Bríet, Valdimar og Elín Hall meðal hæstu styrkhafa Tónlistarsjóður, sem var stofnaður í fyrra, hefur veitt 77 milljónum til 74 verkefna í fyrri úthlutun ársins 2025. Meðal þeirra sem hlutu hæstu styrki ársins voru Bríet, Celebs, Elín Hall og Valdimar. Tónlist 12. janúar 2025 11:03
Kostnaður við nýja sánuklefa í Vesturbæ um 130 milljónir Reykjavíkurborg stefnir á að bjóða út framkvæmdir vegna endurbóta á sánuklefum í Vesturbæjarlaug og aðgengi fyrir hreyfihamlaða. Framkvæmdin felur í sér að gera endurbætur á núverandi sánuklefum og rýmum tengdum þeim. Einnig á að bæta aðgengi fyrir hreyfihamlaða með nýrri lyftu og skábraut. Niðurrif í Vesturbæjarlaug er þegar hafið. Innlent 12. janúar 2025 09:03
Kristrún á forsíðu Guardian: „Velferðarríki með ríkissjóð réttu megin við núllið“ Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, var í viðtali hjá The Observer á vef Guardian. Þar ræðir hún um mótun nýrrar ríkisstjórnar, móteitrið við öfgahægristefnu og nýja leið til að stjórna. Innlent 12. janúar 2025 07:55
Vill að hægt verði að afturkalla alþjóðlega vernd Dómsmálaráðherra ætlar að beita sér fyrir því að hægt verði að afturkalla alþjóðlega vernd þeirra sem brjóta alvarlega af sér hér á landi. Innlent 11. janúar 2025 22:34
Þungt hljóð í sálfræðingum sem felldu samning í gær Sálfræðingar í opinberri þjónustu felldu í gær kjarasamning með 61,2 prósent greiddra atkvæða. Kjörsókn var 76,7 prósent. Pétur Maack Þorsteinsson, formaður Sálfræðingafélags Íslands, segir hljóðið þungt í sálfræðingum sem starfa í opinberri þjónustu. Hann segir félagið nú stefna á að ræða við félagsmenn til að ákvarða næstu skref. Innlent 11. janúar 2025 16:46
Valgeir afhenti Ingu textabrot úr laginu Sigurjón digri Valgeir Guðjónsson tónlistarmaður og Ásta Kristrún Ragnarsdóttir, námsráðgjafi og rithöfundur, afhentu formönnunum þremur í ríkisstjórn ljóðagjöf fyrir fund ríkisstjórnarinnar í gær. Textabrot úr laginu Sigurjón digri féll vel í kramið hjá formanni Flokki fólksins, Ingu Sæland. Lífið 11. janúar 2025 15:05
Hjólað inní framtíðinna Nýverið var skattaafsláttur vegna kaupa á reiðhjólum feldur úr gildi, og óvíst er hvernig fyrirhugað styrkjakerfi Orkusjóðs mun líta út til kaupa á rafmagnshjólum. Skoðun 11. janúar 2025 14:31
Framsækin ríkisstjórn í umhverfis- og auðlindamálum: Nýi stjórnarsáttmálinn. Nú tökum nýju ríkisstjórnina á orðinu og styðjum hana til góðra verka. Í stefnu hennar má sjá margt jákvætt um auðlindir og umhverfismál. Það verður erfitt fyrir nýju stjórnina að ná þessu fram, en það er engin afsökun - því erindin eru ákaflega brýn. Hér þarf einbeitta pólitíska sýn og samfélagsvitund í mikilli tímaþröng. Skoðun 11. janúar 2025 13:33
Sjálfstæðismenn ræða seinkun en Framsókn skoðar að flýta Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins kemur saman á mánudag, þar sem til umræðu verða umdeildar hugmyndir um að fresta landsfundi. Á sama tíma hafa Framsóknarmenn til umræðu að flýta flokksþingi sínu. Innlent 11. janúar 2025 12:24
Þórdís vill ekki fresta landsfundi Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins vill ekki fresta landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Það segir hún í aðsendri grein í Morgunblaðinu. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingkona flokksins, sagði í aðsendri grein í gær að nauðsynlegt væri að slá ekki kynslóðaskiptum í flokknum á frest og að flokkurinn myndi sér stefnu til framtíðar. Innlent 11. janúar 2025 09:46
Mönnun tryggð út febrúar en staðan óboðleg Fulltrúar sveitarfélaga í Rangárvallasýslu lýsa yfir verulegum áhyggjum af stöðu heilbrigðismála í sýslunni og ítreka að núverandi staða og óvissa sé óboðleg 4519 íbúum sýslunnar og öðrum gestum hennar. Innlent 10. janúar 2025 16:52
Fjölga leikskólaplássum um allt að 300 í Reykjavík Reykjavíkurborg hefur gengið til viðræðna við fasteignafélögin Heima og Laka um uppbyggingu tveggja leikskóla í Reykjavík. Annars vegar nýjan leikskóla í Elliðaárdal og hins vegar stækkun leikskólans Múlaborgar í Ármúla. Leikskólarnir eiga að vera tilbúnir til notkunar í janúar á næsta ári. Innlent 10. janúar 2025 13:00
Framlengir stuðningskerfi um ár en ræðst í endurskoðun Logi Már Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra hyggst leggja fram frumvarp um áframhaldandi stuðning til einkarekinna fjölmiðla. Innlent 10. janúar 2025 12:58
Vísvita villandi fréttaflutningur Morgunblaðsins? Blaðamenn Morgunblaðsins hafa verið ræstir út á yfirsnúningi til að reyna að skapa þá ásýnd að landsbyggðarþingmenn séu að sækja sér aukapening með því að skrá lögheimili sín í þeim kjördæmum sem þeir eru þingmenn fyrir. Skoðun 10. janúar 2025 12:02
Play telur ríkið geta sparað sér tugi milljóna Sparnaðarráð til handa nýrri ríkisstjórn halda áfram að hrúgast inn í samráðsgátt stjórnvald og telja nú vel á þriðja þúsund. Meðal þeirra sem ráðleggja ríkisstjórninni er flugfélagið Play, sem telur ríkið geta sparað sér verulega fjármuni með því að skipta heldur við Play en Icelandair. Viðskipti innlent 10. janúar 2025 11:40
Ábyrgðin er borgarstjóra Skipulagsskelfingin við Álfabakka er skýr birtingarmynd bágrar fjárhagsstöðu Reykjavíkurborgar. Innherji 10. janúar 2025 10:36
Stækka leikskólann Múlaborg við Ármúla Reykjavíkurborg hyggst ganga til til viðræðna við fasteignafélagið Heima um að stækka húsnæði leikskólans Múlaborgar sem stendur við Ármúla 6. Áætlað er að stækkun leikskólans muni skila sér í fjölgun plássa fyrir 48 til 120 börn. Innlent 10. janúar 2025 10:06
Hættir sem formaður Hagsmunasamtaka heimilanna Ásthildur Lóa Þórsdóttir, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna, hefur sagt sig úr stjórn samtakanna og þar með frá formennsku. Innlent 10. janúar 2025 09:00
Nauðsynlegt að slá ekki kynslóðaskiptum í Sjálfstæðisflokknum á frest Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir mikilvægt að framtíð forystu Sjálfstæðisflokksins verði ekki slegið á frest. Hún segir mikilvægt að Sjálfstæðismenn taki höndum saman og vinni „farsællega að þeim kynslóðaskiptum sem nauðsynleg eru til að flokkurinn verði á ný öflugasta stjórnmálaafl landsins“. Þetta segir Áslaug Arna í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag. Innlent 10. janúar 2025 08:41
Framsóknarmenn í Reykjavík vilja flýta flokksþingi Kjördæmissamband Framsóknarmanna í Reykjavíkurkjördæmunum hefur samþykkt að óska eftir miðstjórnarfundi hjá flokknum í þeim tilgangi að flýta megi flokksþingi. Innlent 10. janúar 2025 07:37
Útsýnið úr útsýnisíbúðinni verður að engu Íbúi í Smyrilshlíð í Hlíðarendahverfi hefur miklar áhyggjur af fyrirhuguðu fimm hæða húsi nokkrum metrum frá íbúð hennar. Íbúð sem áður var auglýst sem útsýnisíbúð verði án sólarljóss allan ársins hring breyti borgin ekki áformum. Innlent 9. janúar 2025 21:58
Nýr leikskóli rís í Elliðaárdal Nýr leikskóli mun rísa við Rafstöðvarveg í Elliðaárdal og stefnt er á að hann verði tilbúinn til notkunar á fyrsta ársfjórðungi næsta árs. Reykjavíkurborg mun reka leikskólann. Innlent 9. janúar 2025 17:55
Rektor MH tekur við skólamálum borgarinnar Borgarráð samþykkti í dag ráðningu Steins Jóhannssonar í starf sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar. Steinn hefur gegnt stöðu rektors Menntaskólans við Hamrahlíð undanfarin sex ár. Innlent 9. janúar 2025 15:44
Evrópusambandið eða nasismi Stefnt er að því af hálfu sitjandi ríkisstjórnar að koma Íslandi inn í Evrópusambandið og vinnan er hafin. Þegar svona mikið stendur til duga engin vettlingatök í áróðursstarfseminni. Skoðun 9. janúar 2025 10:05
Meirihluti er hlynntur atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður Alls eru 45 prósent hlynnt aðild Íslands að Evrópusambandinu og 58 prósent hlynnt atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að Evrópusambandinu. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Prósent framkvæmdi dagana 17. til 31. desember 2024. Innlent 9. janúar 2025 08:43
Ríkið heldur áfram að taka frá stóriðjulosunarheimildir fyrir eigin skuldbindingar Loftslagsráðherra hefur ákveðið að halda áfram að nýta heimild sem Ísland hefur til þess að nota losunarheimildir stóriðjunnar til þess að mæta skuldbindingum ríkisins gagnvart Parísarsamkomulaginu. Ekki er útlit fyrir að nýta þurfi heimildirnar fyrir fyrra tímabil samningsins. Innlent 9. janúar 2025 08:31
Titringur á Alþingi Allt leikur á reiðisskjálfi með reglulegu millibili í fundarherbergi á fimmtu hæð í nýrri skrifstofubyggingu Alþingis sögn formanns Flokks fólksins sem hefur aldrei upplifað annað eins. Þetta sé þó aðeins einn af nokkrum göllum í húsnæðinu. Brýnt sé að ráðast í úrbætur. Innlent 8. janúar 2025 21:38
Brugðið vegna ummæla Trumps og segir blikur á lofti í alþjóðamálum Utanríkisráðherra Íslands segir blikur á lofti í alþjóðamálum og áréttar að Grænland sé ekki til sölu. Verðandi Bandaríkjaforseti ásælist landsvæði Grænlendinga og í gær sagðist hann ekki útiloka að hervaldi verði beitt til að svo megi verða. Á meðan spókaði sonur hans sig í umdeildri heimsókn á Grænlandi. Innlent 8. janúar 2025 18:31
Bein útsending: Útför Egils Þórs Jónssonar Egill Þór Jónsson, fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju í Reykjavík klukkan 13 í dag. Innlent 8. janúar 2025 13:00
Telur stjórnsýsluúttekt litlu breyta fyrir íbúa og íhugar að flytja Íbúi í Árskógum íhugar að flytja úr húsnæðinu vegna nálægðar við vöruskemmuna í Álfabakka.Hún telur stjórnsýsluúttekt á málinu ekki breyta neinu fyrir íbúa. Tæplega tvö þúsund manns krefjast þess að framkvæmdir við skemmuna verði stöðvaðar. Innlent 8. janúar 2025 12:55