Myndaveisla: Töfrandi stemning á stórtónleikum Laufeyjar „Ég þekki svo marga úti í salnum,“ sagði tónlistarkonan Laufey er hún ávarpaði tónleikagesti í Kórnum í Kópavogi í kvöld. „Ég er svo stressuð.“ 15.3.2026 00:17
Gular viðvaranir á norðvesturhorninu: Rýma atvinnuhúsnæði og loka vegum Nokkur atvinnuhúsnæði á Ísafirði verða rýmd í fyrramálið vegna snjóflóðahættu, að sögn Veðurstofu Íslands. Sömuleiðis verður Flateyrarvegi og Súðavíkurhlíð lokað á miðnætti, en í nótt taka gular veðurviðvaranir gildi á norðvesturhorni landsins. 14.3.2026 21:40
Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Bandaríkin gerðu árás á aðalútflutningshöfn Írana í nótt og írönsk stjórnvöld hóta nú að ráðast á hafnir í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, sem gæti valdið talsverðri stigmögnun á stríðinu í Mið-Austurlöndum. Bandaríkjaforseti heldur því fram að Bretar, Kínverjar og Frakkar ætli meðal annars að aðstoða við að tryggja örugga olíuflutninga um Hormússund en téð ríki eiga enn eftir að staðfesta það. Enn hefur ekkert sést til æðstaklerks Írans. 14.3.2026 20:41
Lokuðu aftur Rammagerðinni þrátt fyrir úrskurð um greiðsluskjól Isavia lokaði í nótt öllum þremur verslunum Rammagerðarinnar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, þrátt fyrir að félagið hafi fengið greiðsluskjól samkvæmt dómaraúrskurði. Gerðist þetta í kjölfar þess að framkvæmdastjóri verslunarinnar gagnrýndi framferði flugvallarins og sagðist ætla að fara fram á lögbann á hendur ríkisfyrirtækinu. 14.3.2026 19:28
Tollmiðlari í stafni S-listans í Hveragerði Birgitta Ragnarsdóttir tollmiðlari leiðir lista Samfylkingarinnar og óflokksbundinna í Hveragerði í komandi sveitarstjórnarkosningum. 14.3.2026 18:16
Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Donald Trump Bandaríkjaforseta er mikið í mun að karlmenn í ríkisstjórn sinni klæðist ákveðnu skómerki sem er í miklu uppáhaldi hjá forsetanum. Svo annt er honum um skótískuna í Hvíta húsinu að menn eru farnir að óttast að láta sjást í öðru, jafnvel þegar skórnir passa ekki einu sinni. 14.3.2026 08:32
Matthías leiðir Framsókn í Árborg Matthías Bjarnason, tæknimaður og varabæjarfulltrúi, leiðir lista Framsóknar í Árborg fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar 2026. Ellý Tómasdóttir, bæjarfulltrúi, verkefnastjóri og forvarnarfulltrúi, skipar annað sætið. 14.3.2026 01:43
Fara fram á lögbann á Isavia Verslunarmenn í Rammagerðinni segjast ætla að fara fram á lögbann á Isavia þar sem ríkisfyrirtækið hafi lokað verslun Rammagerðarinnar á Keflavíkurflugvelli í leyfisleysi. Isavia telur Rammagerðina skulda í leigu en Rammagerðin segir forsendur leigusamningsins löngu brostnar. 13.3.2026 23:23
„Ekki rétt með farið að einkareknu stöðvarnar séu að skara fram úr“ Forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir það ekki rétt að einkareknar heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu skari fram úr hinum opinberu. Framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs segist vilja auka heilbrigða samkeppni milli heilsugæslustöðva enda sé biðtími eftir lækni að meðaltali langur. 13.3.2026 21:24
Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Bandaríkin senda nú um 2.500 bandaríska landgönguliða til Mið-Austurlanda. Enn halda árásir Bandaríkjamanna og Ísraelsmanna á Íran áfram og Íranir hafa ekki látið af árásum sínum á olíuflutningaskip í Persaflóa. 13.3.2026 20:39