15 fatlaðir starfsmenn hættir á Múlalundi Miklar breytingar eiga sér nú stað á starfsemi Múlalundar á Reykjalundi í Mosfellsbæ því þar er fólk með fötlun að missa vinnuna og einhverjir eru að hverfa til annarra starfa. Fimmtán fatlaðir starfsmenn voru kvaddir í gær, þar af einn starfsmaður, sem hefur unnið á Múlalundi í 38 ár. Innlent 31. ágúst 2024 20:05
Ráðinn hönnunarstjóri Aton Sigurður Oddsson hefur verið ráðinn til Aton sem hönnunarstjóri. Viðskipti innlent 30. ágúst 2024 13:38
Innáskipting hjá Kviku Sigurgeir Guðlaugsson, sem hefur verið varamaður í stjórn Kviku banka tekur sæti Guðmundar Arnar Þórðarsonar og kemur nýr inn í stjórn bankans. Guðmundur Örn tók á dögunum við starfi framkvæmdastjóra viðskiptaþróunar hjá Kviku. Viðskipti innlent 29. ágúst 2024 13:05
Verður meðal stærstu hluthafa og tekur við stjórnarformennsku Håkon André Berg verður nýr starfandi stjórnarformaður landeldisfyrirtækisins GeoSalmo. Samhliða því að taka við stjórnarformennsku fjárfestir Håkon í félaginu og verður meðal stærstu hluthafa félagsins. Viðskipti innlent 29. ágúst 2024 12:24
Katrín tekur sæti í háskólaráði HÍ Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi forsætisráðherra hefur tekið sæti í háskólaráði Háskóla Íalands til næstu tveggja ára. Meðal verkefna háskólaráðs er að marka heildarstefnu í málefnum háskólans og setja reglur um starfsemi háskólans á grundvelli laga. Þá fer háskólaráð með úrskurðarvald í málefnum skólans. Innlent 28. ágúst 2024 21:49
Skipaður deildarforseti viðskipta- og hagfræðideildar HR Dr. Stefan Wendt viðskiptafræðiprófessor hefur verið skipaður deildarforseti viðskipta- og hagfræðideildar Háskólans í Reykjavík. Viðskipti innlent 27. ágúst 2024 11:26
Kveður Marel og verður aðstoðarforstjóri Kapp Ólafur Karl Sigurðarson hefur verið ráðinn aðstoðarforstjóri tæknifyrirtækisins Kapp. Viðskipti innlent 26. ágúst 2024 12:57
Helga Hrund í hóp meðeiganda Maven Helga Hrund Friðriksdóttir hefur bæst í hóp meðeigenda þjónustu- og ráðgjafafyrirtækisins Maven ehf. Þá hefur Anna Kristín Ólafsdóttir verið ráðin skrifstofustjóri hjá fyrirtækinu. Viðskipti innlent 26. ágúst 2024 10:31
Ráðinn forstöðumaður Fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans Elvar Þór Karlsson hefur verið ráðinn forstöðumaður Fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans og mun hefja störf í vetur. Viðskipti innlent 26. ágúst 2024 09:51
Sesselía yfirgefur Vodafone Sesselía Birgisdóttir, framkvæmdastjóri Vodafone fjarskipta, hefur óskað eftir að láta af störfum hjá félaginu. Hún hefur gegnt starfinu frá því í apríl 2022 og sat áður í stjórn móðurfélagsins Sýnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu þar sem segir að Sesselía muni starfa áfram með Vodafone þar til eftirmaður verður ráðinn. Viðskipti innlent 21. ágúst 2024 12:02
Alma Mjöll ráðin til þingflokks VG Alma Mjöll Ólafsdóttir hefur verið ráðin nýr framkvæmdastjóri þingflokks Vinstri grænna. Hún starfaði til margra ára sem rannsóknarblaðakona á Heimildinni. Innlent 16. ágúst 2024 17:31
Helga Vala til Lögfræðistofu Reykjavíkur Helga Vala Helgadóttir, fyrrverandi þingmaður og lögmaður, hefur bæst við hóp lögmanna Lögfræðistofu Reykjavíkur. Helga Vala útskrifaðist með ML gráðu frá Háskólanum í Reykjavík árið 2011 og öðlaðist sama ár málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi og síðar fyrir Landsrétti. Innlent 15. ágúst 2024 15:56
Forstöðumaðurinn fannst í Salnum Axel Ingi Árnason hefur verið ráðinn forstöðumaður Salarins í Kópavogi. Hann hefur starfað hjá Salnum frá árinu 2022. Tæpt ár er síðan forstöðumaður Salarins til tólf ára lét af störfum og gagnrýndi áhugaleysi meirihlutans í bæjarfélaginu á starfseminni. Menning 15. ágúst 2024 13:57
Sex sóttu um embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar Sex sóttu um embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar. Meðal umsækjenda eru settur forstjóri Náttúrufræðistofnunar, líftæknir og forstöðumaður Rannsóknaseturs HÍ á Snæfellsnesi. Hæfnisnefnd fer yfir umsóknirnar. Innlent 13. ágúst 2024 11:31
Þórhallur ráðinn fjármálastjóri SORPU Þórhallur Hákonarson hefur verið ráðinn fjármálastjóri SORPU. Hann starfaði áður sem sviðsstjóri fjármálasviðs hjá Lyfjastofnun undanfarin sextán ár, meðal annars sem staðgengill forstjóra. Viðskipti innlent 13. ágúst 2024 10:44
Fjögur sóttu um embætti yfirdýralæknis Fjórir sóttu um starf yfirdýralæknis. Það eru þau Brigitte Brugger, sérgreinadýralæknir, Egill Þorri Steingrímsson, dýralæknir, Vigdís Tryggvadóttir, sérgreinadýralæknir og Þóra Jóhanna Jónasdóttir, sérgreinadýralæknir. Öll starfa þau hjá Matvælastofnun. Egill Þorri á að hefja starf sem nýr sviðsstjóri í september. Innlent 9. ágúst 2024 13:54
Sex vilja stýra Jafnréttisstofu Sex umsækjendur eru um embætti framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu sem forsætisráðherra auglýsti um miðjan júní. Umsóknarfrestur rann út 1. ágúst en stofan er staðsett á Akureyri. Innlent 7. ágúst 2024 11:59
Snæbjörn nýr leikhússtjóri í Tjarnarbíói Snæbjörn Brynjarsson safnstjóri og leikhúsgagnrýnandi hefur verið ráðinn nýr leikhússtjóri í Tjarnarbíói. Hann tekur við starfinu af Söru Martí Guðmundsdóttur sem hefur gegnt hlutverkinu undanfarin tvö ár. Menning 7. ágúst 2024 11:24
Frá Bjarna Benediktssyni til Bestseller Nanna Kristín Tryggvadóttir ráðinn framkvæmdastjóri Bestseller á Íslandi sem rekur meðal annars Jack & Jones, Vero Moda, Selected, Vila og Name It. Viðskipti innlent 6. ágúst 2024 23:04
Þóra frá VIRK til Visku Þóra Þorgeirsdóttir félagsráðgjafi hefur verið ráðin ráðgjafi hjá Visku og hefur störf hjá félaginu síðla hausts. Þóra hefur í ellefu ár starfað sem ráðgjafi hjá VIRK - starfsendurhæfingu. Viðskipti innlent 1. ágúst 2024 16:46
Þórður Snær segir skilið við Heimildina Þórður Snær Júlíusson hefur látið af störfum sem annar tveggja ritstjóra Heimildarinnar. Fjölmiðilinn Kjarnann, sem sameinaðist Stundinni árið 2023, stofnaði hann fyrir tæpum ellefu árum síðan. Viðskipti innlent 31. júlí 2024 17:19
Skipaður varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Forsætisráðherra hefur á grundvelli niðurstöðu ráðgefandi hæfnisnefndar skipað Tómas Brynjólfsson í embætti varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika til fimm ára. Viðskipti innlent 31. júlí 2024 16:12
Friðbjörn tekur við Unimaze Friðbjörn Hólm Ólafsson hefur tekið við stöðu framkvæmdastjóra Unimaze. Fyrirtækið er eitt af leiðandi fyrirtækjum í Evrópu í sjálfvirkni viðskiptaferla og stöðlum sem tengjast rafrænni skeytamiðlum, að því er segir í tilkynningu. Viðskipti innlent 31. júlí 2024 13:45
Aðstoðarforstjóri Play hættur Arnar Már Magnússon, aðstoðarforstjóri Play og framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs, hefur hætt störfum hjá félaginu. Hann er einn af stofnendum Play og var fyrsti forstjóri flugfélagsins. Innan við þrír mánuðir eru síðan hann tók við stöðu aðstoðarforstjóra. Viðskipti innlent 30. júlí 2024 14:36
Þrettán vilja stýra ráðuneyti Svandísar Þrettán umsækjendur eru um embætti ráðuneytisstjóra innviðaráðuneytisins sem auglýst var um miðjan júní sl. en umsóknarfrestur rann út 19. júlí. Innlent 24. júlí 2024 15:21
Gústi Jó ráðinn markaðsstjóri Vöruverndar Ágúst Jóhannsson handboltaþjálfari, gjarnan þekktur sem Gústi Jó, hefur verið ráðinn sem sölu- og markaðsstjóri hjá Vöruvernd. Viðskipti innlent 24. júlí 2024 13:42
Guðrún Jóhanna nýr skólastjóri Söngskólans Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, söngkona, stofnandi og stjórnandi Sönghátíðarinnar í Hafnarborg, hefur verið ráðin nýr skólastjóri Söngskólans í Reykjavík frá og með mánaðamótum. Menning 24. júlí 2024 11:12
Eyþór fyllir í skarð Rósu hjá Heimum Björn Eyþór Benediktsson, forstöðumaður upplýsinga og greininga hjá Heimum, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármála Heima frá og með 1. september næstkomandi. Fasteignafélagið breytti um nafn í maí en það hét áður Reginn. Viðskipti innlent 24. júlí 2024 10:07
Víkingur skiptir um hlutverk hjá Öskju Víkingur Grímsson hefur verið ráðinn markaðsstjóri Bílaumboðsins Öskju. Víkingur hefur starfað hjá Öskju frá árinu 2017 og gegndi síðast starfi forstöðumanns viðskiptatengsla, hann hefur átt sæti í framkvæmdastjórn félagsins frá árinu 2022. Viðskipti innlent 18. júlí 2024 13:56
Einar Hrafn ráðinn markaðsstjóri Einar Hrafn Stefánsson tónlistarmaður hefur verið ráðinn til nýsköpunar- og fjártæknifyrirtækisins Blikk í starf markaðsstjóra. Viðskipti innlent 18. júlí 2024 10:34