Höfnuðu ráðgjöf um að göng undir Klettsháls yrðu í forgangi Vestfirskir sveitarstjórnarmenn höfnuðu í september í fyrra tillögu ráðgjafarfyrirtækis sem setti jarðgöng undir Klettsháls efst á forgangslista yfir næstu göng í fjórðungnum. Þess í stað ákvað Fjórðungsþing Vestfirðinga að setja ekki fram neina forgangsröðun með þeim rökum að slík forgangsröðun myndi ekki hljóta samstöðu sveitarstjórna á Vestfjörðum. Innlent 16.9.2026 13:39
Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vilborg Arnarsdóttir missti son sinn í bílslysi á Súðavíkurvegi fyrir 25 árum. Fjórum árum eftir andlát hans lét hún draum sinn rætast og opnaði leikvöllinn Raggagarð, á Súðavík. Teljari var settur upp í garðinum fyrir sjö árum svo hún myndi vita hversu margir heimsæktu garðinn. Teljarinn hætti skyndilega að virka í lok maí þegar slökkt var á 2G og 3G netinu. Innlent 5.9.2026 20:03
Bílvelta í Skötufirði Bíll valt á Djúpveginum í Skötufirði í Ísafjarðardjúpi með þrjá innanborðs. Innlent 19.7.2026 12:00
Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Vegagerðin hefur samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar gegn 1,7 milljarða króna niðurgreiðslu næstu fjögur ár. Það er ríflega helmings lækkun frá tilboði Icelandair, sem var upp á 3,5 milljarða króna, en á móti kemur að flugferðum er fækkað um 28 prósent. Formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar kveðst líta á þetta sem varnarsigur. Innlent 16. apríl 2026 12:24
Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Vegagerðin og Icelandair hafa náð samkomulagi um flug til Ísafjarðar. Samningurinn gildir til fjögurra ára. Lágmarksfjöldi ferða er 452 hringferðir á ári. Innlent 16. apríl 2026 08:38
Tvöfaldur verðmunur á Súðavíkurgöngum Tólf til fjórtán milljörðum króna munar í kostnaði eftir því hvaða leið verður valin fyrir jarðgöng milli Súðavíkur og Ísafjarðar. Nokkrir valkostir hafa verið til skoðunar um hvar göngin eigi að liggja. Í tillögu að nýrri samgönguáætlun eru þau í öðru til þriðja sæti ásamt Fjarðagöngum fyrir austan en á eftir Fljótagöngum. Innlent 30. mars 2026 21:33
Glæsibrú á Vestfjörðum boðin út í næsta mánuði Vegagerðin hyggst í næsta mánuði bjóða út smíði 210 metra langrar brúar yfir Djúpafjörð á sunnanverðum Vestfjörðum. Hún verður ein svipmesta brú landsins en jafnframt lokaáfanginn í einhverri umdeildustu vegagerð á Íslandi. Innlent 24. mars 2026 21:00
Mikilvægast með jarðgöngum að losna við hættulegustu vegi Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra vísaði til náttúruvár þegar hann varði þá ákvörðun sína að setja Fljótagöng til Siglufjarðar í efsta sæti forgangslista næstu jarðganga. Á opnum fundi umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis í morgun bentu tveir þingmenn Norðausturkjördæmis hins vegar á að innan Fjallabyggðar væri jafnvel sterkari krafa um að fá ný Múlagöng vegna ítrekaðra snjóflóða í Ólafsfjarðarmúla. Innlent 19. mars 2026 12:10
Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur verið boðaður á opinn fund umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis á fimmtudag til að svara spurningum um forgangsröð jarðganga. Fjarðabyggð hefur kynnt þingnefndinni tillögu að sáttaleið á Austfjörðum. Innlent 17. mars 2026 21:41
Atvinnuhúsnæði á Ísafirði rýmt eftir snjóflóð Rýma þurfti atvinnuhúsnæði á Ísafirði eftir að snjóflóð féll í Seljalandshlíð í morgun. Áfram er í gildi óvissustig vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum og Norðurlandi og þá eru gular viðvaranir í gildi vegna veðurs á Vestanverðu landinu. Innlent 17. mars 2026 11:52
„Undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna“ Sveitastjóri Súðavíkurhrepps segir það tímaspursmál hvenær eitthvað hræðilegt gerist við Súðavíkurhlíð. Löngu sé kominn tími á göng á svæðinu enda hafi fjölmargir lent í hremmingum, þar sem litlu mátti muna, á leið sinni milli Ísafjarðar og Súðavíkur. Innlent 14. mars 2026 12:53
Sex snjóflóð fallin og veginum lokað Veginum um Súðavíkurhlíð verður lokað hálf tólf en klukkan ellefu höfðu alls sex snjóflóð fallið á veginn. Erfið færð er um veginn. Einnig hafa fallið snjóflóð í fjallinu fyrir ofan Flateyri. Innlent 12. mars 2026 11:01
Óvissustig í Súðavíkurhlíð Vegagerðin hefur lýst yfir óvissustigi í Súðavíkurhlíð vegna snjóflóðahættu. Innlent 11. mars 2026 22:01
Lagareldi til framtíðar – ábyrgur rammi fyrir atvinnulíf, umhverfi og samfélög Lagafrumvarp um lagareldi, sem nú er til umfjöllunar, markar tímamót. Þar er í fyrsta sinn lögð fram heildstæð löggjöf um eina af mikilvægustu atvinnugreinum landsins, með skýrari ramma, auknum fyrirsjáanleika og skýrum kröfum um umhverfisvernd, vöktun og ábyrgð. Skoðun 9. febrúar 2026 17:01
„Við vitum að áföllin munu koma“ Forseti Alþingis segir skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis svara þeim álitamálum sem lagt var upp með. Hún telur núverandi almannavarnarkerfi mun betur í stakk búið að takast á við atburði af álíka stærðargráðu en fyrir þrjátíu árum síðan. Innlent 16. desember 2025 13:02
Orð gegn orði um samskipti innan almannavarnarnefndar Ljósi er varpað á málsatvik í tengslum við snjóflóðið í Súðavík í skýrslu rannsóknarnefndar sem var kynnt í dag. Formaður nefndarinnar segir hægt að draga lærdóm af skýrslunni. Innlent 15. desember 2025 19:32
Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Faðir sem missti þrjú börn í snjóflóðinu í Súðavík árið 1995 segir nýja skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis sem kynnt var í dag ekki til neins ef ekki verði brugðist við henni. Hann segir ekki dag líða þar sem hann hugsi ekki til dagsins örlagaríka í janúar þetta ár, stjórnvöld hafi með því að neita að horfast í augu við ábyrgð látið eins og fráfall íbúa í Súðavík hafi ekki skipt neinu máli. Innlent 15. desember 2025 19:12
Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis vegna snjóflóðs í Súðavík árið 1995 er hvorki að finna álit né vangaveltur nefndarinnar um mögulega ábyrgð einstaklinga á atburðum 16. janúar 1995, þegar fjórtán fórust. Í skýrslunni segir hins vegar að auðvelt sé að vera vitur eftir á. Innlent 15. desember 2025 16:23
Bein útsending: Kynna skýrslu um snjóflóðið í Súðavík Rannsóknarnefnd Alþingis vegna snjóflóðsins í Súðavík 16. janúar 1995 hefur lokið rannsókn sinni. Skýrsla nefndarinnar verður afhent forseta Alþingis klukkan 13 og kynnt klukkan 15. Sjá má kynninguna í beinni útsendingu hér að neðan. Innlent 15. desember 2025 14:34
Súðavíkurskýrslan afhent forseta Alþingis Rannsóknarnefnd Alþingis vegna snjóflóðsins í Súðavík 16. janúar 1995 hefur lokið rannsókn sinni og afhent forseta Alþingis skýrsluna. Skýrslan verður kynnt opinberlega klukkan 15. Innlent 15. desember 2025 13:18
Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Í dag mun rannsóknanefnd sem Alþingi skipaði til að rannsaka aðdraganda og eftirmál snjóflóðsins í Súðavík fyrir þrjátíu árum skila skýrslu sinni. Kona sem missti dóttur sína í flóðinu segist vona að sannleikurinn fái loksins að koma í ljós. Innlent 15. desember 2025 12:01
Vestfirðingar sjá fram á þrenn ný jarðgöng Miklar vegabætur er ráðgerðar á Vestfjörðum á næstu fimmtán árum, þar á meðal þrenn ný jarðgöng, samkvæmt nýbirtri samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar. Þá verður Bíldudalur tengdur Dynjandisheiði með bundnu slitlagi. Innlent 11. desember 2025 21:51
Rannsókn lokið þrjátíu árum eftir snjóflóðið Rannsóknarnefnd Alþingis vegna snjóflóðsins í Súðavík 16. janúar 1995 hefur lokið rannsókn sinni. Skýrsla nefndarinnar verður afhent forseta Alþingis á mánudag og kynnt sama dag. Innlent 11. desember 2025 14:42
Segir göng undir Fjarðarheiði ekki fjárhagslega forsvaranleg Ríkisstjórnin er einhuga um að breyta forgangsröðun jarðganga og setja Fljótagöng í fyrsta sæti og hafa þingflokkar stjórnarinnar samþykkt tillöguna. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að Fjarðarheiðargöng hafi ekki verið fjárhagslega forsvaranleg. Innlent 3. desember 2025 21:10