Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Samúel Karl Ólason skrifar 6. október 2026 00:00 Skjáskot úr einnig auglýsingunni. Donald Trump segir að hann muni láta eigin pólitíska aðgerðanefnd, svokallaða Super PAC, greiða fyrir umdeildar auglýsingar sem hafa verið birtar í bandarískum fjölmiðlum á undanförnum vikum. Auglýsingarnar, sem þykja mjög pólitískar í aðdraganda þingkosninga, hafa verið fjármagnaðar af heimavarnaráðuneyti Bandaríkjanna en stofnunum ætti að vera óheimilt að gera slíkar auglýsingar.
Heimavarnaráðuneytið hefur varið meira en tíu milljónum dala af opinberu fé í auglýsingarnar en fyrstu auglýsingarnar voru birtar í síðasta mánuði. AP-fréttaveitan sagði frá því á dögunum að til stæði að verja tuttugu milljónum dala í þær fram að kosningum. Það samsvarar tæplega 2,5 milljörðum króna. New York Times hefur sagt frá því að Trump hafi sjálfur skipað starfsmönnum sínum að fjármagna auglýsingarnar úr opinberum sjóðum. Ein auglýsingin, sú fyrsta sem var birt, sýnir myndir af Trump sjálfum á meðan hann heyrist tala um að hann og bandamenn hans muni sigra kommúnista, sósíalista, djúpríkið og aðra meinta andstæðinga sem finna megi innan Bandaríkjanna. Undir því má svo heyra kór syngja „Love me“ eða „elskið mig“. Auglýsingin og aðrar svipaðar hafa birst í útsendingum margra bandarískra sjónvarpsstöðva. Önnur auglýsinga var nákvæmlega eins og auglýsing framboðs Trumps frá forsetakosningunum 2024, þar sem Trump fordæmdi frekari meinta óvini sína. Enn ein fjallaði svo um stríðið gegn Íran og innihélt ummæli Trumps og Petes Hegseth, varnarmálaráðherra. Allar enduðu á skilaboðum um að þær hefðu verið kostaðar af ríkisstjórn Bandaríkjanna. Ekki auglýsingar, heldur „upplýsingaherferð í almannaþágu“ Þetta hefur verið harðlega gagnrýnt af þingmönnum Demókrataflokksins en þingmenn Repúblikanaflokksins hafa í einhverjum tilfellum tekið undir gagnrýnina, þó þeir hafi að mestu orðað kvartanir sínar vandlega. Öldungadeildarþingmenn Demókrataflokksins sendu Markwayne Mullin, heimavarnaráðherra og fyrrverandi öldungadeildarþingmanni, í síðustu viku bréf þar sem þeir vísuðu til þess að áðurnefndar tuttugu milljónir hefðu samkvæmt fjárlögum átt að fara í öryggi á landamærum Bandaríkjanna. „Við ættum ekki að þurfa að minna þig á að það að nota opinbera peninga til að framleiða eða birta pólitískar auglýsingar eins og þær sem hafa verið birtar á undanförnum dögum er ólöglegt og sláandi misnotkun á peningum skattgreiðenda.“ Þingmennirnir kölluðu eftir frekari upplýsingum um auglýsingarnar og peningana sem hefðu verið notaðir í þær. Þá hafa einnig verið höfðuð dómsmál vegna auglýsinganna. Talsmenn ráðuneytisins og ríkisstjórnarinnar hafa staðhæft að ekki sé um pólitískar auglýsingar að ræða, heldur sé um að ræða upplýsingaherferð í almannaþágu. Sjálfur hefur Trump haldið því fram að þetta séu auglýsingar fyrir Bandaríkin. „Þið verðið að skilja. Ég er ekki að auglýsa frambjóðanda. Ég er ekki að auglýsa sjálfan mig, því ég er ekki í framboði. Ég er að auglýsa landið.“ Þegar blaðamaður gekk á hann í síðustu viku, sagðist Trump ætla að greiða sjálfur fyrir auglýsingar. Það myndi hann gera með glöðu geði, ef í ljós kæmi að hann væri að gera eitthvað rangt. Trump on Taxpayer Funded Campaign Ads: That's a countrywide ad. That's an ad for the spirit of our country. Now if somebody said that's wrong, I'll gladly pay the money, but these are ads for the country. I’m not promoting a candidate or myself. https://t.co/A0E4uEdP2Z— Acyn (@Acyn) September 30, 2026 Sagði auglýsingarnar hefðbundnar Trump lýsti því yfir á Truth Social, hans eigin samfélagsmiðli, að hann ætlaði nú að láta MAGA Inc, pólitíska aðgerðanefnd sína, greiða fyrir auglýsingarnar. Það sagði hann að væri til komið vegna þess að „öfga-vinstrið“ væri miður sín yfir þessum jákvæðu auglýsingum fyrir Bandaríkin, eins og hann orðaði það, og sagði að slíkar auglýsingar væru hefðbundnar. Færsla Trumps á Truth Social. Trump hefur í gegnum MAGA Inc safnað fúlgum fjár. Aðgerðanefndin átti í aðdraganda þingkosninganna sem fara fram í næsta mánuði um fjögur hundruð milljónir dala þegar mest var. Sjá einnig: Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Staða Repúblikana þykir slæm víða um Bandaríkin og hefur það að miklu leyti verið rakið til mikilla óvinsælda Donalds Trump, forseta. Þingkosningar munu fara fram í byrjun nóvember en baráttan snýst um hverjir munu stjórna báðum deildum þings næstu tvö árin. Repúblikanar eru byrjaðir að verja gífurlegum peningum til að reyna að halda meirihluta sínum í öldungadeildinni en fjölmiðlar vestanhafs segja að miðað við hvar verið er að verja þessum peningum, sé útlit fyrir að leiðtogar flokksins hafi gefið meirihluta þeirra í fulltrúadeildinni upp á bátinn.
Bandaríkin Donald Trump Þingkosningar í Bandaríkjunum Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Innlent Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Erlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Fleiri fréttir Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Sjá meira