KA 28-21 | KA-krísan heldur áfram
Í kvöld fór fram leikur FH og KA í sjöttu umferð Olís-deildar karla, í Kaplakrika. Leiknum lauk með sigri heimamanna, 28-21. Fjórða tap KA í röð staðreynd.

Umfjöllun og viðtöl: Fram - ÍBV 28-32 | Eyjamenn sóttu tvö stig í Safamýrina
ÍBV er komið með átta stig í Olís-deild karla eftir sigur liðsins á Fram í Safamýrinni í kvöld en lokatölur voru 28-32.

Basti efast stórlega um að fyrsti sigurinn hjá hans liði komi í kvöld
HK-ingar eru enn stigalausir í Olís deild karla í handbolta eftir fimm töp í röð í upphafi tímabilsins. Þjálfarinn var kannski aðeins of hreinskilinn eftir síðasta leik.

Leik Selfoss og Gróttu frestað vegna veirunnar
Kórónaveiran hefur sett strik í reikning Olís-deildar karla í handbolta eftir að smit greindist í herbúðum Selfyssinga. Leik liðsins gegn Gróttu sem átti að fara fram á morgun hefur verið frestað.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Valur 36-33 | Stjarnan á toppinn eftir sigur í toppslagnum
Í kvöld mættust Stjarnan og Valur í svokölluðum toppslag í TM höllinni. Stjarnan leiddi mest allan leikinn og átti sigurinn skilið. Lokatölur 36-33 Stjörnumönnum í vil.

Umfjöllun og viðtöl: Afturelding - Víkingur 28-19 | Afturelding lék sér að nýliðunum
Afturelding sigraði nýliða Víkings sannfærandi í 6. umferð Olís-deildar karla í kvöld. Lokatölur 28-19.

Gunnar Magnússon: Það munar rosalega þegar við fáum miklu fleiri bolta varða
Gunnar Magnússon, þjálfari Aftureldingar var að vonum sáttur með frammistöðu sinna manna er þeir sigruðu Víking í Olís-deild karla í handbolta í dag. Afturelding var með yfirhöndina allan leikinn og sigraði sannfærandi 28-19.

Stefán Árni og Ásgeir Örn hita upp fyrir umferð vikunnar í karlahandboltanum
Stefán Árni Pálsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson hituðu upp fyrir sjöttu umferð Olís deildar karla í handbolta í aukaþætti Seinni bylgjunnar en umferðin hefst í kvöld með tveimur leikjum og lýkur á morgun með hinum fjórum leikjunum.

„Hann er alveg jafnlélegur og áður en hann kom“
Túnisbúinn Hamza Kablouti var til umræðu í síðustu Seinni bylgju en hann er á sínu fyrsta tímabili hjá Aftureldingu í Olís deild karla í handbolta.

Gaupi hitti markvörðinn sem elskar Eurovision og fór í framboð
Guðjón Guðmundsson var í Eurovision fíling í síðustu Seinni bylgju og hitti þar einn virtasta Eurovision sérfræðing íslensku þjóðarinnar sem er líka alveg þrælgóður í marki í handbolta. Hér má finna nýjasta „.Eina“ með Gaupa.