Sunna fær góða dóma í Austurríki Djasspíanóleikarinn Sunna Gunnlaugsdóttir fær góða dóma í austurríska tímaritinu Concerto fyrir plötu sína The Dream, sem var nýlega tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna. Lífið 19. febrúar 2011 00:01
Fyrsta platan í fimmtán ár Grunge-rokkararnir í Soundgarden eru að hefja upptökur á sinni fyrstu plötu í fimmtán ár. Í tilkynningu á heimasíðu sveitarinnar kemur fram að þeir félagar hafi samið flott lög fyrir plötuna, sem fylgir í kjölfar Down on the Upside sem kom út 1996. Lífið 17. febrúar 2011 09:00
Óvænt plata frá Radiohead Ólíkindatólin í hljómsveitinni Radiohead tilkynntu í gær að ný plata, The King of Limbs, væri væntanleg á laugardaginn. Hljómsveitin gefur plötuna út sjálf og verður hún aðgengileg á vefsíðunni Thekingoflimbs.com. Hægt verður að hala plötunni niður gegn gjaldi á laugardaginn, en hún kemur svo út á geisladiski og vínyl 9. maí. Lífið 15. febrúar 2011 12:00
Útgáfu flýtt um viku Breska hljómsveitin The Vaccines, með bassaleikarann Árna Hjörvar Árnason innanborðs, hefur flýtt útgáfu á fyrstu plötu sinni um eina viku. Platan, sem nefnist What Did You Expect From The Vaccines, kemur út 14. mars í staðinn fyrir 21. mars. Þar með er ljóst að hún kemur ekki út á sama tíma og nýjasta plata rokkaranna í The Strokes, Angles, sem The Vaccines hefur stundum verið líkt við. Lífið 11. febrúar 2011 07:00
Páll Óskar tekur upp plötu í New York „Ég ætla að hoppa aðeins til New York í sumar. Ég ætla bæði að kúpla mig út og vinna svolítið líka,“ segir tónlistarmaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson. Hann ætlar að vinna að nýrri plötu í New York sem mun fylgja eftir hinu gríðarvinsæla Silfursafni sem kom út fyrir jólin 2008. Innlent 8. febrúar 2011 10:00
Félagar með nýja plötu Tónlistarmennirnir Epic Rain og Beatmakin Troopa gefa á þriðjudaginn út sína fyrstu plötu saman. Hún nefnist Campfire Rumors og kemur út á vegum útgáfufyrirtækisins 3angle Productions sem er í þeirra eigu. Þeir félagar hafa um árin unnið saman að ýmsum verkefnum, bæði staðið fyrir tónleikum og gefið út tónlist. Lífið 6. febrúar 2011 12:00
Stjórnaði í gegnum Skype Hljómsveitin Thin Jim notaði Skype við strengjaupptökur á sinni fyrstu plötu sem er væntanleg í mars. Ég er ekki viss um að þetta hafi verið gert áður, allavega ekki á Íslandi,“ segir Jökull Jörgensen úr kántrípoppsveitinni Thin Jim. Hún lauk upptökum á sinni fyrstu stóru plötu um síðustu helgi hjá Benzin-bræðrum í Sýrlandi. Lífið 5. febrúar 2011 12:00
Myrkari og rafrænni tónar Breska tríóið White Lies er komið aftur á stjá tveimur árum eftir að platan To Lose My Life kom út. Myrkur danstaktur í anda Depeche Mode er orðinn meira áberandi en áður. Lífið 3. febrúar 2011 17:00
Múmínálfarnir dansa við lag Bjarkar Myndin um Múmínálfana er frumsýnd í kvikmyndahúsum um helgina. Múminálfarnir er teiknimynd sem byggir á frægum sögum eftir Tove Jansson. Teiknimyndirnar og sögurnar um Múmínsnáðann, Míu, Snúð og Snorkstelpuna hafa notið mikilla vinsælda hjá íslensku smáfólki. Tónlist 3. febrúar 2011 14:02
Elíza fær góða dóma Tónlistarkonan Elíza Geirsdóttir Newman hefur fengið góða dóma í Bretlandi fyrir EP-plötu sína Ukulele Songs for You sem kom út í stafrænu formi fyrir skömmu. Platan inniheldur lögin Ukulele Song for You, Eyjafjallajökull, sem sló í gegn þegar Elíza flutti það á fréttastöðinni Al Jazeera, og áður óútgefið lag sem nefnist Out of Control. Lífið 1. febrúar 2011 11:30
Hárdoktorinn kveður Ísland Plötusnúðurinn Jón Atli Helgason flytur til Danmerkur í byrjun næstu viku. Þar mun hann meðal annars starfa sem plötusnúður ásamt því að spila á bassa inn á plötu með danska plötusnúðnum Kasper Björke. Lífið 28. janúar 2011 11:30
Ungmenni á plötu Sönglistar Ungmenni á aldrinum fimmtán til sautján ára koma við sögu á plötunni Sönglistin 2010 sem er nýkomin út. Á henni eru þrettán innlend og erlend lög. Flytjendur eru eða hafa verið nemendur í söng- og leiklistarskólanum Sönglist. Lífið 27. janúar 2011 00:00
Lay Low gerir plötu við ljóð íslenskra kvenskálda „Ég er mjög spennt því mig hefur lengi langað til að gera íslenska plötu, en ég er ekki nógu góð í að semja íslenska texta," segir tónlistarkonan Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir, best þekkt sem Lay Low. Lífið 25. janúar 2011 21:00
Flétta á leiðinni Lagið Flétta sem Björk Guðmundsdóttir syngur á íslensku með enska tónlistarmanninum Antony Hegarty kemur út á þriðjudaginn. Lagið er að finna á nýjustu plötu hljómsveitarinnar Antony and the Johnsons, Swanlight. Rólegur píanóundirleikur hljómar undir fallegum röddum Bjarkar og Antonys í laginu, sem á vafalítið eftir að falla vel í kramið hjá aðdáendum þeirra beggja. Björk er þarna að launa Antony greiða frá árinu 2007 er hann söng með henni lagið My Juvenile á plötu hennar Volta. Tónlist 10. október 2010 12:30
Ókind rýfur fjögurra ára þögn Rokksveitin Ókind rís upp frá dauðum og spilar í eina kvöldstund á Faktorý á laugardagskvöld. Ókind spratt fullsköpuð fram árið 2002 og náði öðru sæti í Músíktilraunum. Á næstu fjórum árum gaf hún út plöturnar Heimsenda 18 og Hvar í Hvergilandi, sem báðar hlutu náð fyrir augum og eyrum gagnrýnenda. Haustið 2006 tilkynnti Ókind að nú væri þetta orðið gott í bili. Svo þagnaði hún í fjögur ár. Tónlist 2. september 2010 22:00
Jack fer á bólakaf Brimbrettakappinn hugljúfi, Jack Johnson, syngur inn sumarið með sinni sjöttu plötu, To The Sea, sem kemur út á þriðjudaginn. Tónlist 27. maí 2010 08:00
Tvöfalt safn frá Mannakornum Hin tvöfalda safnplata Gamli góði vinur með hljómsveitinni Mannakorn er komin út hjá Senu. Hún inniheldur 42 af vinsælustu lögum sveitarinnar frá upphafi og til dagsins í dag. Á meðal þeirra eru Reyndu aftur, Braggablús, Ó þú og Blús í G. Tónlist 20. maí 2010 07:00
Björk fær tónlistarnóbelinn Björk Guðmundsdóttir var valin verðlaunahafi Polar-tónlistarverðlaunanna, sem eru kölluð Nóbelsverðlaun tónlistarinnar Tónlist 17. maí 2010 11:00
Metropolitan-óperan seldi 22,2 milljónir bíómiða Íslenskir óperuaðdáendur sem venja komur sínar í Kringlubíó eiga þátt í metári Metropolitan-óperunnar sem seldi 22,2 milljónir bíómiða í fyrra. Tónlist 7. maí 2010 06:00
Fyrsta plata Reykjavíkursveitarinnar At Dodge City Rokkararnir í At Dodge City annast útgáfuna sjálfir og ætla að selja plötuna á tónleikum og á Netinu. Tónlist 6. maí 2010 20:00
Kraftmiklir vinnuþjarkar í ofurgrúppunni Dead Weather Jack White, Alison Mosshart úr The Kills og hinir í ofurgrúppunni The Dead Weather gefa út nýja plötu eftir helgi. Tónlist 6. maí 2010 19:00
Magni lofar stórkostlegri Bræðslu „Þetta verður stórkostlegt,“ segir Magni Ásgeirsson, um Bræðsluna á Borgarfirði eystri í júlí. „Við höfum aldrei verið jafnduglegir við að skipuleggja. Það eina sem á eftir að gera er að smíða sviðið,“ segir hann. Tónlist 6. maí 2010 09:15
Myndband Berndsen á kvikmyndahátíðina í LA „Það var hringt í leikstjórann og beðið um að fá að sýna myndbandið. Svo fórum við að skoða hvað var hátíðinni og þá voru þar risanöfn. Ég var bara sjitt! – fékk sjokk þegar ég sá þau,“ segir söngvarinn Davíð Berndsen. Tónlist 6. maí 2010 09:00
Brimbrettasveitin Bárujárn vann Þorskastríðið Sigurvegari í hljómsveitakeppninni Þorskastríðið 2010 er brimbrettasveitin Bárujárn. Hún hlýtur í verðlaun hljóðverstíma til að fullvinna þrjú lög, ársbirgðir af lýsi og einnig verður henni flogið til Færeyja þar sem hún spilar á G-festival 15.-17. júlí. Tónlist 6. maí 2010 08:15
Feldberg órafmögnuð í íslenskri ljósmyndabúð í London Hljómsveitin Feldberg er nýkomin heim frá London þar sem hún tók þátt í kynningarpartíi fyrir safnplötuna Kitsuné Maison Compilation 9 sem er nýkomin út á vegum franska fyrirtækisins Kitsuné Maison. Þar er að finna lagið Dreamin" af fyrstu plötu Feldberg sem kom út fyrir jól. Tónlist 6. maí 2010 08:00
Nokia on Ice í þriðja sinn Tónlistarhátíðin Nokia on Ice verður haldin í þriðja sinn um helgina á Sódóma Reykjavík. Frítt verður inn á föstudeginum þar sem þeir Mike Sheridan og DJ Margeir sjá um tónlistina. Á laugardeginum er miðaverð 1.000 krónur. Þá koma fram DJ Mike Sheridan, Samúel J. Samúelsson Big Band, Snorri Helga ásamt hljómsveit, Who Knew, Cliff Clavin, Miri, Of Monsters and Men, Biggabix og Hoffman. Tónlist 6. maí 2010 05:00
Brjálaðir í nýju myndbandi Rokksveitin Endless Dark er nýkomin heim eftir frækilega för til London þar sem hún lenti í öðru sæti í alþjóðlegu hljómsveitakeppninni Global Battle Of The Bands. Eftir keppnina tók sveitin upp sitt fyrsta myndband í bænum Bolton við lagið Cold, Hard December. Tónlist 6. maí 2010 04:30
Retro Stefson flogið heim fyrir Listahátíð Íslenska hljómsveitin Retro Stefson var valin til að hita upp á opnunartónleikum Listahátíðar og verður söngvaranum Unnsteini Manuel Stefánssyni flogið heim fyrir þá. Tónlist 4. maí 2010 15:33
Notar ekki Auto-Tune Söngkonan Alicia Keys segist aldrei nota tæknina sem er í boði í hljóðverum til að betrumbæta rödd sína. Þess í stað treystir hún algjörlega á sína eigin rödd. Tónlist 4. maí 2010 11:00
Lag Hafdísar Huldar valið lag vikunnar Lag íslensku söngkonunnar Hafdísar Huldar, Action Man, var valið lag vikunnar í þættinum The Radcliffe and Maconie Show á bresku útvarpsstöðinni BBC Radio 2 í gær. Tónlist 4. maí 2010 09:00