Íslendingar vekja athygli í menningarlífi Kaupmannahafnar Íslensku myndlistarkonurnar Elísabet Olka og Högna Heiðbjört Jónsdóttir opnuðu sýninguna Montage með stæl í Kaupmannahöfn í byrjun apríl. Íslenska þemað var tekið alla leið þar sem sýningin fór fram í galleríinu Wild Horses sem er rekið af myndlistarkonunni og hönnuðinum Sigurrós Eiðsdóttur. 29.4.2025 10:14
Nýtur lífsins í viktorísku koti í London Fyrirsætan og verkefnastjórinn Anna Jia hefur búið í London síðastliðin sex ár og nýtur lífsins í botn þar með eiginmanni sínum og dóttur þeirra Lily Björk. Fjölskyldan keypti gamalt viktorískt kot sem þau gerðu upp og þau þrífast vel í fjölbreyttu og skemmtilegu mannlífi stórborgarinnar. Blaðamaður ræddi við Önnu um lífið úti. 29.4.2025 07:01
Giftu sig við persónulega athöfn í sólinni Leikkonan og Twilight stjarnan Kristen Stewart er gift kona. Hún gekk að eiga sína heittelskuðu, kvikmyndagerðakonuna Dylan Meyer, í lítilli og persónulegri athöfn í Los Angeles 20. apríl síðastliðinn og birti Meyer fallegar myndir af þeim hjónum á Instagram um helgina. 28.4.2025 15:00
Elti ástina til Íslands „Í hvert skipti sem ég skapa þá reyni ég að byggja brú á milli ólíkra hluta, ólíkra menninga og hugmynda, því í kjarnann er ég þannig listamaður,“ segir tónlistarmaðurinn Sonny Bouraima, sem notast við listamannsnafnið snny og var að senda frá sér plötuna caféradio. 24.4.2025 07:00
Taka ákvörðun á hverjum degi að elska hvort annað „Það er alltaf hægt að rækta neistann. Við erum alveg funheit í dag,“ segja hjónin Theodór Francis Birgisson, klínískur félagsráðgjafi og fjölskylduráðgjafi, og Katrín Katrínardóttir, klínískur félagsráðgjafi, áfallasérfræðingur og myndlistarkona. Þau hafa verið par í fjörutíu ár og ræddu við Bítið um hver lykillinn sé að langlífu hjónabandi. 23.4.2025 20:01
Hugmyndin kviknaði í New York þegar eldgos hófst heima Listakonan Kristín Helga Ríkharðsdóttir hefur komið víða við í hinum skapandi heimi og lærði í New York. Hún var að opna einkasýninguna Data gígar hérlendis í nýju rými Gallery Þulu sem opnaði með pomp og prakt um síðustu helgi. 23.4.2025 14:03
Í sérsaumuðum kjól úr ónothæfum peysum Tónlistarkonan Una Torfadóttir naut sín í botn á sviðinu á tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður á Ísafirði um helgina. Klæðaburður hennar greip auga blaðamanns sem fékk að heyra nánar frá þessum sérsaumaða kjól sem vinur hennar hannaði sérstaklega fyrir Unu. 22.4.2025 13:01
Hafa aldrei rifist „Við erum ennþá að reyna að finna eitthvað til þess að rífast yfir,“ sagði Hollywood stjarnan George Clooney í viðtali á dögunum. Þar hélt hann því fram að hann og eiginkona hans, mannréttindalögfræðingurinn Amal Clooney, hafi aldrei nokkurn tíma rifist. 22.4.2025 11:32
Ekki á leið í samband bara til að þóknast samfélaginu „Lífið hefur náttúrulega breyst mjög mikið og þetta er búið að vera algjör rússíbani,“ segir leikkonan og lífskúnstnerinn Sandra Barilli sem hefur algjörlega slegið í gegn í sjónvarpsseríunni IceGuys. Sandra er viðmælandi í Einkalífinu þar sem hún fer yfir skrautlegt og skemmtilegt líf sitt á djúpum nótum. 20.4.2025 07:00
„Þetta er allt partur af plani hjá guði“ „Við höfum verið að prakkarast saman frá því við vorum litlir,“ segja bræðurnir óaðskiljanlegu Hálfdán Helgi og Matthías Davíð Matthíassynir sem saman mynda hljómsveitina Væb. Strákarnir eru nú að undirbúa sig fyrir stærstu tónlistarstund í lífi þeirra hingað til, Eurovision í Sviss, og eru ekkert að láta stressið þvælast fyrir sér. Blaðamaður ræddi við þá um líf þeirra og listina. 19.4.2025 07:01
Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Innlent