

Veður

Mikil hálka á vegum og íbúar í Grindavík hvattir til að fara varlega
Samhæfingarstöð Almannavarna var virkjuð á fjórða tímanum í nótt og vinnur lögreglan á Suðurnesjum nú að því að rýma Grindavík og gengur það vel.

Hætt við lendingu vegna þokunnar
Þétt þoka liggur yfir Reykjavík og á hún að hanga fram í nótt að sögn Þorsteins V. Jónssonar veðurfræðings hjá Veðurstofunni. Hún hefur orðið til þess að ekki var hægt að lenda flugvél á Reykjavíkurflugvelli í dag.

Stórvarasöm hálka í dag
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur varar við stórvarasamri hálku víða á vegum og gangstígum í dag. Hann segir það einkum eiga við um vestan- og sunnanvert landið, þar með talið á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum.

Von á ísingu og lúmskri hálku
Vegir á landinu eru flestir blautir og þegar kólnar hægt og bítandi í hægum vindi mun myndast ísing og lúmsk hálka.

Skýjað að mestu og lítilsháttar skúrir eða slydduél
Regnsvæðið sem gekk yfir landið í gær er nú statt yfir austasta hluta landsins og stefnir áfram ákveðið til austurs og verður komið út af landinu þegar líður á morguninn.

Þrástaða veðrakerfanna brotnar upp í dag
Veðurstofan gerir ráð fyrir áframhaldandi suðlægri átt og yfirleitt stinningskalda eða allhvössum vindi í dag. Það mun fara að rigna, fyrst vestanlands og má svo búast við talsverðri úrkomu í suðvesturfjórðungi landsins þegar líður að kvöldi.

Gengur á með strekkingi eða allhvössum vindum og smá vætu
Víðáttumikil hæð skammt norður af Skotlandi beinir nú alldjúpum lægðum og lægðadrögum norður Grænlandshaf, en saman færa þessi veðrakerfi okkar hlýtt og rakt loft að sunnan.

„Við erum áhyggjufull yfir stöðu mála“
Árið 2023 var hlýjasta ár frá upphafi mælinga. Hitastigið var að meðaltali 1,48 gráðum yfir meðalhitanum fyrir iðnbyltingu og því afar nærri 1,5 mörkunum sem kveðið er á um í Parísarsáttmálanum. Formaður Landverndar kveðst áhyggjufull af stöðunni og segir aðalatriðið að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.

Árið 2023 það hlýjasta í sögunni
Árið 2023 var hlýjasta árið síðan mælingar hófust. Það var 1,48 gráðu hlýrra en að meðaltali miðað við hitastig frá því fyrir iðnbyltingu, að því er fram kemur í umfjöllun breska ríkisútvarpsins.

Beina til landsins hlýju og röku lofti að sunnan
Víðáttumikil hæð yfir Norðursjó beinir nú alldjúpum lægðum og lægðadrögum norður yfir Grænlandshaf og saman færa veðrakerfin hlýju og röku lofti til landsins að sunnan.

Hlýju lofti áfram beint til landsins úr suðri
Lítil hreyfing er á veðrakerfunum þessa dagana þar sem er að finna hæð yfir Norðursjó og djúp lægð suður af Grænlandi sem beina enn hlýju lofti til landsins úr suðri.

Hálkuvörnum sé ekki sinnt nógu vel á „stórhættulegum“ Grindavíkurvegi
Öryggisstjóri segir stórhættulega hálku myndast á Grindavíkurvegi vegna uppgufunar frá Seltjörn og orkuverinu í Svartsengi. Hálkuvörnum sé ekki sinnt nógu reglulega til að bregðast við því. Upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar segir vetrarþjónustu miðast við umferðarmagn og veðuraðstæður hverju sinni.

Grænlensk lægð og bresk hæð beina mildum vindum til landsins
Djúp lægð suður af Grænlandi og hæð yfir Bretlandseyjum beina til landsins mildri suðlægri átt, að því er fram kemur á vef Veðurstofu Íslands.

Færri viðvaranir í fyrra en oft áður
Samtals voru gefnar út 311 viðvaranir af Veðurstofu Íslands árið 2023. Frá árinu 2018 hafa að meðaltali verið gefnar út 380 viðvaranir árlega og var árið í fyrra því heldur undir meðallagi.

Norrænt kuldamet slegið í Finnlandi
Kuldakast ríður nú yfir norðurhluta Skandinavíu og fór hitastigið á hinum norðlægu landamærum Noregs, Svíþjóðar og Finnlands niður fyrir -40 gráður.

Útlit fyrir rólegt veður
Það er útlit fyrir rólegt veður á landinu í dag. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands.

Hálkuslys
Þegar hálkuslys verða við hús er spurt um ábyrgð eigenda þeirra. Það er engin almenn skráð lagaregla um ábyrgð húseigenda vegna slíkra slysa. Hins vegar á ábyrgur húseigandi að vera vakandi gagnvart veðrabrigðum og slysagildrum.

Víðast lítilsháttar úrkoma í dag og hvessir annað kvöld
Veðurstofan gerir ráð fyrir að víða verði fremur hæg suðvestlæg átt í dag með lítilsháttar úrkomu. Úrkoman geti fallið sem snjór, slydda eða rigning þar sem hitastigið er nálægt frostmarki.

Salthrúgur á tólf stöðum í borginni
Hægt er að nálgast salt til hálkuvarna á tólf stöðum í Reykjavík. Frá því er greint í tilkynningu frá Reykjavíkurborg en verulega erfiðar aðstæður hafa skapast síðustu daga í borginni og er mikil hálka á bæði götum og göngustígum borgarinnar.

Sala mannbrodda fjórfaldast vegna hálkunnar
Sala mannbrodda hjá verslunarkeðju Bónus er fjórföld í þessari viku og vikuna fyrir jól, miðað við síðustu tíu vikur þar á undan. Flughált hefur verið á öllu höfuðborgarsvæðinu undanfarna daga og fjöldi fólks leitað á bráðamóttöku vegna hálkuslysa.

Bætir í úrkomu norðan- og austanlands eftir hádegi
Útlit er fyrir hæga austlæga átt í dag með lítilsháttar éljum norðan- og austanlands. Það mun svo bæta í úrkomu þar eftir hádegi, en annars léttskýjað.

Með kaldari desembermánuðum frá aldamótum
Tíðarfar á Íslandi í desember var yfir heildina litið ágætur, lítið var um úrkomu og var hann hægviðrasamur. Þetta var einn kaldasti desembermánuður þessarar aldar.

Styttir víða upp og rofar til
Nú í morgunsárið eru austan fimm til þrettán metrar sekúndu á landinu og einhver rigning eða slydda í mörgum landshlutum.

Hálkuslysin áberandi á bráðamóttökunni
Talsvert álag hefur verði á bráðamóttökunni í dag vegna hálkuslysa. Yfirlæknir segir álag á heilbrigðiskerfinu öllu, en reynt sé eftir fremsta megni að veita öllum þjónustu eins og best verður á kosið.

Árið 2023 í myndum: Skjálftar á skjálfta ofan
Það var titringur víða í samfélaginu árið 2023. Hatrammar kjaradeilur settu mark sitt á árið og tekist var á um hvalveiðar, útlendingamál og valdheimildir lögreglu, svo eitthvað sé nefnt.

Lægð skilar okkur rigningu eða slydda með köflum
Lægð er nú stödd skammt suðvestur af Reykjanesskaga og mun hún stýra veðrinu á landinu í dag. Lægðin er þó hvorki djúp né kröpp og hljóðar vindaspáin upp á suðaustan og austan fimm til þrettán metra á sekúndu.

Víða hvassviðri á fyrsta degi ársins
Veðurstofan gerir ráð fyrir norðaustan tíu til átján metrum á sekúndu og rigningu eða slyddu með köflum á þessum fyrsta degi ársins.

Varar við flughálku víða á morgun
Í fyrramálið hlánar á láglendi um land allt og hætt er við að flughált verði víða á vegum á morgun. Þetta segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur í samtali við fréttastofu.

Gul viðvörun og misjafnt árámótaveður eftir landshlutum
Í dag verður norðaustanátt á landinu, víðast hvar fimm til þrettán metrar á sekúndu, en að átján metrar á sekúndu suðaustanlands. Skýjað með köflum en dálítil él norðaustan- og austantil. Frost eitt til ellefu stig.

Áramótaveðrið lítur þokkalega út
Spáð er austanátt með fimm til þrettán metrum á sekúndu en hvassast með suðurströndinni. Skammt vestur og suðvestur af landinu er lægðakerfi sem viðheldur austlægum áttum á landinu í dag og á morgun.