Milljarðs halli á vetrarþjónustunni samhliða ákalli eftir aukinni þjónustu G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, segir að þótt alltaf sé tekið mark á ábendingum frá vegfarendum um færð á vegum, þá þurfi Vegagerðin einnig að byggja ákvörðun um lokun vega á eigin upplýsingum. Þá sé um eins milljarðs halli á rekstri vetrarþjónustu á sama tíma og ákall séum aukna þjónustu. 23.1.2021 11:46
„Þegar ég lendi í flóðinu þá er ég upp að hnjám þegar það stoppar“ Hannes Rúnarsson atvinnubílstjóri, sem lenti í snjóflóði á Öxnadalsheiði í gærkvöldi, kveðst undrandi yfir vinnubrögðum Vegagerðarinnar, sem hafi að hans mati allt of seint tekið ákvörðun um að loka heiðinni þrátt fyrir að hafa fengið upplýsingar um að heiðin væri ófær. Til allrar lukku hafi farið betur en á horfðist en snjóflóðið náði Hannesi upp að hnjám, en hann var í óða önn ásamt þremur öðrum við að moka upp fjölskyldubíl sem sat fastur í skafli þegar flóðið féll. 23.1.2021 11:07
Biden biðst afsökunar vegna aðbúnaðar þjóðvarðliða Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur beðist afsökunar vegna aðbúnaðar liðsmanna í þjóðvarðliði Bandaríkjanna, sem stóðu vaktina við þinghúsið, sem neyddust til að sofa í bílakjallara. 23.1.2021 09:36
Biden og Harris taka við embætti: Dagurinn í myndum Fánar blöktu þar sem venjulega stendur fólk, þjóðvarðliðar í þúsundatali gengu fylktu liði um Washington-borg og fráfarandi forseti var ekki viðstaddur þegar nýr forseti tók við embætti Bandaríkjaforseta í dag. Dagurinn var fyrir margar sakir sögulegur, ekki hvað síst vegna þess að í fyrsta sinn í sögu Bandaríkjanna er kona orðin varaforseti. 21.1.2021 00:34
Gjörólíkir persónuleikar Bidens og Trumps eigi eftir að hafa áhrif á stefnuna Albert Jónsson, alþjóðastjórnmálafræðingur og fyrrverandi sendiherra, segir viðbúið að margt muni breytast hvað varðar bandaríska utanríkisstefnu nú eftir að Joe Biden og hans stjórn hefur tekið við völdum í Bandaríkjunum að lokinni embættistíð Donalds Trump. Samkeppni Bandaríkjanna og Kína muni þó áfram vega þungt í bandarískri utanríkisstefnu. Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti, tekur undir þetta og sér fram á breytta stefnu í málefnum Norðurslóða og samskiptum við bandamenn í Evrópu. 21.1.2021 00:29
Kamala Harris nú með oddaatkvæðið í öldungadeildinni Hinn 33 ára gamli Jon Ossoff, varð í dag yngsti þingmaðurinn í öldungadeild Bandaríkjaþings en hann er jafnframt yngsti Demókratinn til að taka sæti í öldungadeildinni síðan Joe Biden varð öldungadeildarþingmaður árið 1973, þá 30 ára gamall. 20.1.2021 22:57
Biden þegar byrjaður að snúa við ákvörðunum Trumps Joe Biden skrifaði undir sínar fyrstu forsetatilskipanir í dag, fljótlega eftir að hann steig í fyrsta sinn inn á skrifstofu forseta í Hvíta húsinu eftir að hafa tekið við embætti forseta. Hann sagði tilskipanirnar vera „djarfar“ og að þær snúist um að uppfylla loforð hans gagnvart Bandarísku þjóðinni. 20.1.2021 22:47
Þrettán meðlimir Trump-fjölskyldunnar njóta áfram verndar leyniþjónustunnar Þrettán meðlimir Trump-fjölskyldunnar munu áfram njóta þjónustu leyniþjónustu Bandaríkjanna, sem áfram mun annast öryggisgæslu fjölskyldunnar, nú eftir að Donald Trump hefur lokið tíð sinni í embætti forseta Bandaríkjanna. 20.1.2021 21:11
Biden mættur í Hvíta húsið Joe Biden gekk nú fyrir nokkrum mínútum inn um hliðið og í Hvíta húsið í fyrsta sinn sem forseti Bandaríkjanna. Biden gekk síðasta spölinn í stórri skrúðgöngu, sem fram fór að lokinni innsetningarathöfn, ásamt fjölskyldu sinni og er nú mættur í Hvíta húsið. Þetta er þó sannarlega ekki í fyrsta sinn sem hann kemur í Hvíta húsið enda var hann varaforseti í tíð Baracks Obama. 20.1.2021 21:04
„Hin miklu tíðindi“ eru þau að nú er kona varaforseti Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, óskar nýjum forseta Bandaríkjanna velfarnaðar nú þegar hann hefur tekið við embætti. Guðni hyggur að meiri áhersla verði lögð meðal annars á loftslagsmál og jafnréttismál í tíð nýrrar ríkisstjórnar í Bandaríkjunum frá því sem var í stjórnartíð Trump. Guðni segir ein stærstu tíðindin vera þau að í fyrsta sinn sé það nú kona sem gegni embætti varaforseta. 20.1.2021 20:05