

Samherjaskjölin
30 þúsund skjöl um viðskiptahætti Samherja í Namibíu voru birt á vef WikiLeaks. Á sama tíma birtist umfjöllun um málið í þættinum Kveik og hjá Stundinni.

„Brynjar, með fullri virðingu fyrir þér, sem talsmanni Samherja“
Lögmennirnir Sveinn Andri Sveinsson og Brynjar Níelsson alþingismaður er komnir í hár saman vegna frétta sem tengjast, eða tengjast ekki eftir atvikum, Samherja.

Namibískir fjölmiðlamenn senda frá sér harðorða yfirlýsingu
Í tilkynningu frá samtökum blaðamanna í Namibíu (NAMPU) er harmað að Ísland sé nú óðum að stefna inn á lista yfir lönd hvar blaðamönnum er ekki óhætt að sinna starfi sínu.

DNB sektað um sex milljarða vegna Samherjamálsins
Norska fjármálaeftirlitið hefur sektað DNB-bankann um 400 milljónir norska króna, um sex milljarða íslenskra króna, vegna brota á reglum um peningaþvætti í tengslum við Samherjamálið.

Fordæma að Samherji hafi fengið að birta umdeilda auglýsingu á mbl.is
Stjórn Blaðamannafélags Íslands (BÍ) fordæmir að Árvakur, útgáfufélag mbl.is, hafi birt auglýsingu frá Samherja sem var hluti af herferð fyrirtækisins gegn fréttamanninum Helga Seljan.

Frelsi fjölmiðla
Einhver mikilvægasta auðlind í hverju lýðræðissamfélagi eru frjálsir fjölmiðlar þar sem fagleg og gagnrýnin umfjöllun veitir valdamönnum aðhald og heldur almenningi upplýstum.

Meint klámhögg Brynjars og meintur grátur Guðmundar
Þingmenn takast hart á um umdeild ummæli sem féllu þar sem heiðurslaun listamanna voru notuð til dæmis. Sem segir talsvert um átakalínur í íslenskri pólitík, ef að er gáð.

Katrín: Stórfyrirtæki sem misbjóða samfélaginu missa virðinguna
Mennta- og menningarmálaráðherra segir Samherja hafa gengið of langt í viðbrögðum sínum við umfjöllun um fyrirtækið.

Brynjar segir engin heiðurslaun hugsanleg án Samherja og annarra sambærilegra fyrirtækja
Brynjar Níelsson alþingismaður sendir Bubba Morthens tóninn í pistli þar sem hann rís upp Samherja til varnar.

Gagnsæi og heiðurslistamenn
Ég hef stundum fjallað um þá tilhneigingu vinstri manna að stofna félög með göfug markmið í pólitískum tilgangi. Mörg þeirra eiga það sammerkt að tala helst niður land og þjóð og skaða með því hagsmuni okkar allra.

Takk Bubbi og Ásgeir
Baráttunni gegn spillingu hefur borist góður liðsauki á síðustu dögum. Hundruð ef ekki þúsund Íslendinga hafa krafist aðgerða og úrbóta, að stjórnvöld taki á spillingu á Íslandi af festu og hrifsi völdin úr höndum fjársterkra hagsmunahópa.

Ég á þetta, ég má þetta?
Skilaboðin eru skýr. Ekki lenda upp á kant við útgerðarrisann Samherja. Samherjamenn virðast ekki veigra sér við því að hjóla af fullum þunga í einstaka starfsmenn fjölmiðla og eftirlitsstofnana, sem eru að sinna starfi sínu fyrir okkur hin. Fyrir utan kærur til lögreglu ber kostaður áróður á samfélagsmiðlum þess merki að þar sé útgerðarrisinn að bera tennurnar fyrir þingkosningarnar í haust.

Lilja telur Samherja hafa gengið of langt
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, segir Samherja hafa gengið of langt í viðbrögðum sínum við umfjöllun Ríkisútvarpsins um fyrirtækið.

Samherjar Samherja og skrímslið sem stjórnmálastéttin bjó til
„Það sem slær mann sérstaklega er þögn þingmanna þjóðarinnar sem klárlega heyra og sjá það sem er að gerast,“ segir Bubbi Morthens í pistli sínum um yfirgang Samherja og árásirnar á Helga Seljan.

Segist hafa verið varaður við því að tjá sig um Samherjamálið
Bubbi Morthens segir vefþætti útgerðarfélagsins Samherja, þar sem félagið svarar umfjöllun Ríkisútvarpsins um meint brot Samherja, ískaldan áróður þar sem hamast og sparkað sé í íslenska fréttamenn.

„Langvarandi stríðsrekstur gegn samfélaginu“
Íslandsdeild Transparency International tekur í nýrri ályktun undir áhyggjur Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra af framferði útgerðarinnar Samherja í tengslum við rannsókn bankans á útgerðinni.

Vinur minn Anfinn í tröllahöndum
Síðasta vetrardag, sá ég allt í einu minn gamla vin Anfinn Olsen birtast í sjónvarpinu hér heima. Eins og hann kom fyrir í sjónvarpinu þekki ég ekki minn mann. Hann var frekar utan við sig og tafsaði í svörum, eitthvað sem er ólíkt honum. Sá Anfinn sem ég þekki er skarpur og snar en þegir ef hann hefur ekkert til málanna að leggja.

Lækka Ísland aftur og vísa til herferðar Samherja
Áfram lækkar Ísland á fjölmiðlafrelsislista Blaðamanna án landamæra og er nú í 16. sæti á lista alþjóðasamtakanna en var í því 15. á síðasta ári.

Helgi Seljan segir Sigrúnu Stefánsdóttur bullandi vanhæfa
Sjónvarpsmaðurinn Helgi Seljan krefst endurupptöku á umdeildum dómi siðanefndar RÚV sem taldi, eftir kæru Samherja, Helga hafa þverbrotið siðareglur stofnunarinnar.

Kvörtunum Samherja vegna saksóknara og dómara vísað frá
Nefnd um dómarastörf og eftirlitsnefnd með störfum lögreglu hafa vísað frá tveimur kvörtunum Samherja vegna annars vegar dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur og hins vegar saksóknara hjá embætti héraðssaksóknara.

Líkir árásum Samherja á Helga Seljan við ofbeldi
Rakel Þorbergsdóttir, fréttastjóri Ríkisútvarpsins (RÚV), líkir persónulegum árásum útgerðarrisans Samherja á Helga Seljan, fréttamann RÚV, við ofbeldi sem ekki verði við unað. Ekki sé hægt að slíta ummæli Helga á samfélagsmiðlum sem siðanefnd taldi óviðeigandi úr samhengi við aðför fyrirtækisins að honum.

Stjórn RÚV ætlar ekki að bregðast við erindi Samherja
Stjórn Ríkisútvarpsins ohf. ætlar ekki að bregðast við erindi Samherja sem hefur krafist þess að Helgi Seljan fréttamaður fjalli ekki um Samherja.

Gamla siðanefndin taldi ekki búandi við siðareglur RÚV
Gunnar Ingi Jóhannsson hæstaréttarlögmaður var formaður siðanefndar Ríkisútvarpsins en nefndin hætti störfum vegna vankanta á siðareglunum.

Hræsni góða fólksins
Fólkið sem sem stundum er nefnt „góða fólkið“ í opinberri umræðu hér á landi er oft á tíðum alls ekki gott eða vel innrætt og oft hreinir hræsnarar upp til hópa.

Siðareglur RÚV voru tifandi tímasprengja
Ríkisútvarpið ætlar að ráðast í endurskoðun á siðareglum sínum í kjölfar dóms siðanefndar yfir Helga Seljan.

Stjórn Félags fréttamanna: „Samherji kastaði stóru neti og veiddi eina siðanefnd“
Stjórn Félags fréttamanna, stéttafélags fréttamanna á RÚV, sendi í dag frá sér ályktun vegna niðurstöðu siðanefndar RÚV vegna kæru Samherja á hendur ellefu fréttamönnum. Þar lýsir stjórnin vonbrigðum með niðurstöðuna og segist hafa áhyggjur af því hvaða afleiðingar niðurstaðan geti haft á gagnrýna fjölmiðlun.

Helgi Seljan þverbraut siðareglur Ríkisútvarpsins ohf
Siðanefnd Ríkisútvarpsins hefur dæmt í máli Samherja hf. gegn Helga Seljan og tíu öðrum starfsmönnum Ríkisútvarpsins. Helgi er dæmdur sekur um brot gegn siðareglum stofnunarinnar en hin tíu sleppa hins vegar með skrekkinn. Brot Helga teljast alvarleg.

Færeyski skattstjórinn segist ekkert kannast við staðhæfingu Samherja
Færeyski skattstjórinn segist ekki hafa sagt Samherja að þeir væru ekki til rannsóknar í Færeyjum. Útgerðarfélagið hafnaði því í dag að það væri til rannsóknar. Skattstjórinn segir ljóst að um einhver konar misskilning sé að ræða.

Samherji segist ekki til skattrannsóknar í Færeyjum
Útgerðarfélagið Samherji hafnar því að það sé til rannsóknar skattayfirvalda í Færeyjum. Það sakar Ríkisútvarpið um að snúa út úr ummælum yfirmanni færeyska skattsins í frétt sinni í gær.

Þorsteinn Már kærir Jóhannes vegna „fullyrðinga um tilraun til manndráps“
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, hefur lagt fram kæru hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu á hendur Jóhannesi Stefánssyni uppljóstrara fyrir „rangar sakargiftir vegna fullyrðinga um tilraun til manndráps og frelsissviptingar.“ Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samherja nú síðdegis.

Safna ellefu milljónum til að mæta heilsuáskorunum Jóhannesar
Komið hefur verið á fót GoFundMe síðu til styrktar Jóhannesi Stefánssyni fyrrverandi starfsmanni Samherja í Namibíu til að fjármagna læknismeðferð sem hann segist þurfa á að halda.