Fimm útgerðir falla frá málsókn um skaðabætur Sjávarútvegsfyrirtækin Eskja, Gjögur, Ísfélag Vestmannaeyja, Loðnuvinnslan og Skinney-Þinganes hafa ákveðið að falla frá málsókn á hendur íslenska ríkinu vegna meints fjártjóns við úthlutum aflaheimilda í makríl fyrr á þessum áratugi. 15.4.2020 18:13
Samið um sextán ferðir til Boston, London og Stokkhólms Icelandair mun fljúga sextán ferðir til Boston, London og Stokkhólms samkvæmt samningi sem félagið hefur gert við samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið. Samningurinn á að tryggja lágmarksflugsamgöngur til og frá landinu í kórónuveirufaraldrinum. 15.4.2020 18:03
Skora á ráðherra að styðja einkarekna fjölmiðla Forsvarsmenn helstu einkareknu fjölmiðla á Íslandi skora á menntamála- og forsætisráðherra að styrkja rekstrargrundvöll þeirra svo þeir hafi möguleika á að standa af sér tekjutap vegna samdráttar í samfélaginu í heimsfaraldrinum. 15.4.2020 17:42
Trump segist hafa stöðvað fjárveitingar til WHO Bandaríkin ætla að hætta að veita Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni (WHO) fé vegna þess hvernig stofnunin tók á kórónuveiruheimsfaraldrinum. Donald Trump Bandaríkjaforseti fullyrti að hann hefði skipað fyrir um þetta á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í dag. 14.4.2020 22:59
Trump líkir sér við skipstjórann á Bounty í deilum við ríkisstjóra Deilur Donalds Trump Bandaríkjaforseta við ríkisstjóra sem hafa tekið upp samráð um viðbrögð við kórónuveirufaraldurinn héldu áfram í dag. Líkti forsetinn sér meðal annars við skipstjórann á bresku skútunni Bounty sem var settur af í uppreisn skipverja. 14.4.2020 22:44
Skimun á Íslandi styður að einkennalausir geti verið smitberar Niðurstöður úr rannsókn Íslenskrar erfðagreiningar og íslenskra heilbrigðisyfirvalda á útbreiðslu nýs afbrigðis kórónuveiru á Íslandi styður kenningar um að einkennalausir einstaklingar geti verið smitberar. 14.4.2020 21:46
Formenn flokkanna ræddu launahækkanir í dag Fyrirhugaðar launahækkanir ráðherra og þingmanna voru ræddar á fundi formanna stjórnmálaflokkanna á Alþingi í morgun. Halldóra Mogensen, formaður þingflokks Pírata, segir flokk sinn tilbúinn með frumvarp um að fella niður hækkanirnar aðhafist ríkisstjórnin ekkert í málinu. 14.4.2020 20:00
Mesti samdráttur frá Kreppunni miklu Samdráttur á hagkerfi heimsins verður sá mesti í áratugi að mati Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS). Efnahagsþrengingarnar vegna kórónuveiruheimsfaraldursins eru þær mestu frá því í Kreppunni miklu á 4. áratug síðustu aldar. 14.4.2020 18:55
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Tilslakanir á aðgerðum gegn kórónuveirunni og tíu ára afmæli eldgossins í Eyjafjallajökli er á meðal efnis kvöldfrétta Stöðvar 2 sem hefjast klukkan 18:30. 14.4.2020 18:10
Staðfestu aldur stærsta fisks í heimi með hjálp kjarnorkutilrauna í kalda stríðinu Geislavirkt efni sem dreifðist út um allan heim í kjarnorkusprengjutilraunum heimsveldanna í kalda stríðinu gerði vísindamönnum kleift að aldursgreina hvalháfa, stærstu fiskategund í heimi, nákvæmlega í fyrsta skipti. Uppgötvunin er sögð undirstrika mikilvægi þess að vernda tegundina. 9.4.2020 15:22