Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Kólumbíska skólaskipið ARC Gloria er í heimsókn í Reykjavík og eins og margir borgarbúar hafa eflaust tekið eftir á heimleiðinni er um að ræða þriggja mastra barkskip sem er opinbert flaggskip kólumbíska sjóhersins. Innlent 14. ágúst 2026 19:15
Tilkynnt um alblóðugan mann á gangi í miðborginni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti nokkuð fjölbreyttum verkefnum í nótt og kom meðal annars alblóðugum manni til aðstoðar í miðborg Reykjavíkur. Tilkynnt var um manninn á gangi í miðbænum en hann reyndist hafa lent í óhappi. Innlent 14. ágúst 2026 06:46
„Biðin er dýrust“ Dæmi eru um að veitingamenn þurfi að bíða í heilt ár eftir því að geta hafið rekstur vegna deilna við borgina. Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði (SVEIT) kallar eftir skýrum og hröðum samskiptum. Viðskipti innlent 13. ágúst 2026 20:55
Frá hrifningu til vonbrigða: Svona upplifðu borgarbúar almyrkvann Líklega hefur nær hvert mannsbarn á landinu horft til himins í gær þegar almyrkvi færðist yfir landið. Upplifunin fólks var þó afar misjöfn. Á meðan sumir urðu djúpt snortnir fannst öðrum sjónarspilið ekki standa undir væntingum. Innlent 13. ágúst 2026 20:22
Rafmagnslaust í Mosfellsbæ og Grafarvogi Rafmagnslaust er í hluta Mosfellsbæ og Grafarvogs vegna bilunar en unnið er að viðgerð. Innlent 13. ágúst 2026 20:19
Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Maðurinn sem fannst látinn á skólalóð Austurbæjarskóla í gær var íslenskur. Dánarorsök liggur enn ekki fyrir en ekki er talið að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti. Innlent 12. ágúst 2026 17:23
Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Einstaklingur sem tengist trésmíðaverkstæði við Gylfaflöt í Grafarvogi þa sem eldur kviknaði í morgun var fluttur til að aðhlynningar á sjúkrahús. Búið er að slökkva eldinn sem byrjaði í útsogskefi fyrir vélar verkstæðisins. Innlent 12. ágúst 2026 11:20
Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Bílar frá öllum stöðvum slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu sinna nú útkalli vegna elds í byggingu við Gylfaflöt í Grafarvogi. Eldurinn er sagður í loftstokki við hlið trésmíðaverkstæðis. Innlent 12. ágúst 2026 10:25
Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Ferðaþjónustufyrirtækið Icelandia flytur í dag yfir 1.200 erlenda ferðamenn í 24 rútum út á Snæfellsnes til þess að fylgjast með almyrkva á sólu, einum stærsta viðburði sinnar tegundar hér á landi um árabil. Innlent 12. ágúst 2026 08:43
Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Almyrkvi á sólu sést á vestanverðu Íslandi síðdegis í dag. Við fylgjumst með í vaktinni hér á Vísi. Innlent 12. ágúst 2026 06:00
Gripinn með stolið kreditkort og handtekinn Lögreglu barst tilkynning um aðila sem reynt hafði að greiða með stolnu kreditkorti í verslun miðsvæðis í Reykjavík. Við eftirgrennslan lögreglu kom í ljós að aðilinn var með þýfi á sér úr annarri verslun og var hann handtekinn. Maðurinn var einnig með meint fíkniefni á sér. Innlent 11. ágúst 2026 17:27
Hafa borið kennsl á hinn látna Lögregla hefur borið kennsl á lík sem fannst við Austurbæjarskóla í Reykjavík laust fyrir klukkan 13 í dag. Innlent 11. ágúst 2026 17:00
Kveikt á götulýsingu í sólmyrkva á stofnbrautum Í samráði við lögregluna og vegna umferðaröryggis verður kveikt á götulýsingu á stofnbrautum á höfuðborgarsvæðinu þar sem leyfður umferðarhraði er 60 kílómetrar á klukkustund eða meiri á meðan almyrkvi á sólu gengur yfir á morgun, 12. ágúst. Innlent 11. ágúst 2026 14:57
Líkfundur við Austurbæjarskóla Laust fyrir klukkan 13 barst Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um mann við Austurbæjarskóla í Reykjavík, sem talið var að væri látinn. Þegar lögregla kom á vettvang reyndist svo vera. Ekkert bendir til þess að andlát hans hafi borið að með saknæmum hætti. Innlent 11. ágúst 2026 14:26
Þriðji maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald Þriðji maðurinn, erlendur ríkisborgari, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna meints manndráps á Kársnesi í Kópavogi sem nú er til rannsóknar. Áður höfðu tveir menn, einn íslenskur og annar erlendur, verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Innlent 11. ágúst 2026 09:14
Líkur á rigningu í Reykjavík þegar almyrkvinn gengur yfir Útlit er fyrir rigningu á höfuðborgarsvæðinu á meðan að almyrkvi verður á sólu síðdegis á morgun. Veðurfræðingur segir eitthvað rof kunna að verða í skýjum á Vestfjörðum og norðanlands. Innlent 11. ágúst 2026 08:38
Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni Fulltrúar frá ungliðahreyfingum allra stjórnmálaflokka landsins tóku þátt í Gleðigöngunni um helgina, nema ungum Miðflokksmönnum. Formaðurinn segir að í göngunni séu auglýstar hugmyndir sem þeir telji ekki „ástæðu til að lyfta á stall“. Innlent 10. ágúst 2026 20:00
„Við sem samfélag þurfum að standa keik á móti þessu“ Metþátttaka var í Gleðigöngunni sem var gengin um götur miðborgar Reykjavíkur á laugardaginn. Formaður Hinsegin daga segir ánægjulegt að sjá aukinn fjölda taka þátt í baráttunni en að samfélagið þurfi að standa saman gegn aðkasti í garð hinsegin fólks. Innlent 10. ágúst 2026 19:52
Helga Lára Haarde aðstoðar Hildi Helga Lára Haarde hefur verið ráðin aðstoðarmaður Hildar Björnsdóttur borgarstjóra. Hún hefur störf á skrifstofu borgarstjóra á næstu vikum. Innlent 10. ágúst 2026 17:44
Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Eigendur spænska veitingastaðarins La Barceloneta í Templarasundi munu skella staðnum í lás í hinsta sinn á sunnudag. Ástæðan er sú að þeir geta ekki leigt rýmið í Templarasundi áfram og þeir leita að nýju rými undir staðinn. Viðskipti innlent 10. ágúst 2026 16:38
Gat ekki hringt í 112 þegar alblóðugur maður bankaði upp á Alexandra Briem, Pírati og fyrrverandi borgarfulltrúi, gat ekki hringt í neyðarlínuna um helgina þegar tveir menn bönkuðu upp á hjá henni alblóðugir. Hún segir frá þessari reynslu í Facebook-færslu en mennirnir lentu í slysi nærri heimili hennar í miðbænum. Innlent 10. ágúst 2026 15:53
Báturinn fannst eftir nokkuð umfangsmikla leit Lítill skemmtibátur sem Landhelgisgæslan hóf eftirgrennslan um í morgun er fundinn. Áður en hann fannst var leit að bátnum orðin nokkuð umfangsmikil og björgunarsveitir höfðu verið kallaðar út. Þá var áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar í þann mund að taka á loft þegar samband náðist við áhöfn bátsins. Innlent 10. ágúst 2026 12:55
Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu verst allra fregna vegna rannsóknar á manndrápi sem mun hafa verið framið í heimahúsi á Kársnesi í Kópavogi í gær. Nokkrir hafa verið handteknir vegna málsins, en ekki liggur fyrir hversu margir þeir eru, og hvort farið verði fram á gæsluvarðhald á hendur þeim, eða einhverjum þeirra. Innlent 10. ágúst 2026 11:56
TF-SIF grennslast fyrir um skemmtibát á Sundunum Landhelgisgæslan hefur hafið eftirgrennslan um lítinn skemmtibát, sem siglt var út á Sundin í morgun, þar sem áhöfn hans hefur ekki látið vita af sér. Ekkert bendir til þess að báturinn sé sokkinn en eftirlits- og björgunarflugvélin TF-SIF hefur verið ræst út til að svipast um eftir bátnum. Innlent 10. ágúst 2026 11:41
Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Áhættuleikkonan Arna Magnea Danks lenti í mótorhjólaslysi á sunnudaginn, fótbrotnaði illa og þarf að fara í tvær aðgerðir. Hún var á mótorhjólinu í Gleðigöngunni á laugardaginn og var á leið með það í bílskúr þegar hún lenti í slysi á Sæbrautinni. Lífið 10. ágúst 2026 11:01
Árekstur á Suðurlandsbraut Tveggja bíla árekstur varð á Suðurlandsbraut um hálfníuleytið í kvöld. Einhverjir voru fluttir á sjúkrahús vegna hans. Innlent 9. ágúst 2026 21:56
Nokkrir handteknir vegna mannsláts Einn var handtekinn fljótlega eftir að alvarleg líkamsárás var framin í heimahúsi í Kópavogi í dag. Í kjölfarið voru nokkrir handteknir til viðbótar í aðgerðum lögreglu í austurhluta Reykjavíkur. Sá sem varð fyrir árásinni er látinn. Innlent 9. ágúst 2026 20:49
Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Mikill viðbúnaður lögreglu var við íbúðarhús sem er í verslunarkjarna við Gnoðarvog í Reykjavík um fimmleytið í dag, en þegar mest var voru minnst sex lögreglubílar á vettvangi. Þá voru að minnsta kosti tveir menn leiddir út í járnum. Innlent 9. ágúst 2026 17:32
Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Dyrum Kattakaffihússins, fyrsta og eina kattakaffihúss landsins, á Bergstaðastræti í miðborg Reykjavíkur verður lokað þann 23. ágúst næstkomandi fyrir fullt og allt eftir átta ára rekstur. Viðskipti innlent 9. ágúst 2026 14:35
Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Hópur manna kastaði grjóti í átt að grínista og leikkonu sem var á leið sinni heim af Gleðigöngunni í gær í Vesturbæ Reykjavíkur. Atvikið hafi ekki verið í fyrsta sinn sem hún lendir í slíkri árás en bakslag í málefnum hinsegin fólks sé raunverulegt og samfélaginu beri skylda að bregðast við. Innlent 9. ágúst 2026 14:18