Síldarvinnslan undirbýr skráningu í Kauphöll Stjórn Síldarvinnslunnar hefur ákveðið að hefja undirbúning að skráningu hlutabréfa félagsins á aðalmarkað Nasdaq Iceland og hefur ráðið Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans til að hafa umsjón með verkefninu. Viðskipti innlent 4. febrúar 2021 12:42
Brim dæmt til að greiða fyrrverandi háseta fjórar milljónir króna Sjávarútvegsfyrirtækið Brim hefur verið dæmt til að greiða háseta sem fór í meðferð í Svíþjóð tæpar fjórar milljónir króna í svokölluð staðgengilslaun fyrir tveggja mánaða tímabil. Innlent 2. febrúar 2021 15:13
Fyrstu loðnunni landað á Íslandi eftir þriggja ára hlé Grænlenska skipið Polar Amaroq landaði tæplega 700 tonnum af frystri loðnu á Eskifirði um helgina. Þessi loðnulöndun markar tímamót því hún er sú fyrsta hér á landi í tæplega þrjú ár. Loðnan veiddist úr kvóta Grænlendinga á Íslandsmiðum. Viðskipti innlent 1. febrúar 2021 18:32
Ekki með virka COVID-sýkingu Skipverjinn sem fékk jákvæða niðurstöðu úr seinni skimun reyndist ekki vera með virka COVID-sýkingu. Innlent 1. febrúar 2021 13:43
Sitja fastir í sóttkví um borð í bát eftir að skipverji greindist með veiruna Níu skipverjar sitja nú í sóttkví um borð í línubátnum Fjölni GK sem liggur við bryggju í Grindavík eftir að skipverji greindist með covid-19. Skipverjinn sem um ræðir hafði nýverið komið til landsins frá útlöndum og hafði greinst neikvæður í fyrri sýnatöku á landamærum. Hann var þó nýmættur til vinnu og búinn að heilsa þremur öðrum skipverjum þegar hann fékk svar um að sýni greindist jákvætt eftir seinni skimun. Innlent 31. janúar 2021 20:34
Fundu loðnu mjög víða við landgrunnsbrúnina Umfangsmestu loðnuleit til þessa á Íslandsmiðum lýkur í kvöld þegar rannsóknarskipið Árni Friðriksson klárar síðasta leitarlegg sinn á Víkurál, syðst á Vestfjarðamiðum, djúpt vestur af Kollsvík. Tvö rannsóknaskip Hafrannsóknastofnunar og sex fiskiskip frá útgerðum stefna síðan öll til lands og tvö þegar lögst að bryggju. Viðskipti innlent 30. janúar 2021 21:35
Eiginleg sakamálarannsókn ekki hafin vegna kæru Samherja Karl Ingi Vilbergsson, lögreglustjórinn á Vestfjörðum, segir að enn sé verið að afla gagna frá Seðlabankanum vegna kæru Samherja og Þorsteins Más Baldvinssonar á meintum brotum nokkurra þáverandi starfsmanna Seðlabankans í tengslum við rannsókn á ætluðum brotum Samherja á lögum og reglum um gjaldeyrismál. Innlent 29. janúar 2021 15:21
Endurráðinn níu mánuðum eftir að hann hætti af persónulegum ástæðum Guðmundur Kristjánsson hefur verið endurráðinn sem forstjóri sjávarútvegsfyrirtækisins Brims en hann lét af störfum sem forstjóri í lok apríl á síðasta ári. Viðskipti innlent 29. janúar 2021 12:27
Verja tuttugu milljónum króna á dag í loðnuleit í von um tugmilljarða vertíð Átta skip leita nú ákaft að loðnu á Íslandsmiðum, tvö rannsóknaskip Hafrannsóknastofnunar og sex fiskiskip frá útgerðum, í umfangsmestu loðnuleit til þessa. Hver leitardagur kostar um tuttugu milljónir króna. Viðskipti innlent 28. janúar 2021 21:45
Átta skip í ákafri loðnuleit: „Nú á hún ekki að sleppa“ Loðnuleitin sem hófst um síðustu helgi er orðin mun umfangsmeiri en áður var gert ráð fyrir. Í fyrstu var miðað við þrjú til fjögur skip en núna eru þau orðin átta talsins, tvö rannsóknarskip Hafrannsóknastofnunar og sex uppsjávarveiðiskip frá útgerðum; öll að leita loðnunnar. Viðskipti innlent 27. janúar 2021 17:32
Kynni mín af íslenskri útgerð í Namibíu Fyrir nokkrum árum vann ég í fyrirtæki sem þróaði lausnir til bættrar orkunýtingu fyrir stórnotendur, bæði til sjós og lands, þar sem helstu viðskiptavinirnir voru útvegsfyrirtæki. Skoðun 27. janúar 2021 10:00
Sameign þjóðarinnar verður að sameign samfélaga Svo lengi sem ég man eftir mér hefur kvótakerfið og hinir ýmsu gallar þess verið til umræðu. Í pottunum, í fjölskylduboðum, í pontu Alþingis. Engan skyldi því undra að þegar pólitíkusar fara að lofa breytingum á kvótakerfinu rétt fyrir kosningar þá rúlla margir augunum. Skoðun 26. janúar 2021 15:00
Ráðherra fagnar að tekist hafi að afstýra loðnubresti Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, gerði á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun grein fyrir því að hann hefði í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar undirritað reglugerð um veiðar á loðnu. Innlent 26. janúar 2021 10:34
Sigldi utan í Elliðaey Skuttogarinn Dala Rafn VE sigldi utan í Elliðaey við komu til hafnar í Vestmannaeyjum í gærkvöldi. Eyjafréttir greina frá óhappinu en málsatvik eru sögð óljós að svo stöddu. Innlent 25. janúar 2021 18:52
Róa lífróður eftir að stjórnandi „gerði skandal sem við vissum ekki um“ Jón Guðbjartsson, stjórnarformaður rækjuverksmiðjunnar Kampa á Ísafirði, segir að bókhald fyrirtækisins hafi „byggst á skáldskap í allt of langan tíma.“ Nú sé unnið að því að reyna að bjarga félaginu. Viðskipti innlent 25. janúar 2021 11:50
Loðnuráðgjöf leiðrétt til hækkunar Loðnuráðgjöf vegna vertíðarinnar 2020/21 hefur verið leiðrétt eftir að villa kom í ljós við úrvinnslu gagna við endurútreikninga loðnumælinga hjá Hafrannsóknastofnun. Innlent 24. janúar 2021 18:22
Loðnustofninn metinn nægilega sterkur til að hefja loðnuveiðar Loðnuveiðar íslenskra skipa geta hafist að nýju eftir tveggja ára hlé, samkvæmt nýju mati Hafrannsóknastofnunar á ástandi loðnustofnsins, sem birt var í dag, eftir mælingar á loðnutorfum sem fundust á Austfjarðamiðum um síðustu helgi. Stofnunin leggur til að veiðikvóti verði aukinn úr 22 þúsund tonnum upp í 54.200 tonn, sem dugar til að hægt verði að gefa út kvóta til íslenskra skipa. Viðskipti innlent 22. janúar 2021 17:23
Hagkvæmt kvótakerfi og nýliðun Sókn í fiskistofna var breytt hér á landi seint á síðustu öld og útgerðarmönnum bannað að veiða meira en stofnar þoldu og urðu því að draga verulega úr sókn. Skoðun 22. janúar 2021 17:01
Sex vilja gegna embætti forstjóra Hafró Alls sóttu sex um embætti forstjóra Hafrannsóknastofnunar sem auglýst var þann 19. desember 2020. Umsóknarfrestur rann út þann 19. janúar síðastliðinn, en í hópi umsækjenda er núverandi forstjóri, Sigurður Guðjónsson. Innlent 22. janúar 2021 13:35
Fyrsta loðnan veiðist á Íslandsmiðum í þrjú ár Fyrsta loðnan sem veiðist á Íslandsmiðum í þrjú ár fékkst á Austfjarðamiðum í gærkvöldi þegar grænlenska skipið Polar Amaroq fékk milli tuttugu og þrjátíu tonn í einu kasti. Síldarvinnslan í Neskaupstað á þriðjungshlut í grænlensku útgerðinni en yfirmenn um borð eru íslenskir. Viðskipti innlent 21. janúar 2021 20:31
Kampi á Ísafirði í greiðslustöðvun og starfsmanni sagt upp Rækjuvinnslan Kampi á Ísafirði fékk í morgun greiðslustöðvun hjá Héraðsdómi Vestfjarða til að komast til botns í fjárhagsvanda fyrirtækisins. Fjármálastjóra fyrirtækisins var sagt upp störfum í desember. Stjórnarformaður Kampa segir stjórnina hafa fengið áfall þegar slæm fjárhagsstaða blasti við í lok árs. Viðskipti innlent 21. janúar 2021 12:52
Klárir að taka loðnunótina um borð og halda til veiða Skipstjórinn sem fann þykkar loðnutorfur á Austfjarðamiðum um helgina segir áhöfnina tilbúna að hefja veiðar. Búist er við að það skýrist á morgun hvort Hafrannsóknastofnun gefi grænt ljós á loðnuvertíð. Viðskipti innlent 20. janúar 2021 21:02
Segir mikilvægt að kanna einnig hvort loðna sé fyrir Norðurlandi Loðnuleitin á Austfjarðamiðum hefur haldið áfram í dag. Uppsjávarveiðiskipin þrjú, Ásgrímur Halldórsson, Polar Amaroq og Bjarni Ólafsson, með starfsmenn Hafrannsóknastofnunar um borð í tveimur fyrrnefndu, hafa verið að skanna hafsvæðið norður með landgrunnskantinum út af Austfjörðum. Viðskipti innlent 19. janúar 2021 13:52
Skipstjórinn segir töluvert af loðnu út af Austfjörðum Albert Sveinsson, skipstjóri Víkings AK-100, uppsjávarveiðiskips Brims, kveðst ekki í vafa um að mikið sé núna af loðnu á Austfjarðamiðum. Eftir að togarar urðu varir við loðnu þar á laugardag var Albert fenginn til að fara yfir svæðið á Víkingi. Viðskipti innlent 18. janúar 2021 15:06
Þrjú skip til loðnumælinga eftir að torfur sáust á Austfjarðamiðum Þrjú loðnuskip hafa verið send til loðnumælinga út af miðjum Austfjörðum eftir að fréttist af loðnutorfum á stóru svæði um helgina. Sérfræðingar Hafrannsóknastofnunar eru um borð til að kanna hvort þarna séu nýjar loðnugöngur á ferð. Viðskipti innlent 18. janúar 2021 12:21
Skipverjum létt að málinu sé lokið en furða sig á refsingunni Skipverjum á Júlíusi Geirmundssyni sem smituðust af Covid-19 í veiðiferð um borð í skipinu er létt að máli vegna veikinda þeirra sé lokið en óvissan hefur verið þeim þungbær. Einhverjir þeirra séu þó undrandi á dómi skipstjóra togarans. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Verkalýðsfélagi Vestfjarða. Innlent 16. janúar 2021 09:30
Skipstjóri Júlíusar Geirmundssonar sviptur réttindum í fjóra mánuði Sveinn Geir Arnarsson, skipstjóri á Júlíusi Geirmundssyni, játaði sök þegar mál lögreglustjórans á Vestfjörðum gegn honum var þingfest fyrir Héraðsdómi Vestfjarða í dag. Innlent 14. janúar 2021 14:08
Vinnslan hefst á ný á Seyðisfirði Vinnsla hófst á ný í frystihúsi Síldarvinnslunnar á Seyðisfirði en hún féll niður þegar stóra skriðan féll þar 18. desember síðastliðinn. Viðskipti innlent 13. janúar 2021 12:05
Grænlendingar semja um hærri greiðslur fyrir kvóta Grænlendingar hafa endurnýjað samninga við Evrópusambandið sem tryggja þeim andvirði þriggja milljarða íslenskra króna í árlegar tekjur af fiskveiðiheimildum í lögsögu Grænlands. Fyrirtæki í eigu Íslendinga er meðal þeirra sem nýta kvótana. Viðskipti erlent 13. janúar 2021 09:09
Forstjóri Hafrannsóknastofnunar heldur í vonina um loðnuvertíð Ekki er grundvöllur til að hefja loðnuveiðar þar sem mun minna mældist af loðnu í nýafstöðnum loðnuleiðangri en í desember. Sigurður Guðjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, er þó ekki tilbúinn að afskrifa loðnuvertíð í vetur. Viðskipti innlent 12. janúar 2021 20:38