Umfjöllun og viðtöl: Nýliðar Þórs slógu Íslandsmeistaralið KR út Nýliðar Þórs úr Þorlákshöfn leika til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik eftir 83-80 sigur gegn Íslandsmeistaraliði KR í kvöld. Þetta var þriðji sigur Þórsara í einvíginu sem endaði 3-1. Þór leikur gegn Stjörnunni eða Grindavík í úrslitum en staðan í þeirri rimmu er 2-1 fyrir Grindavík. Körfubolti 18. apríl 2012 18:45
Þórsarar eru engir venjulegir nýliðar Þórsarar úr Þorlákshöfn halda áfram að skrifa söguna á sínu fyrsta ári í úrslitakeppni karla en þeir eru komnir í 2-1 á móti Íslandsmeisturum KR í undanúrslitaeinvígi Iceland Express-deildar karla. Í kvöld er sæti í lokaúrslitunum í boði þegar KR-ingar þurfa að berjast fyrir lífi sínu í Icelandic Glacial-höllinni. Leikurinn hefst klukkan 19.15 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Körfubolti 18. apríl 2012 06:00
Stjörnubjart í Grindavík Stjörnumenn voru ekki á því að fara í sumarfrí í Röstinni í gær og tryggðu sér fjórða leikinn á móti Grindavík með 17 stiga sigri á deildarmeisturunum, 82-65. Körfubolti 17. apríl 2012 06:00
Umfjöllun og viðtöl: Grindavík - Stjarnan | Grindavík er 2-1 yfir Stjarnan gerði sér lítið fyrir og valtaði yfir Grindavík á útivelli í þriðja leik liðanna í undanúrslitum úrslitakeppni Iceland Express deildar karla í kvöld 82-65. Grindavík leiðir einvígið 2-1 en liðin mætast í fjórða sinn á fimmtudaginn í Garðabæ. Körfubolti 16. apríl 2012 18:30
Umfjöllun og viðtöl: KR - Þór Þorl. 86-100 | Þór leiðir einvígið 2-1 Þór frá Þorlákshöfn er komið í algjöra lykilstöðu í einvíginu við KR í undanúrslitum Iceland-Express deild karla en liðið bar sigur úr býtum, 100-86, í þriðja leik liðana sem fram fór í DHL-höllinni í kvöld. Staðan er því 2-1 fyrir Þór í einvíginu og þeim vantar aðeins einn sigur til að komast í úrslit. Þórsarar voru einfaldlega miklu sterkari aðilinn allan leikinn og áttu sigurinn fyllilega skilið. Körfubolti 15. apríl 2012 18:30
Hittust fyrst rétt fyrir leik Bandaríkjamaðurinn Joseph Henley var búinn að vera á landinu í rúmar tvær klukkustundir þegar hann spilaði í leik Þórs frá Þorlákshöfn og KR á fimmtudagskvöldið. "Ekki óskastaða fyrir neitt félag,“ sagði Benedikt Guðmundsson. Körfubolti 14. apríl 2012 09:00
Grindavíkursigur í Ásgarði - myndir Grindavík er komið með annan fótinn í úrslitaeinvígi Iceland Express-deildar karla eftir dramatískan þriggja stiga sigur, 68-71, á Stjörnunni í Ásgarði í kvöld. Grindavík er því komið í 2-0 í einvíginu og getur tryggt sig inn í úrslitin á heimavelli sínum á mánudag. Körfubolti 13. apríl 2012 22:15
Teitur: Ég treysti ekki Keflvíkingum "Ég er svekktur út í Keflvíkinga fyrst þeir komu með yfirlýsingu og gáfu okkur færi á að gera eitthvað sjálfir í málinu sem við og gerðum," sagði Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, en hann missti Fannar Helgason í tveggja leikja bann í kjölfar þess að Keflavík kærði olnbogaskot Fannars í leik gegn Keflavík á dögunum. Körfubolti 13. apríl 2012 16:21
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Grindavík 68-71 | Grindavík komið í 2-0 Deildarmeistarar Grindavíkur héldu áfram sigurgöngu sinni í úrslitakeppninni með því að vinna þriggja stiga sigur á Stjörnunni, 71-68, í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Iceland Express deildar karla. Grindavíkurliðið hefur unnið alla fjóra leiki sína í úrslitakeppnini í ár og vantar nú aðeins einn sigur til þess að tryggja sér sæti í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn. Körfubolti 13. apríl 2012 16:16
Fannar Freyr í tveggja leikja bann Fannar Freyr Helgason, fyrirliði Stjörnunnar, hefur verið dæmdur í tveggja leikja bann af Aga- og úrskurðarnefnd KKÍ. Hann missir því af leiknum gegn Grindavík í kvöld. Körfubolti 13. apríl 2012 15:34
30. sigur Benedikts í úrslitakeppni en sá fyrsti á KR Benedikt Guðmundsson er að gera frábæra hluti með nýliða Þórs úr Þorlákshöfn sem unnu yfirburðasigur á Íslandsmeisturum KR í gær í öðrum leik liðanna í undanúrslitaeinvígi Iceland Express deildar karla í körfubolta. Staðan í einvíginu eru nú 1-1 og er næsti leikur í DHL-höllinni. Körfubolti 13. apríl 2012 14:15
Umfjöllun og viðtöl: Þór Þorl. - KR 94-76 | Íslandsmeistarnir steinlágu Þórsarar fóru á kostum í Icelandic Glacial höllinni í kvöld í vörn sem sókn, unnu 18 stiga sigur á Íslandsmeisturum KR, 94-76, og jöfnuðu undanúrslita einvígi liðanna í 1-1. Nýliðarnir hafa unnið þrjá fyrstu heimaleiki sína í úrslitakeppninin og urðu jafnframt fyrstir til að vinna Íslandsmeistara KR í úrslitakeppninni í ár. Körfubolti 12. apríl 2012 18:30
Keflvíkingar senda inn kæru vegna Fannars Stjórn körfuknattleiksdeildar Keflavíkur hefur ákveðið að senda inn kæru til aga- og úrskurðarnefndar KKÍ vegna olnbogaskots Fannars Freys Helgasonar, leikmanns Stjörnunnar, í leik liðanna á skírdag. Körfubolti 12. apríl 2012 09:38
Drekinn auglýsir eftir Miðjunni Þór frá Þorlákshöfn fær tækifæri til þess að jafna einvígið gegn KR í undanúrslitum Iceland Express-deildar karla í kvöld. Þá þurfa KR-ingar að mæta í Iceland Glacial-höllina sem er gríðarmikið vígi. Körfubolti 12. apríl 2012 07:45
Stemning í Röstinni í kvöld - myndir Það var heitt í kolunum í Grindavík í kvöld þegar heimamenn tóku á móti Stjörnunni í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Iceland Express-deildar karla. Heimamenn unnu rimmuna í kvöld. Körfubolti 10. apríl 2012 22:15
Umfjöllun og viðtöl: Grindavík - Stjarnan 83-74 | Grindavík leiðir 1-0 Grindavík lagði Stjörnuna að velli í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Iceland Express-deildar karla í körfuknattleik í Röstinni í kvöld. Lokatölurnar 83-74 í leik þar sem heimamenn höfðu frumkvæðið frá upphafi án þess að takast að hrista gestina almennilega af sér. Körfubolti 10. apríl 2012 15:49
Fyrirliðabandið tekið af Fannari Körfuknattleiksdeild Stjörnunnar hefur ákveðið að Fannar Helgason verði ekki fyrirliði liðsins í ótilgreindan tíma vegna atviks sem átti sér stað í leik gegn Keflavík á dögunum. Körfubolti 10. apríl 2012 11:40
KR-sigur eftir svakalega sigurkörfu - myndir KR-ingar héldu sigurgöngu sinni áfram í úrslitakeppninni með því að vinna Þór úr Þorlákshöfn 82-79 í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Iceland Express deildar karla í körfubolta. KR-ingar hafa þar með unnið alla þrjá leiki sína í úrslitakeppninni í ár auk þess að vinna tvo síðustu leiki sína í úrslitakeppninni í fyrra. Körfubolti 9. apríl 2012 22:30
Benedikt Guðmundsson: Við stefnum á Íslandsmeistaratitillinn Benedikt Guðmundsson, þjálfari nýliða Þórs úr Þorlákshöfn, þurfti að sætta sig við naumt tap í fyrsta leik undanúrslitaeinvígisins á móti hans gömlu félögum í KR. KR vann 82-79 og er komið í 1-0 en það þarf að vinna þrjá leiki til þess að komast í lokaúrslitin. Körfubolti 9. apríl 2012 22:07
Umfjöllun og viðtöl: KR - Þór Þorl. 82-79 | KR komið í 1-0 Joshua Brown skoraði þriggja stiga körfu í blálokin og tryggði KR þriggja stiga sigur á Þór frá Þorlákshöfn í fyrstu viðureign liðanna í undanúrslitum Iceland Express-deildar karla í körfubolta. Leikurinn var jafn frá upphafi til enda og þurfti stórkostlega körfu frá Brown til að skilja liðin að. Körfubolti 9. apríl 2012 17:02
Annað einvígi þjálfara úr 1972-árgangi KR hefst í kvöld KR og Þór Þorlákshöfn spila í kvöld fyrsta leikinn sinn í undanúrslitum Iceland Express deildar karla í körfubolta og hefst leikurinn klukkan 19.15 í DHL-höllinni í Frostskjóli. Körfubolti 9. apríl 2012 13:00
Þór mætir KR | Stjarnan mætir Grindavík Eftir sigur í dramatískum oddaleikjum sínum í átta liða úrslitum Iceland Express-deildar karla í gærkvöldi er ljóst að Þór mætir KR í undanúrslitum en Stjarnan mætir deildarmeisturum Grindavíkur. Körfubolti 6. apríl 2012 07:37
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Keflavík 94-87 Stjarnan vann í kvöld sigur á Keflavík í mögnuðum oddaleik liðanna í 8-liða úrslitum Iceland Express-deildarinnar. Leikurinn fór í framlengingu þar sem heimamenn kláruðu dæmið. Körfubolti 5. apríl 2012 18:30
Umfjöllun og viðtöl: Þór Þorlákshöfn - Snæfell 72-65 Nýliðar Þórs frá Þorlákshöfn eru komnir í undanúrslit Iceland Express-deildar karla í körfuknattleik eftir 72-65 sigur í dramatískum oddaleik gegn Snæfell í Þorlákshöfn. Körfubolti 5. apríl 2012 13:45
Montrétturinn er líka undir hjá þeim í kvöld Það skýrist í kvöld hver tvö síðustu liðin verða í undanúrslitum Iceland Express-deildar karla þegar oddaleikir átta liða úrslitanna fara fram. Stjarnan tekur á móti Keflavík í Ásgarði í Garðabæ og Þór fær Snæfell í heimsókn í Icelandic Glacial-höllina í Þorlákshöfn. Körfubolti 5. apríl 2012 11:00
Magnús missir ekki af oddaleiknum - kæru Stjörnunnar hafnað Aga- og úrskurðarnefnd Körfuknattleikssambands Íslands hefur komið saman og tekið fyrir kæru sem barst eftir viðureign tvö milli Keflavíkur og Stjörnunnar í úrslitakeppni Iceland Express deild karla en leikurinn fór fram mánudaginn 2. apríl. Stjörnumenn kærðu meint viljandi olnbogaskot Magnúsar Þórs Gunnarssonar, fyrirliða Keflavíkur. Körfubolti 4. apríl 2012 15:45
Benedikt í KR-treyju: Ekki sá sterkasti í þvottahúsinu Það vakti athygli að Benedikt Guðmundsson, þjálfari Þórs frá Þorlákshöfn, var ekki í Þórs-hettupeysunni á bekknum að þessu sinni heldur var hann kominn í gamla KR-treyju. Blaðamanni lék forvitni á að vita hvernig stæði á þessu. Körfubolti 2. apríl 2012 21:33
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Stjarnan 88-82 Keflvíkingar knúðu fram oddaleik í rimmu sinni gegn Stjörnunni í 8-liða úrslitum úrslitakeppni Iceland Express-deildar karla í kvöld. Körfubolti 2. apríl 2012 18:45
Umfjöllun og viðtöl: Snæfell - Þór Þorlákshöfn 94-84 Snæfell og Þór Þorlákshöfn þurfa að mætast í oddaleik í Þorlákshöfn á fimmtudag. Það varð ljóst í kvöld er Snæfell lagði Þór í öðrum leik liðanna og jafnaði þar með einvígið í átta liða úrslitum. Körfubolti 2. apríl 2012 14:24
KR sökkti Stólunum í Síkinu KR-ingar eru komnir í undaúrslit Iceland Express-deildar karla eftir sannfærandi sigur, 81-89, á Tindastóli í Síkinu í kvöld. Körfubolti 1. apríl 2012 21:03