Mörg dæmi um utanvegaakstur við Friðland að Fjallabaki Landverðir Umhverfisstofnunar við Friðland að Fjallabaki hafa undanfarna daga orðið varir við ummerki eftir mikinn utanvegaakstur við Sigölduleið. Innlent 18. september 2019 15:29
70 ára afmælishátíð Skógaskóla og Skógasafns Haldið var upp á 70 ára afmælis Skógaskóla og Skógasafns undir Austur Eyjafjöllum í dag að viðstöddu fjölmenni. Innlent 15. september 2019 19:30
Kvikugúll gæti sprungið með miklu sprengigosi en einnig verið friðsæll Kvikugúll í Kötlu gæti sprungið með gríðarlegu sprengigosi, líkt og gerðist í Öskju 1875, en gúlagos geta einnig verið tiltölulega friðsæl. Innlent 10. september 2019 20:30
Rísandi leynigúll í Kötlu gæti skýrt fjallhrap í Mýrdalsjökli Jarðvísindamenn hafa uppgötvað meiriháttar fjallhrap í vestanverðum Mýrdalsjökli þar sem fjallshlíð er að skríða fram um þrjá millimetra á dag. Innlent 9. september 2019 20:53
Sækja göngumann með opið beinbrot á fæti Björgunarsveitir og sjúkraflutningamenn á Suðurlandi eru nú við Gígjökul en tilkynning barst um klukkan hálf tvö í dag að göngumaður hefði dottið og slasast. Innlent 8. september 2019 14:53
Villtist tvisvar áður en útkallið barst Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út snemma á fimmta tímanum í dag vegna göngumanns sem hafði villst við Útigönguhöfða í Þórsmörk neðan við Morrinsheiði. Innlent 5. september 2019 18:55
Leiðir fólk um fjölbreytta menningu Suðurlands Guðni Ágústsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, mun stýra þremur ferðum um Suðurland með Ferðafélagi Íslands. Lífið 2. september 2019 07:00
Kjötsúpuhátíð á Hvolsvelli alla helgina Það verður mikiið um að vera um helgina á Hvolsvelli því þar fer fram árleg bæjarhátíð, sem kallast Kjötsúpuhátíð en þar er gestum og gangandi boðið upp á ókeypis kjötsúpu. Innlent 31. ágúst 2019 12:30
Báru slasaða konu rúman kílómetra á börum Konan, sem var á göngu, hrasaði og ökklabrotnaði. Innlent 29. ágúst 2019 21:49
Vara við vatnavöxtum á leið inn í Þórsmörk Vegna mikillar úrkomu undanfarna sólarhringa hafa ár á leiðinni inn í Þórsmörk og Bása vaxið talsvert og eru þær einungis taldar færar stórum hópferðabílum og mikið breyttum bifreiðum. Innlent 26. ágúst 2019 11:39
Hefja kornskurð óvenju snemma undir Eyjafjöllum eftir frábært hlýindasumar Kornuppskera stefnir í að verða óvenju góð sunnanlands í ár en kornskurður hófst í dag á Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum, tveimur til þremur vikum fyrr en venjulega. Innlent 23. ágúst 2019 22:40
Ólafur bóndi vill ekki að Eyjafjallajökull Erupts sé sýnd Sveinn hjá Plús film segir Ólaf bónda hafa undurfurðulegar hugmyndir um leikstjórn. Innlent 16. ágúst 2019 08:43
Skiljanlegt að fara í baklás Byggðarráð Rangárþings eystra hefur ítrekað athugasemdir vegna áforma stjórnvalda um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu. Innlent 12. ágúst 2019 06:00
Sótti slasaðan vélsleðamann á Eyjafjallajökul Þyrla Landhelgisgæslunnar var á leið að Skógafossi vegna umferðarslyss þar á tólfta tímanum í dag þegar hún var afboðuð og í staðinn send að sækja slasaðan vélsleðamann á Eyjafjallajökul. Innlent 8. ágúst 2019 13:30
Alvarlegur árekstur við Skógafoss Lokað hefur verið fyrir umferð um Suðurlandsveg nálægt Skógum vegna umferðarslyss. Olíuflutningabíll og fólksbíll rákust saman. Innlent 8. ágúst 2019 11:36
Slasaður maður á Fimmvörðuhálsi Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út á fjórða tímanum í dag vegna manns á Fimmvörðuhálsi sem er slasaður á fæti. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Landsbjörg. Innlent 5. ágúst 2019 17:25
Ekkert mál að sigla nýja Herjólfi til Þorlákshafnar Mikiil ánægja er hjá farþegum, sem hafa siglt með nýja Herjólfi á milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar síðustu daga. Innlent 28. júlí 2019 12:45
Munaðarlaus andarungi lifir lúxuslífi í sveitinni Andarunginn Tísti lifir lúxuslífi þar sem dekrað er við hann alla daga á sveitabæ í Rangárþingi eystra. Innlent 27. júlí 2019 20:00
Sunnlenskir bændur munu slá þrisvar í sumar "Þetta er einfaldlega lengsta sumar sem ég hef nokkurn tímann lifað og er ég bara rétt um hálfrar aldar gamall. Ég man aldrei eftir svona sumri á ævinni áður, það er hiti og notalegt veður á hverjum einasta degi og því fylgir náttúrulega afskaplega skemmtilegur og þægilegur heyskapur“, segir Arnar Bjarni Eiríksson, bóndi á bænum Gunnbjarnarholti í Skeiða og Gnúpverjahreppi. Innlent 27. júlí 2019 13:00
Alvarlega slasaður eftir slys á torfæruhjóli Ökumaður torfæruhjóls slasaðist alvarlega á fæti við Landeyjar í gær. Innlent 26. júlí 2019 09:58
Margir vanmeta aðstæður við Fimmvörðuháls Þrjú slys urðu á aðeins fimm dögum á Fimmvörðuhálsi fyrir skemmstu. Einn hinna slösuðu var Íslendingur og hinir tveir erlendir ferðamenn. Innlent 24. júlí 2019 06:00
Rann 300 metra áður en hann nam staðar á syllu Björgunarsveitir á Suðurlandi fengu útkall um klukkan sex í gær að maður væri í sjálfheldu á í Goðahrauni. Innlent 23. júlí 2019 11:24
Björguðu göngumanni úr sjálfheldu í flókinni aðgerð Björgunarsveitir á Suðurlandi björguðu í gærkvöldi manni sem rann við klifur og festi fótinn milli steina í Goðahrauni. Innlent 23. júlí 2019 06:34
Ný þyrla landhelgisgæslunnar kölluð út á Fimmvörðuháls Um var að ræða fyrsta útkall nýrrar þyrlu Landhelgisgæslunnar TF-GRÓ. Innlent 20. júlí 2019 18:18
Björgunarsveitir sækja slasaðan göngumann Björgunarsveitafólk er nú á leiðinni upp Fimmvörðuháls til að huga að manninum, en mögulega þarf að bera hann niður gönguleiðina eða upp á hálsinn til móts við sexhjól að því fram kemur í tilkynningu frá félaginu. Innlent 20. júlí 2019 16:29
Sækja slasaða konu á Fimmvörðuháls Á þriðja tímanum í dag voru björgunarsveitir á Suðurlandi kallaðar út vegna slasaðrar konu á Fimmvörðuhálsi. Innlent 18. júlí 2019 15:38
Rúta festist í Steinholtsá Óskað var eftir aðstoð björgunarsveita á öðrum tímanum í dag þegar rúta festist í Steinholtsá í Þórsmörk. Innlent 15. júlí 2019 14:55
Ólafur bóndi telur listrænt framlag Svenna í Plúsfilm lítið Heimilisfólkið á Þorvaldseyri telur myndefnið í Eyjafjallajökull Erupts að fullu í sinni eigu. Innlent 11. júlí 2019 12:45
Komu innlyksa gönguhópi yfir Hrunaá Fólkið kom vitlaust niður að ánni og var innlyksa við klettanef þar eftir að kona úr hópnum slasaði sig á fæti. Meiðsl hennar reyndust minni en talið var í fyrstu. Innlent 10. júlí 2019 21:30
Sækja gönguhóp í sjálfheldu á Kattarhryggjum Kona í hópnum er sögð slösuð á fæti og hópurinn treysti sér ekki lengra. Innlent 10. júlí 2019 20:15