Skóla- og leikskólastarf fellur niður í Reykjanesbæ Grípa þarf til lokana víða í starfsemi Reykjanesbæjar vegna skorts á heitu vatni. Skóla- og leikskólastarf fellur niður á morgun og öll íþróttamannvirki verða lokuð. 8.2.2024 14:55
Rafmagnsofnar uppseldir: Íbúar mjög uggandi Rafmagnsofnar eru uppseldir í Reykjanesbæ. Verslunarstjóri í Múrbúðinni segist aldrei hafa upplifað annað eins, örtröðin í dag hafi verið svakaleg. Viðskiptavinur sem beið í langri röð segir þungt hljóð í íbúum. 8.2.2024 14:35
Neyðarstigi lýst yfir vegna rofs á heitavatnslögn Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum, hefur ákveðið að virkja neyðarstig Almannavarna vegna rofs á afhendingu á heitu vatni á Suðurnesjum. 8.2.2024 13:16
Fleiri innviðir í hættu Víðir Reynisson, sviðstjóri Almannavarna segir ljóst að heitavatnsleysi á Suðurnesjum verði talið í dögum. Svartasta sviðsmyndin sem teiknuð hafi verið upp sé að rætast. Rafmagns- og kaldavatnslagnir eru í hættu á að verða undir hrauni en þær eru á talsverðu dýpi og vonast er til að þær haldi. 8.2.2024 12:25
Katrín uggandi yfir stöðunni á Suðurnesjum Forsætisráðherra er uggandi yfir stöðunni á Suðurnesjum, þar sem hraun rennur hratt í átt að heitavatnslögn. Ef allt fari á versta veg gætu Suðurnesin verið án heits vatns í tvo til þrjá daga. 8.2.2024 11:57
Mögulega heitavatnslaust á Suðurnesjum eftir nokkrar klukkustundir Mikil hætta er á að hraun renni yfir hitaveituæð HS veitna í Svartsengi. Það þýðir að ekkert heitt vatn yrði á Suðurnesjum og nágrannasveitafélögum. Svartasta sviðsmyndin gæti verið að raungerast, segir forstjóri. Íbúar Suðurnesja eru beðnir um að varðveita hita á húsum og loka strax gluggum. Heitavatnsleysið myndi þó sennilega ekki standa lengur en í einn til tvo sólarhringa. 8.2.2024 10:34
„Þetta er upplifun lífsins!“ Ferðamenn sem voru staddir á hóteli Bláa lónsins í morgun þegar það var rýmt vegna yfirvofandi eldgoss, voru himinlifandi yfir upplifuninni. Einhverjir vöknuðu við jarðskjálfta og óskuðu þess heitast að gos væri að hefjast. 8.2.2024 09:37
Vaktin: Eldgos hafið við Sundhnúksgíga Eldgos hófst klukkan sex í morgun í Sundhnúksgígaröðinni á Reykjanesskaga. Neyðarstigi hefur verið lýst yfir vegna heitavatnsskorts á Suðurnesjum. Hraun hefur flætt yfir Grindavíkurveg, nærri afleggjaranum að Bláa lóninu, og þá hefur hraun einnig flætt yfir heitavatnslögn. 8.2.2024 06:11
Stefnir íslenska ríkinu vegna takmarkana á aðgengi í Grindavík Forstjóri og eigandi fiskvinnslufyrirtækisins Einhamars í Grindavík hefur höfðað mál á hendur íslenska ríkinu vegna banns við viðveru og starfsemi í Grindavík. 5.2.2024 16:09
Bein útsending: Óundirbúnar fyrirspurnir meðan mótmælt er á Austurvelli Óundirbúinn fyrirspurnatími hefst á Alþingi klukkan 15. Á sama tíma hefjast mótmæli á Austurvelli sem félagið Ísland – Palestína boðaði til. 5.2.2024 14:58