Bankinn mun vilja „bíða og sjá“ og heldur vöxtum óbreyttum þriðja fundinn í röð Margt hefur fallið með peningastefnunefnd Seðlabankans frá síðustu ákvörðun, sem endurspeglast í vísbendingum um hratt kólnandi hagkerfi og lækkandi verðbólgu- og verðbólguvæntingum, en vegna óvissu um lyktir kjarasamninga og áhrifin á ríkissjóð vegna jarðhræringana á Reykjanesi mun nefndin vilja „bíða og sjá“ og heldur því vöxtum óbreyttum í vikunni, að mati mikils meirihluta markaðsaðila og hagfræðinga í vaxtakönnun Innherja. Sumir telja hins vegar enga ástæðu til að bíða með að hefja vaxtalækkunarferlið enda sé raunvaxtastigið búið að hækka „verulega umfram“ það sem Seðlabankinn hafi reiknað með. 5.2.2024 11:59
Arion freistar þess að selja um tíu prósenta hlut bankans í Eyri Invest Arion leitar nú að áhugasömum fjárfestum til að kaupa allan eignarhlut bankans í Eyri Invest en fjárfestingafélagið er langsamlega stærsti hluthafi Marel sem á núna í formlegum viðræðum um samruna við John Bean Technologies. Þrír mánuðir eru síðan Arion leysti til sín samanlagt nálægt tíu prósenta hlut sem var áður í eigu feðganna Árna Odds Þórðarson, þáverandi forstjóra Marel, og Þórðar Magnússonar, fyrrverandi stjórnarformanns Eyris í meira en tvo áratugi, en Árni Oddur leitar nú leiða til að komast að nýju yfir þau bréf í gegnum nýtt fjárfestingafélag sem hann fer fyrir. 4.2.2024 14:16
Breskur eignastýringarrisi byggir upp stöðu í Oculis Breska eignarstýringarfélagið Standard Life Aberdeen er komið í hóp stærri hluthafa augnlyfjaþróunarfyrirtækisins Oculis, stofnað af tveimur íslenskum prófessorum og skráð á markað vestanhafs, eftir að hafa byggt upp stöðu í félaginu undir lok síðasta árs. Hlutabréfaverð Oculis hefur hækkað um nærri fimmtán prósent frá áramótum. 1.2.2024 19:41
Olíusjóðurinn stækkar stöðu sína í sértryggðum bréfum á íslensku bankanna Verðbréfaeign olíusjóðs Noregs, stærsti fjárfestingarsjóður í ríkiseigu á heimsvísu, í íslenskum fyrirtækjum og ríkisskuldabréfum jókst nokkuð á liðnu ári þegar hann bætti enn frekar við sig með kaupum á sértryggðum skuldabréfum á bankanna. Á sama tíma hélt eign sjóðsins áfram að minnka í íslenskum ríkisbréfum. 1.2.2024 11:21
Undirliggjandi verðbólga minnkar en telur „útilokað“ að vextir lækki strax Þrátt fyrir að varast beri að lesa of mikið í óvænta lækkun á vísitölu neysluverðs, sem mátti einkum rekja til sveiflubundinna liða, þá er afar jákvætt að undirliggjandi verðbólga virðist vera að dragast saman sem gefur tilefni til aukinnar bjartsýni, að mati greiningar Arion banka. Verðbólguálagið á markaði hefur hríðfallið frá því í gærmorgun en skuldabréfamiðlari telur hins vegar „útilokað“ að peningastefnunefnd muni lækka vexti strax í næstu viku, einkum þegar enn er ósamið á almennum vinnumarkaði. 31.1.2024 13:49
Sótti yfir tvo milljarða frá fjárfestum og greiddi upp skuldir við Landsbankann Árni Oddur Þórðarson, fyrrverandi forstjóri Marel til tíu ára, hefur klárað fjármögnun upp á vel yfir tvo milljarða króna frá hópi einkafjárfesta og um leið gert upp skuldir sínar við Landsbankann. Hann verður með minnihluta í nýju fjárfestingafélagi sem heldur utan um stóran hlut í Eyri Invest. 30.1.2024 14:38
Mælir nú með kaupum í Alvotech og hækkar verðmatið um 70 prósent Alþjóðlegi fjárfestingabankinn Barclays mælir með því að fjárfestar bæti við sig í Alvotech, áður ráðlagði hann þeim að halda stöðu sinni, og hækkar verulega verðmatsgengi sitt á íslenska líftæknilyfjafélagið eftir að ljóst varð að það á von á því að fá samþykkt markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir sín stærstu lyf. Fjárfestar eru nú með meiri vissu um að sá fjöldi lyfja sem eru í þróun hjá Alvotech fari að skila tekjum, að sögn Barclays, sem telur félagið verða með sterka samkeppnisstöðu á markaði vestanhafs með hliðstæðu við gigtarlyfið Humira. 29.1.2024 12:30
Fjármagn flæddi í hlutabréfasjóði á síðasta mánuði ársins Eftir nánast samfellt útflæði úr hlutabréfasjóðum um langt skeið varð viðsnúningur á síðasta mánuði ársins 2023 þegar fjárfestar settu talsvert fjármagn í slíka sjóði samhliða því að hlutabréfamarkaðurinn fór á mikið flug. Á sama tíma var hins vegar ekkert lát á áframhaldandi sölu fjárfesta í blönduðum sjóðum og skuldabréfasjóðum. 29.1.2024 10:37
Gætu fengið yfir fimmtán milljarða fyrir þriðjungshlut í Ljósleiðaranum Væntingar eru um að Ljósleiðarinn, dótturfélag Orkuveitu Reykjavíkur, geti verið verðlagður á nálægt fimmtíu milljarða króna í áformuðu hlutafjárútboði félagsins síðar á árinu þar sem til stendur að sækja aukið hlutafé með sölu á þriðjungshlut til nýrra fjárfesta. Mögulegur áhugi lífeyrissjóða veltur meðal annars á því að það takist að fá inn sérhæfða fjárfestingarsjóði að útboðinu. 25.1.2024 16:35
Félag Róberts seldi breytanleg bréf á Alvotech fyrir um milljarð Fjárfestingafélag í aðaleigu Róbers Wessman, stofnanda og forstjóra Alvotech, seldi í síðustu viku, daginn áður en Lyfjaeftirlit Bandaríkjanna lauk úttekt sinni á framleiðsluaðstöðu fyrirtækisins, breytanleg skuldabréf á líftæknilyfjafélagið fyrir tæplega einn milljarð króna. Bréfin voru seld með tugprósenta hagnaði frá því að þau voru keypt í lok júlí í fyrra. 24.1.2024 20:17