Reykjavík

Reykjavík

Mannfjöldi: 138.772 (2025). Flatarmál: 244 ferkílómetrar.

Fréttamynd

VG vex og býður á stefnu­mót og Vor til vinstri leitar að fólki

Framboðið Vor til vinstri auglýsir nú eftir fólki sem hefur áhuga á að gefa kost á sér í komandi borgarstjórnarkosningum í Reykjavík. Sanna Magdalena Mörtudóttir fer fyrir framboðslistanum sem ætlar að bjóða fram í bandalagi við Vinstri græn í borginni í vor. Þá hefur félögum í Vinstri grænum í Reykjavík fjölgað um tæplega tuttugu prósent á síðustu vikum en VG heldur forval um efstu sæti sem falla í hlut VG á sameiginlegum lista flokkanna.

Innlent
Fréttamynd

Fá sálfræðitíma en vilja bætur

Reykjavíkurborg hyggst greiða fyrir tíu sálfræðitíma fyrir þá sem vistaðir voru á Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins árin 1974 til 1979. Í skýrslu um starfsemina er ekki hægt að fullyrða að börnin hafi sætt illri meðferð en þó hafi ýmislegt verið ábótavant. Nokkur þeirra hafa biðlað til forsætisráðherra um sanngirnisbætur.

Innlent
Fréttamynd

Ekki innritað í fjóra leik­skóla í Reykja­vík í haust

Ekki verður innritað í fjóra leikskóla í Reykjavík á þessu ári vegna framkvæmda. Leikskólarnir eru Hagaborg, Sæborg, Borg og Vinagerði. Foreldrar sem hafa valið leikskólana í umsókn eru hvattir til að breyta umsókn. Börn sem eru skráð í Hagaborg og Vonagerði verða færð annað.

Innlent
Fréttamynd

Byggja þarf 53 þúsund litlar í­búðir

Á höfuðborgarsvæðinu þarf að byggja 53.500 íbúðir sem eru 80 fermetrar og minni til að koma jafnvægi á húsnæðismarkaðinn. Miðað við húsnæði sem er í uppbyggingu og skipulagi verða byggðar alltof fáar íbúðir og til að bæta gráu ofan á svart þá mæta þær íbúðir sem eru byggðar ekki þeirri þörf sem er til staðar.

Umræðan
Fréttamynd

„Eins og við séum komin aftur á 1. mars 1989“

„Þetta er frelsismál og það er forræðishyggja að banna þetta. Þetta er algjört ofríki borgar þegar þú þarft að díla við borgaryfirvöld um hvað þú selur á vellinum. Á sama tíma og hægt er að kaupa þetta á menningarviðburðum þar sem sumir borgarfulltrúar eru, en ekki hér.“

Innlent
Fréttamynd

Bjórinn nú leyfður á vellinum

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun tillögur stýrihóps um breytingar á málsmeðferðarreglum um veitinga- og gististaði. Meðal breytinga er að áfengisveitingar eru leyfðar í tengslum við íþróttaviðburði að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.

Innlent
Fréttamynd

Mikið svif­ryk þrátt fyrir rykbindingu

Mikil loftmengun mældist í höfuðborginni í morgun þrátt fyrir að götur hafi verið rykbundnar fyrr í vikunni. Líklegt er að mengun verði áfram viðvarandi vegna bílaumferðar og veðuraðstæðna.

Innlent
Fréttamynd

Fékk „hjálp“ frá heilbrigðiseftirlitinu til að velja sig sjálfa

Lára Rúnarsdóttir, eigandi Móar stúdíó, hefur ákveðið að loka jóga-stúdíóinu í kjölfar þess að heilbrigðiseftirlitið stöðvaði starfsemina vegna tegundar leigurýmis. Hún segist líta á ágreining hennar við eftirlitið sem aðstoð við að velja sig sjálfa en finnur jafnframt fyrir sorg og söknuði.

Innlent
Fréttamynd

Dr. Gunni flytur í Fljótshlíðina í faðm Helenu

Gunnar Lárus Hjálmarsson, betur þekktur sem Dr. Gunni, hefur sett íbúð sína að Laugavegi 5 á leigu og er að flytja í Fljótshlíðina til kærustu sinnar, Helenu Hansdóttur Aspelund. Eftir átta ár hjá Þjóðskrá er hann hættur þar og hefur brátt störf í Grunnskólanum á Hellu sem leiðbeinandi og ritari.

Lífið
Fréttamynd

Menn sem murka lífið úr öndunum á Tjörninni

Samkvæmt samfélagsmiðlanotanda í Garðabæ þorir fólk varla lengur út af heimilum sínum í London vegna yfirgangs glæpalýðs og innflytjenda. Ég leit af Twitter og út um gluggann heima hjá mér þar sem ég bý í London. Allt virtist með kyrrum kjörum. En hvað var þetta? Gat verið að þarna færi maður sem murkaði lífið úr svani og lagði hann sér svo til munns?

Lífið
Fréttamynd

Mynduðu blátt P og minntust Pat­reks Freys

Haldinn var blár dagur í Borgarholtsskóla í dag til minningar um Patrek Frey Sveinsson sem lést í bílslysi á Miklubraut í síðustu viku. Seldar voru bláar vöfflur til styrktar fjölskyldu hans, nemendur og starfsfólk mættu í bláu og mynduðu stórt P á bílastæði skólans.

Lífið
Fréttamynd

Vala Matt selur á Ás­valla­götunni

Fjölmiðlakona Valgerður Matthíasdóttir, betur þekkt sem Vala Matt, hefur sett íbúð sína að Ásvallagötu 69 á sölu. Íbúðin er þriggja herbergja, 62,5 fermetrar og er ásett verð hennar 64,9 milljónir króna.

Lífið
Fréttamynd

Í fyrsta sinn á föstu á Valentínusar­daginn 52 ára

„Ég rankaði við mér fyrsta árið okkar saman og áttaði mig á því að ég hafði aldrei áður verið á föstu á Valentínusardaginn,“ segir popp-prinsinn Páll Óskar sem ætlar að eiga rómantískan dag á laugardag með hans heittelskaða Antonio en fyrst kemur hann fram á tónleikunum Allskonar ást í Laugarneskirkju.

Tónlist
Fréttamynd

Mínútuþögn á minningarleik um Pat­rek Frey

Mínútuþögn var í upphafi sérstaks íshokkíleiks í kvöld sem er spilaður til minningar um Patrek Frey Sveinsson, sautján ára dreng sem lést í bílslysi á Miklubraut í síðustu viku. Leikurinn hófst klukkan 19.45 í Skautahöllinni í Laugardal og var húsfyllir í höllinni. 

Lífið
Fréttamynd

Bílvelta í Ártúnsbrekku

Viðbragðsaðilar voru kallaðir út að bílveltu sem varð eftir tveggja bíla árekstur í Ártúnsbrekku síðdegis í dag. Engan sakaði.

Innlent
Fréttamynd

Tók þrjá­tíu sekúndur að fara inn og út

Tveir menn brutust inn á hárgreiðslustofu í Seljahverfi í Reykjavík í nótt og höfðu á brott með sér tölvu og rakvélar. Þeir flúðu vettvang á rafmagnshlaupahjólum. Eigandi segir aðkomuna í morgun að stofunni hafa verið ljóta.

Innlent
Fréttamynd

Ræða við vitni og hrað­akstur til skoðunar

Lögregla er búin að ræða við fjölda vitna vegna banaslyssins sem varð á Miklubraut síðustu helgi þar sem sautján ára gamall strákur lést. Rannsókn málsins gengur vel en er á þannig stað að ekki er unnt að veita frekari upplýsinga að svo stöddu.

Innlent
Fréttamynd

„Farið að líkjast vöruúrvalinu í sovéskri kjör­búð“

Nú þegar sjö flokkar hafa kynnt oddvita sína í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar vekur athygli að þar af eru fimm sem hafa með einum eða öðrum hætti tekið þátt í starfi Sjálfstæðisflokksins. Oddvitarnir hafa tekið misvirkan þátt í starfi Sjálfstæðisflokksins áður en þeir tóku oddvitasæti fyrir aðra flokka í Reykjavík, en þetta hefur vakið athygli netverja sem hafa tjáð sig um þessa forvitnilegu staðreynd á samfélagsmiðlum.

Innlent
Fréttamynd

Fimm frækin fylltu Landsbankahúsið

Listamennirnir Sindri Dýrason, Anna Jansdóttir, Jón Múli, Jón Sæmundur og Narfi Þorsteinsson héldu málverkasýningu í gamla Landsbankahúsinu í samstarfi við Vetrarhátíð Reykjavíkurborgar föstudaginn 5. febrúar. Um fimm hundruð gestir mættu til að dást að listinni.

Menning
Fréttamynd

Hin 25 ára Silja Sól­ey odd­viti Sósíal­ista í Reykja­vík

Sósíalistafélag Reykjavíkur hefur tilkynnt um hverjir verma efstu tíu sæti á lista Sósíalista í Reykjavík í komandi borgarstjórnarkosningum. Oddviti flokksins er hin 25 ára gamla Silja Sóley Birgisdóttir, stuðningsfulltrúi. Líkt og kunnugt er hyggst sitjand oddviti Sósíalista í Reykjavík bjóða fram undir formerkjum annars lista, Vors til vinstri í komandi kosningum. 

Innlent
Fréttamynd

Skora á borgina að virða íbúalýðræði og koma í veg fyrir „þrá­látar deilur“

Hópur íbúa í hverfi 108 í Reykjavík hafa sent frá sér yfirlýsingu í kjölfar íbúafundar sem haldinn var í síðustu viku vegna fyrirhugaðar opnunar kaffistofu Samhjálpar við Grensásveg þar sem þess er krafist að borgaryfirvöld finni starfseminni aðra og meira viðeigandi staðsetningu. Um tvö hundruð manns hafi mætt á fundinn og það hafi verið augljós skoðun íbúa á fundinum að staðsetningin sé óheppileg. Því sé skorað á Reykjavíkurborg að „virða íbúalýðræði og koma í veg fyrir þrálátar deilur í framtíðinni,“ eins og það er orðað í yfirlýsingunni.

Innlent