Hrund skipuð framkvæmdastjóri hjúkrunar til áramóta Hrund Scheving Thorsteinsson verður framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítala frá 26. september til áramóta, þar til gengið hefur verið frá ráðningu nýs framkvæmdastjóra hjúkrunar í stað Sigríðar Gunnarsdóttur. Innlent 6. september 2022 11:31
Sigríður Júlía nýr kennslustjóri Lýðskólans á Flateyri Sigríður Júlía Brynleifsdóttir hefur verið ráðin kennslustjóri Lýðskólans á Flateyri en hún er jafnframt forseti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar. Viðskipti innlent 6. september 2022 08:21
Eiríkur nýr samskiptastjóri Hugverkastofunnar Eiríkur Sigurðsson hefur verið ráðinn samskiptastjóri Hugverkastofunnar. Hann var áður forstöðumaður samskiptasviðs Háskólans í Reykjavík. Eiríkur tekur við stöðu samskiptastjóra af Jóni Gunnarssyni sem hefur hafið störf við Hugverkastofu Evrópusambandsins (EUIPO) í Alicante. Viðskipti innlent 5. september 2022 15:54
Ellen nýr framkvæmdastjóri Barnaheilla Ellen Calmon, fyrrverandi borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Barnaheilla – Save the Children á Ílandi. Ellen tekur við af Ernu Reynisdóttur sem hefur stýrt samtökunum síðustu tíu ár. Innlent 5. september 2022 13:29
Ráðinn forstjóri Skaginn 3X og BAADER Ísland Sigsteinn Grétarsson hefur verið ráðinn í stöðu forstjóra Skaginn 3X og BAADER Ísland. Viðskipti innlent 5. september 2022 10:46
Gestur tekur við af Rúnari hjá PCC BakkiSilicon Gestur Pétursson, fyrrverandi forstjóri Veitna og Elkem, hefur verið ráðinn nýr forstjóri PCC BakkiSilicon. Hann tekur við starfinu af Rúnari Sigurpálssyni sem mun halda áfram störfum fyrir PCC samstæðuna og einbeita sér að þróunarverkefnum á Íslandi. Viðskipti innlent 2. september 2022 14:36
Guðrún ráðin forseti Gray Line Worldwide Guðrún Þórisdóttir, sölu- og markaðsstjóri Gray Line á Íslandi, hefur verið ráðin í starf forseta Gray Line Worldwide. Viðskipti innlent 2. september 2022 13:55
Tekur við starfi framkvæmdastjóra SSNV Katrín M. Guðjónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Viðskipti innlent 2. september 2022 07:58
Halla ráðin yfirmaður eignastýringar LSR Halla Kristjánsdóttir hefur verið ráðin sem nýr forstöðumaður eignastýringar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR), stærsta lífeyrissjóði landsins, samkvæmt heimildum Innherja. Klinkið 1. september 2022 20:32
Sveinn Friðrik nýr rekstrarstjóri Arctic Trucks International Sveinn Friðrik Sveinsson hefur verið ráðinn rekstrarstjóri Arctic Trucks International ehf. Viðskipti innlent 1. september 2022 13:18
Garðar ráðinn forstjóri Valitor Garðar Stefánsson hefur verið ráðinn forstjóri greiðslumiðlunarfyrirtækisins Valitor. Garðar tekur við stöðunni af Herdísi Fjeldsted, frá og með deginum í dag. Viðskipti innlent 1. september 2022 10:56
Ólafur settur forstjóri Skipulagsstofnunar Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra hefur sett Ólaf Árnason, forstöðumann nýsköpunar og þróunar hjá Skipulagsstofnun, í embætti forstjóra stofnunarinnar frá 1. september til 31. desember 2022. Innlent 1. september 2022 09:28
Beggi Dan, Eydís Ögn og Oscar til liðs við Svartagaldur Beggi Dan Gunnarsson hefur tekið við stöðu framkvæmdastjóra markaðs- og tæknifyrirtækisins Svartagaldurs. Auk hans hafa Eydís Ögn Uffadóttir og Oscar Lopez verið ráðin til fyrirtækisins. Viðskipti innlent 1. september 2022 08:13
Rúnar hættir í eigin viðskiptum hjá Arion banka Rúnar Friðriksson, sem hefur starfað í eigin viðskiptum Arion banka síðustu ár, er hættur hjá bankanum, samkvæmt heimildum Innherja. Hann sagði starfi sínu lausu í dag en það mun skýrast fljótlega hver verður fenginn til að taka við af honum innan bankans. Klinkið 31. ágúst 2022 15:02
Ritstýrir Húsfreyjunni samhliða starfi bæjarstjóra Gengið hefur verið frá ráðningu nýs ritstjóra Húsfreyjunnar, tímariti Kvenfélagasambands Íslands. Sigríðar Ingvarsdóttur tekur við starfinu af Kristínu Lindu Jónsdóttur sem ritstýrt hefur tímaritinu í tæpa tvo áratugi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sambandinu. Lífið 31. ágúst 2022 14:58
Katrín segir upp störfum hjá SFF Katrín Júlíusdóttir hefur sagt starfi sínu, sem framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja, lausu eftir tæplega sex ára starf fyrir samtökin. Þetta kemur fram á vef SFF þar sem segir að hún hafi upplýst stjórn samtakanna um þetta fyrr í mánuðinum. Viðskipti innlent 29. ágúst 2022 16:38
Þau sóttu um stöður tveggja sviðsstjóra hjá borginni Reykjavíkurborg hefur birt lista yfir umsækjendur um tvær sviðsstjórastöður hjá borginni - sviðsstjóra menningar-, íþrótta og tómstundasviðs annars vegar og velferðarsviðs hins vegar. Innlent 29. ágúst 2022 12:39
Heiða Björg marði sigur á Rósu í formannsslag Heiða Björg Hilmisdóttir, varaformaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og borgarfulltrúi, verður næsti formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Kosning fór fram undanfarnar tvær vikur en aðeins munaði þremur atkvæðum á formannsefnunum. Innlent 29. ágúst 2022 12:18
BHM styrkir sig fyrir komandi kjaraviðræðuvetur BHM hefur ráðið þau Willard Nökkva Ingason, Þóru Kristínu Þórsdóttur, Ingvar Sverrisson og Karitas Marý Bjarnadóttur til starfa innan bandalagsins. Viðskipti innlent 29. ágúst 2022 11:22
Ráðin framkvæmdastjóri VBM Halldóra G. Hinriksdóttir, forstöðumaður hjá RB hf., hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Verðbréfamiðstöðvar Íslands og tekur við starfinu 1. september. Viðskipti innlent 29. ágúst 2022 09:32
Tekur við sem forstjóri EY á Íslandi Guðjón Norðfjörð hefur verið ráðinn forstjóri EY á Íslandi. Hann tekur við starfinu af Margréti Pétursdóttur, sem hefur verið forstjóri síðastliðin þrjú ár og mun hún nú vinna að því að koma nýjum forstjóra inn í starfið. Viðskipti innlent 26. ágúst 2022 14:25
Harpa Þórsdóttir er nýr þjóðminjavörður Harpa Þórsdóttir, safnstjóri Listasafns Íslands, hefur verið skipuð nýr þjóðminjavörður. Hún tekur við stöðunni af Margréti Hallgrímsdóttur sem nýverið var ráðin í starf skrifstofustjóra í forsætisráðuneytinu eftir að hafa farið með stöðu þjóðminjavarðar frá árinu 2000. Harpa er dóttir Þórs Magnússonar sem gegndi embætti þjóðminjavarðar á árunum 1968 til 2000. Innlent 26. ágúst 2022 08:56
Börkur tekur við rektorsstöðunni af Friðriki Þór Börkur Gunnarsson mun taka við rektorsstöðunni Friðriki Þór Friðrikssyni við Kvikmyndaskóla Íslands þann 1. september næstkomandi og gegna henni þar til að nýr rektor verður ráðinn. Innlent 26. ágúst 2022 07:51
Hugi Halldórsson nýr markaðsstjóri Ísorku Hugi Halldórsson, best þekktur sem Ofur-Hugi, hefur hafið störf sem markaðsstjóri hjá Ísorku, rafhleðslufyrirtæki, en hann kemur þangað frá markaðsdeild Play. Viðskipti innlent 25. ágúst 2022 09:53
Bára Mjöll nýr meðeigandi hjá Langbrók Bára Mjöll Þórðardóttir hefur gengið til liðs við ráðgjafafyrirtækið Langbrók sem meðeigandi. Viðskipti innlent 25. ágúst 2022 08:21
Konráð til aðstoðar SA í kjaraviðræðunum framundan Konráð S. Guðjónsson, aðalhagfræðingur Stefnis, hefur tímabundið verið ráðinn sem efnahagsráðgjafi Samtaka atvinnulífsins í aðdraganda komandi kjarasamningsgerðar. Hann mun jafnframt taka sæti í samninganefnd SA. Viðskipti innlent 24. ágúst 2022 15:22
Simon tekur við heimilisbókhaldinu af Georgi Meniga hefur ráðið Simon Shorthose í starf forstjóra. Hann tekur við af Georg Lúðvíkssyni, meðstofnanda Meniga, fyrirtæki sem sérhæfir sig í heimilisbókhaldshugbúnaði. Viðskipti innlent 24. ágúst 2022 14:16
Diljá ráðin hagfræðingur SAF Samtök ferðaþjónustunnar hafa ráðið Diljá Matthíasardóttur í starf hagfræðings samtakanna og hefur hún þegar hafið störf. Viðskipti innlent 24. ágúst 2022 07:26
Hreinn Loftsson aðstoðar Áslaugu Örnu tímabundið Hreinn Loftsson hefur verið ráðinn tímabundinn aðstoðarmaður Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar og nýsköpunarráðherra. Hreinn tekur við af Eydísi Örnu Líndal sem er í fæðingarorlofi fram að áramótum. Innlent 23. ágúst 2022 15:29
Sirrý nýr framkvæmdastjóri umhverfismála hjá Hornsteini Sigríður Ósk Bjarnadóttir, Sirrý, hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri umhverfismála hjá eignarhaldsfélaginu Hornsteini ehf. og kemur til með að leiða umhverfis- og gæðasvið félagsins. Viðskipti innlent 23. ágúst 2022 15:02