Já sæll, fimm tvíburapör í sama bekknum á Sauðárkróki Það er ótrúlegt en dagsatt en í fyrsta bekk í Árskóla á Sauðárkróki eru fimm pör af tvíburum, þar af tvö eineggja. Í bekknum eru fjörutíu og fjórir nemendur. 17.9.2023 20:31
Átján störf fylgja varðskipinu Freyju á Siglufirði Mikil ánægja er á meðal íbúa á Siglufirði að varðskipið Freyja sé þar með heimahöfn því það tryggir átján störf á svæðinu. Þá segir bæjarstjórinn að það sé mjög mikilvægt að varðskip skuli eiga heimahöfn úti á landi, ekki bara í Reykjavík. 17.9.2023 13:30
Bíður eftir því að eiginmaðurinn breytist í býflugu Þeim sem rækta býflugur hér á landi fer alltaf fjölgandi en ræktunin þykir mjög skemmtileg og áhugaverð, svo ekki sé minnst á allt hunangið, sem bændurnir fá frá flugunum. 16.9.2023 20:31
Fyrsti breytti rafmagnsjeppi landsins til sýnis um helgina Um hundrað og þrjátíu jeppar af öllum stærðum og gerðum eru til sýnis um helgina í Fífunni í Kópavogi í tilefni af 40 ára afmæli ferðaklúbbsins 4x4. Fyrsti breytti rafmagnsjeppi landsins er meðal annars á sýningunni og nokkrir gamlir Willis jeppar svo ekki sé minnst á nýbreyttan sex hjóla Ford trukk, sem er að fara á Suðurpólinn 16.9.2023 12:32
Búa í gömlum olíutanki á Rifi með stórglæsilegu útsýni Þau eru ánægð hjónin á Rifi í Snæfellsbæ, sem búa þar í gömlu olíutanki með stórkostlegt útsýni úr tankinum á Snæfellsjökul og út á sjó. 16.9.2023 08:05
Dúfna- og vínberjabóndi á Hellissandi Það er ekki nóg með það að Ari Bent Ómarsson sé dúfnabóndi á Hellissandi því hann bruggar líka vínberjavín úr berjunum úr gróðurskálanum sínum, en plantan hans er að gefa honum um þrjátíu kíló af vínberjum. 14.9.2023 20:30
Um 30 rampar á Sólheimum í Grímsnesi Því var fagnað á Sólheimum í Grímsnesi um helgina að rampur númer 825 í verkefninu “Römpum upp Ísland” var vígður en alls stendur til að koma upp um 30 römpum á Sólheimum næstu tvö árin 10.9.2023 21:31
Hefur áhyggjur af öryggisinnviðum vegna fjölda ferðamanna Samfélagið í Sveitarfélaginu Hornafirði hefur þróast í takti við fjölda ferðamanna á svæðinu síðustu ár en ferðamenn, sem heimsækja sveitarfélagið er önnur stóra stoðin í dag undir atvinnulífi sveitarfélagsins segir bæjarstjórinn. Þá segir hann að innviðir í sveitarfélaginu séu stórkostlegir þegar kemur að afþreyingu fyrir ferðamennina. 10.9.2023 13:30
Bíómynd um Kristinn Guðnason fjallkóng með meiru Á sama tíma og göngur og réttir standa nú yfir um allt land verður ný íslensk kvikmynd, „Konungur fjallanna“ frumsýnd annað kvöld i Bíóhúsinu á Selfossi. Myndin fjallar um Kristinn Guðnason, fjallkóng í leitum með gangnamönnum á Landmannaafrétti. 9.9.2023 13:05
Gleðin við völd í Hrunaréttum og ánægja með lömbin Bændur og búalið í Hrunamannahreppi létu ekki rigningu og leiðindaveður í morgun trufla sig í réttarstörfum í Hrunarétt skammt frá Flúðum, þar sem voru um þrjú þúsund og fimm hundruð fjár. “Mikill hátíðisdagurinn í sveitinni” segir sveitarstjórinn. 8.9.2023 20:31