Létu gesti í stafrænni nafnaveislu halda að drengurinn hefði fengið nafnið Þórólfur Víðir Hinir nýbökuðu foreldrar, Hildur María Haarde og Baldur Kári Eyjólfsson, ákváðu að fíflast aðeins í gestum stafrænnar nafnaveislu þriggja mánaða sonar síns fyrr í dag með því að fá þá til að halda að drengurinn hefði fengið nafnið Þórólfur Víðir. 21.3.2020 22:00
Rúmur milljarður til viðbótar í menningu, íþróttir og rannsóknir Mennta- og menningarmálaráðuneyti hyggst leggja 750 milljónum króna til viðbótar í menningarverkefni og stuðning við starfsemi íþróttafélaga á næstu vikum. Er það gert til að sporna við efnahagsáhrifum faraldurs kórónuveirunnar. 21.3.2020 20:44
Allir íbúar í Húnaþingi vestra í úrvinnslusóttkví Aðgerðarstjórn almannavarna grípa til þessarar ráðstöfunar vegna grunsemda um víðtækt smit í sveitarfélaginu og verður því að grípa til hertra sóttvarnaraðgerða strax. 21.3.2020 18:46
793 látnir af völdum veirunnar á Ítalíu síðasta sólarhringinn Ekkert lát virðist vera á dauðsföllum á Ítalíu tengdum kórónuveirunni. 21.3.2020 18:27
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Kvöldfréttir Stöðvar 2 hefjast á slaginu 18:30. Hægt er að fylgjast með á Vísi. 21.3.2020 18:00
Herða reglur um samkomubann í Eyjum: Að hámarki tíu saman á hverjum stað Aðgerðastjórn almannavarna hafa hert reglur um samkomubann í Vestmannaeyjum. Allir viðburðir þar sem tíu eða fleiri koma saman eru nú bannaðir. 21.3.2020 17:45
167 í sóttkví á Vestfjörðum og eitt staðfest smit Alls eru 167 manns nú í sóttkví á Vestfjörðum og tveir í einangrun. Vegna kórónuveirunnar sem nú herjar á heimsbyggðina. 21.3.2020 17:30
Níu manns nú látnir í Danmörku Heilbrigðisyfirvöld í Danmörku hafa greint frá því að þrír til viðbótar hafi látist af völdum kórónuveirunnar í landinu. 20.3.2020 09:53
Varúðarráðstafanir vegna veikra skipverja í Eyjum Grunur lék á að hluti skipverja væri smitaður af kórónuveiru. 20.3.2020 08:58
Fjórir teknir af lífi vegna hópnauðgunarinnar í Delí Fjórir karlmenn hafa verið teknir af lífi eftir að hafa verið dæmdir til dauða vegna hópnauðgunar og morðs í höfuðborginni Delí sem skók Indland árið 2012. 20.3.2020 08:36