Vegagerðin býður út styrkingu Þrengslavegar Vegagerðin hefur óskað eftir tilboðum í styrkingu Þrengslavegar á kaflanum milli Lambafells og Litla-Sandfells. Verkinu á að ljúka fyrir lok sumars. 7.2.2023 10:51
Hvalkjöt fyrir 2,8 milljarða króna til kaupenda í Japan Um 2.600 tonn af íslensku hvalkjöti eru væntanleg með skipi til Japans um miðja þessa viku og er þetta mesta magn hvalaafurða sem flutt hefur verið út frá Íslandi í 35 ár. Útflutningsverðmætið nemur um 2,8 milljörðum króna, samkvæmt tölum Hagstofunnar. 6.2.2023 21:50
Eyjamenn minnast hálfrar aldar afmælis eldgossins Hálf öld er í dag, 23. janúar, liðin frá upphafi eldgossins á Heimaey árið 1973. Gosafmælisins er minnst með margvíslegum hætti í Vestmannaeyjum og Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra heimsækja Eyjamenn. 23.1.2023 09:39
Blysför í Vestmannaeyjum í tilefni 50 ára gosafmælis Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra heimsækja Vestmannaeyjar á morgun, mánudag, 23. janúar, í tilefni þess að 50 ár verða liðin frá upphafi eldgossins á Heimaey. Hápunktur margvíslegra minningarviðburða í bænum verður blysför frá Landakirkju annaðkvöld að Eldheimum þar sem gossins verður minnst með athöfn sem hefst klukkan 19:30. 22.1.2023 05:51
Svona upplifðu Eyjamenn að vakna upp við eldgos Fimmtíu ár verða liðin á mánudag, 23. janúar, frá upphafi eldgossins á Heimaey árið 1973, sem telja má einn af stærstu viðburðum Íslandssögunnar. Yfir fimm þúsund íbúar Vestmannaeyja þurftu í skyndi að yfirgefa heimili sín um nóttina þegar gossprunga opnaðist í jaðri byggðarinnar. 21.1.2023 07:01
NASA og Boeing þróa mun sparneytnari farþegaþotu Bandaríska geimferðastofnunin NASA og Boeing-flugvélaframleiðandinn hafa tekið höndum saman um að þróa nýja tegund farþegaþotu sem á að vera þrjátíu prósent sparneytnari en þær hagkvæmustu sem finnast í dag. 19.1.2023 22:22
Hvalverndarsamtök fylgjast með siglingu þessa skips Alþjóðlegu hvalverndarsamtökin Whale and Dolphin Conservation fylgjast núna af áhuga með siglingu norska skipsins Silver Copenhagen yfir Indlandshaf. Þau telja nokkuð víst að farmur þess sé íslenskt hvalkjöt á leið til Japans. 19.1.2023 18:08
Smíða áttæring forfeðranna úr sunnlenskum skógarvið Meira en öld eftir að Íslendingar hættu almennt að róa til fiskjar á áttæringum eru menn aftur teknir til við að smíða slíkt skip, og það úr íslenskum skógarvið. Tilgangurinn er að halda upp á menningararfinn. 19.1.2023 11:05
Sáu stórar loðnutorfur við Kolbeinseyjarhrygg Áhöfn hafrannsóknaskipsins Árna Friðrikssonar hefur fundið stórar loðnutorfur við Kolbeinseyjarhrygg. Þetta er það mesta sem sést hefur af loðnu til þessa í sérstökum aukaleitarleiðangri skipsins, sem hófst á miðvikudag í síðustu viku. 18.1.2023 18:44
Hvítabirnir á Suðaustur-Grænlandi koma vísindamönnum á óvart Lítill en einangraður stofn hvítabjarna, sem heldur til á Suðaustur-Grænlandi, hefur sýnt einstaka hæfni við að laga sig að breyttum lífsskilyrðum með hverfandi hafís og er auk þess erfðafræðilega frábrugðinn öðrum stofnum. Þetta er niðurstaða alþjóðlegs hóps vísindamanna, sem kallar eftir sérstakri verndun þessa undirstofns. 17.1.2023 22:50