Rekstrartap hjá kísilverinu á Bakka samhliða lækkandi verði á kísilmálmi Eftir að hafa verið réttum megin við núllið frá lokum síðasta árs varð tap á rekstrinum hjá kísilveri PCC á Bakka á Húsavík á liðnum þriðja ársfjórðungi. Rekstrarumhverfið hefur versnað með lækkandi verði á kísilmálmi samtímis því að hráefniskostnaður hefur hækkað mikið. 16.11.2022 09:14
Gjaldeyriseignir Gildis jukust um nærri tíu prósent á þriðja fjórðungi Eftir að hafa dregist stöðugt saman í um tvö ár þá jókst verulega vægi erlendra fjárfestinga í eignasafni Gildis á liðnum ársfjórðungi þegar gjaldeyriseignir lífeyrissjóðsins hækkuðu um liðlega 24 milljarða. Hlutfall erlendra eigna annarra stærstu lífeyrissjóða landsins jukust sömuleiðis, samt mun minna en í tilfelli Gildis, samhliða því að gengi krónunnar fór lækkandi. 14.11.2022 14:01
Samkeppni um innlán skilar heimilum yfir tíu milljörðum í auknar vaxtatekjur Það hefur orðið „algjör breyting“ á innlánamarkaði eftir innkomu Auðar, fjármálaþjónustu Kviku banka, fyrir meira en þremur árum og núna eru allir bankarnir að bjóða innlánavexti á óbundnum reikningum sem eru nálægt stýrivöxtum Seðlabankans, að sögn bankastjóra Kviku. Auðvelt sé að færa rök fyrir því að þessi umskipti séu að skila heimilum um 10 milljörðum króna eða meira í auknar vaxtatekjur á hverju ári. 14.11.2022 07:00
Hærri vaxtamunur „ólíklegur“ þegar dýrara er orðið að sækja sér fjármagn Eftir að flest hafði unnið með Arion banka í fyrra, bæði vegna hækkana á mörkuðum og jákvæðra virðisbreytinga á útlánum, þá hefur staðan sumpart snúist við í ár með neikvæðum áhrifum á fjármunatekjur. Grunnrekstur bankans hefur hins vegar styrkst, að sögn greinenda, sem heldur verðmati sínu nær óbreyttu. Aukin samkeppni um innlán og krefjandi aðstæður á fjármagnsmörkuðum þýðir að frekar hækkun á vaxtamun er ólíkleg. 13.11.2022 15:46
Kvika skilaði nærri 18 prósenta arðsemi og boðar frekari kaup á eigin bréfum Þrátt fyrir erfiðar aðstæður á fjármálamörkuðum, sem þýddi að fjármunatekjur voru neikvæðar um tæplega 570 milljónir króna, þá skilaði Kvika banki hagnaði fyrir skatta á þriðja fjórðungi upp á meira en 1.840 milljónir. Arðsemi á eigið fé var um 17,7 prósent, sem forstjóri bankans segir að megi þakka „sterkum kjarnarekstri samstæðunnar“, en stjórn félagsins segist á næstunni ætla að skoða hvernig nýta megi umfram eigin fé, meðal annars með kaupum á eigin bréfum. 11.11.2022 08:31
Styrking krónunnar gegn evru þurrkast út þrátt fyrir gjaldeyrissölu Seðlabankans Gengi krónunnar hefur verið í stöðugum veikingarfasa á undanförnum vikum en mikil gengisstyrking framan af ári, einkum gagnvart evrunni, hefur núna gengið til baka og meira en það. Seðlabanki Íslands greip margsinnis inn í á markaði í dag með sölu á gjaldeyri úr forða sínum til að reyna að stemma stigu við of mikilli gengislækkun en samkvæmt nýrri hagspá Arion mun krónan halda áfram að gefa eftir fram á næsta ár. 10.11.2022 16:09
Fyrirtækjarisi á sviði heilbrigðisþjónustu settur í söluferli Fyrirtækjasamstæðan Veritas, sem er í aðaleigu Hreggviðs Jónssonar og rekur fjölmörg umsvifamikil félög á sviði heilbrigðisþjónustu, verður brátt sett í formlegt söluferli sem kemur í kjölfar áhuga sem fjárfestingarsjóðir hafa sýnt fyrirtækinu síðustu mánuði. Forstjóri félagsins, sem veltir samtals nálægt 30 milljörðum króna, segir tímasetninguna núna til að láta reyna á sölu vera góða en innlent fjármálafyrirtæki hefur verið ráðið til að hafa umsjón með ferlinu. Verði af sölunni yrði um að ræða risaviðskipti á íslenskan mælikvarða. 10.11.2022 11:41
Ríkið væri ekki að „efna fyllilega loforð“ um ábyrgð með því að slíta ÍL-sjóði Ein ástæða þess að stjórnvöld hafa nú boðað aðgerðir til að leysa upp ÍL-sjóð er að hann stenst ekki skilyrði um að vera sjálfstæð stofnun, samkvæmt Evrópsku hagstofunni, en við það færast skuldbindingar sjóðsins undir ríkisreikning frá og með 2022 sem gæti aukið skuldir ríkissjóðs um 650 milljarða, að mati dósents í fjármálum. Hann telur farsællegast að ná samkomulagi við kröfuhafa um uppgjör ÍL-sjóðs en verði farin sú leið að slíta sjóðnum með sérstakri lagasetningu, sem hann efast um að fjármálaráðherra vilji í raun gera, þá væri ríkið ekki að „efna fyllilega loforð“ um ábyrgð á skuldum hans. 9.11.2022 18:01
Bláa lónið setur stefnuna á Kauphöllina í byrjun næsta árs Bláa lónið, eitt stærsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins, vinnur nú að undirbúningi að skráningu félagsins á hlutabréfamarkað sem það áformar að geti orðið að veruleika á fyrri hluta næsta árs. Tvö innlend fjármálafyrirtæki hafa verið fengin sem ráðgjafar Bláa lónsins við skráningarferlið þar sem til stendur að bjóða hluti í félaginu til sölu. Fyrirtækið var verðmetið á um 60 milljarða í síðustu stóru viðskiptum með bréf í félaginu fyrir meira en ári. 8.11.2022 13:37
Gunnar kemur inn fyrir Andra í fjármálaeftirlitsnefnd Breytingar hafa verið gerðar á fjármálaeftirlitnefnd Seðlabanka Íslands eftir að Andri Fannar Bergþórsson, lögmaður og dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík, sagði sig úr nefndinni fyrr í haust. 7.11.2022 20:01