Fréttamaður

Lovísa Arnardóttir

Lovísa er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Kemi og Fálkinn Ísmar sam­einast

Hluthafar Kemi og Fálkans Ísmars hafa undirritað samkomulag um sameiningu félaganna. Sameinað félag verður í eigu Sjávarsýnar, Hermanns Guðmundssonar og Freyju framtakssjóðs.

Apple hættir fram­leiðslu Mac Pro-borðtölvunnar

Apple hefur hætt framleiðslu á Mac Pro-borðtölvu sinni og hefur fjarlægt tölvuna af vef sínum samkvæmt erlendum miðlum. Í fréttum 9to5 og Macrumours segir að Apple hafi greint frá því að ekki standi til að hanna nýja týpu af tölvunni eða nýtt módel.

Barn strauk af leik­skóla í Hafnar­firði

Leikskólabarn strauk af leikskólanum Áshamri í Hafnarfirði og gekk sjálft heim til sín. Árdís Ármannsdóttir, sviðsstjóri þjónustu- og þróunarsviðs Hafnarfjarðarbæjar, segir að strax hafi verið gripið til úrbóta. Barnið hafi farið yfir lágar girðingar á lóðinni sem hafi verið til staðar vegna framkvæmda.

Lætur skemmda­verk á vegglistinni ekki stöðva sig og heldur út

Julia Mai Linnéa Maria vegglistamaður ætlar í vor og sumar að ferðast til lítilla eyja í Evrópu og mála þar vegglistaverk til stuðnings Palestínu. Julia hefur vakið athygli hér á landi fyrir vegglistaverk sín og þátttöku í mótmælum gegn stríðinu í Palestínu. 

Ingunn nýr innri endur­skoðandi borgarinnar

Borgarráð samþykkti í dag ráðningu Ingunnar Ólafsdóttur sem innri endurskoðanda Reykjavíkurborgar. Í tilkynningu kemur fram að Ingunn hafi verið starfandi innri endurskoðandi Reykjavíkurborgar í tæp tvö ár en þar áður var hún fagstjóri innri endurskoðunar og staðgengill innri endurskoðanda frá árinu 2021.

Líf leiðir Sjálf­stæðis­flokk á­fram á Akra­nesi

Líf Lárusdóttir, verkefnastjóri og bæjarfulltrúi, leiðir áfram lista Sjálfstæðisflokksins á Akranesi í vor. Sjálfstæðisflokkurinn á í dag þrjá af níu fulltrúum í bæjarstjórn Akraness. Samfylking á sömuleiðis þrjá og Framsókn einnig. 

Geta ekki siglt Herjólfi að höfninni vegna ó­veðursins

Herjólfur bíður í um tuttugu mínútna fjarlægð frá Þorlákshöfn eftir því að sigla að landi. Ófært er eins og er. Skipið lagði af stað klukkan níu í morgun og var áætlað rétt fyrir klukkan 12 að landi.

Barn­laus leik­skóli

Sigrún Grétarsdóttir, leikskólastjóri í Hólaborg í Breiðholti í Reykjavík, var mætt til vinnu snemma í morgun en lágmarksopnun var í öllum leikskólum borgarinnar og mælst var til þess að fólk kæmi ekki með börnin nema nauðsyn væri.

Strætó hættir akstri í dag

Strætó hefur stöðvað allan akstur strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu vegna erfiðrar færðar og veðurskilyrða. Vagnar voru fastir víða og einhverjar leiðir hættar áður vegna erfiðrar færðar. 

Sjá meira