Frönsk stjórnvöld hljóta dóm fyrir sinnuleysi í loftslagsmálum Dómstóll í París hefur dæmt frönsk stjórnvöld sek um sinnuleysi og að bregðast skuldbindingum sínum í loftslagsmálum. Dómurinn þykir sögulegur en dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að frönsk stjórnvöld væru sek um að „virða ekki skuldbindingar sínar“ í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. 3.2.2021 23:30
Maðurinn sem myrti Freyju áður verið dæmdur fyrir morð Karlmaðurinn sem játað hefur að hafa myrt Freyju Egilsdóttur í Malling á Jótlandi hefur áður verið dæmdur fyrir morð. Árið 1996 hlaut hann dóm fyrir morðið á annarri barnsmóður sinni, en sonur þeirra var þá tveggja ára gamall. 3.2.2021 21:13
„Eins og það sé verið að refsa manni fyrir að eignast barn“ „Þetta er kvennamál eins mikið og viljum og segjum að við búum í feminískri útópíu, þá er þetta kvennamál,“ segir Ásgerður Heimisdóttir, móðir og nemandi í vöruhönnun við Listaháskóla Íslands. Dóttir Ásgerðar kom í heiminn í desember 2019 og ætla mætti að þá hefði Ásgerður átt rétt á fæðingarorlofsgreiðslum eða fæðingarstyrk námsmanna. Svo var hins vegar ekki. Hún féll á milli kerfa og reyndist algjörlega réttlaus. 3.2.2021 21:00
„Það á enginn að vera hræddur um að stíga fram ef hann telur á sér brotið” Félagsfræðingur sem safnað hefur saman og birt nafnlausar sögur um áreitni og kynferðisofbeldi innan íþróttahreyfingarinnar segir að sögur sem bárust frá leikmönnum í körfuboltanum hafi komið henni mest á óvart. Formaður KKÍ segir að mikil vakning hafi orðið með MeToo-hreyfingunni og að enginn eigi að vera smeykur við að stíga fram og greina frá ofbeldi. 3.2.2021 19:35
Ber sig vel þrátt fyrir að hafa fengið grjót í höfuðið og frostbit á fingur Fjallagarpurinn John Snorri Sigurjónsson og föruneyti hans hyggst leggja af stað á toppinn á K2 að morgni föstudags að staðartíma í Pakistan. Síðasta tilraun til að komast á toppinn tókst ekki en þá þurfti John Snorri að snúa við vegna veðurs sem olli því að teymið tapaði hluta af búnaði sínum. 3.2.2021 17:30
Fimm konur og fimm karlar bjóða sig fram fyrir Framsókn í NV-kjördæmi Fimm konur og fimm karlar sækjast eftir sæti á lista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar. Val á listann mun fara fram með póstkosningu dagana 16. febrúar til 13. mars að því er fram kemur í tilkynningu frá kjörstjórn Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi. 2.2.2021 23:03
Framsóknarmenn „hafi séð ljósið“ og hljóti nú að styðja frumvarp sitt um brugghús Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segist hljóta að líta á frumvarp þriggja þingmanna Framsóknarmanna um breytingar á áfengislögum, sem stuðning við sitt eigið frumvarp sama efnis. Áslaug segir sitt frumvarp ítrekað hafa mætt mótstöðu og gerðir við það fyrirvarar í ríkisstjórn og í þingflokkum samstarfsflokkanna og því skjóti skökku við að þingmenn Framsóknarflokksins, þeir sömu og sett hafi fyrirvara við hennar mál, leggi nú fram sambærilegt frumvarp í eigin nafni. 2.2.2021 22:24
Vara við svikaskilaboðum sem virðast koma frá Skattinum Lögreglan á Austurlandi varar við sviksamlegum SMS-skilaboðum þar sem óprúttnir aðilar fara undir fölsku flaggi og reyna að leiða viðtakendur skilaboðanna inn á falska heimasíðu Skattsins. 2.2.2021 21:20
Fyrsta barnið látið af völdum Covid-19 í Danmörku Dönsk heilbrigðisyfirvöld staðfestu í dag að barn, sem er á aldursbilinu núll til níu ára, hafi látist af völdum covid-19. Er það fyrsta barnið sem lætur lífið í Danmörku af völdum sjúkdómsins samkvæmt opinberum gögnum. TV2 greinir frá en barnið glímdi við undirliggjandi alvarleg veikindi. 2.2.2021 20:59
Birtir nafnlausar frásagnir íþróttakvenna til að fá sögurnar upp á yfirborðið „Það var grillveisla og liðið fer saman út á lífið ásamt þjálfara. Þjálfarinn króar okkur af út í horni og við förum að spjalla bara, allir hressir. Við spyrjum hann hvers vegna ein stúlka gefi ekki kost á sér í þetta skipti sem var mikilvægur hlekkur liðsins. Þjálfarinn lætur þetta út úr sér: „Ég skal segja ykkur það ef þið komið í sleik við mig.“ og „ég skal segja ykkur það ef þið komið með mér í threesome.“ 2.2.2021 19:49