Maður á fertugsaldri talinn hafa verið myrtur í sumarhúsi Grunur er um manndráp í sumarhúsi í Árnessýslu. Fjórir hafa verið handteknir á grundvelli rannsóknarhagsmuna að sögn lögreglunnar. Rannsókn málsins er á frumstigi og segir lögreglan að því verði ekki veittar frekari upplýsingar að svo stöddu. 20.4.2024 18:01
Ók á vegg eftir stutta eftirför Ökumaður klessti á vegg eftir stutta eftirför lögreglu. Hann er óslasaður en grunur er á um að hann hafi verið undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Hann var tekinn höndum og færður á lögreglustöð þar sem tekin verður skýrsla af honum þegar runnið hefur af honum. 20.4.2024 17:55
Telur málin miklu fleiri en menn grunar Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir nýr matvælaráðherra segir tækifæri fólgin í öllum breytingum. Hún tjáði sig um komandi verkefni áður en hún fór á ríkisráðsfund á Bessastöðum fyrr í kvöld. 9.4.2024 23:19
Friðrik Þór fer fyrir dómnefnd á kvikmyndahátíð í Moskvu Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndaleikstjóri og framleiðandi mun fara fyrir dómnefnd á Alþjóðlegu Kvikmyndahátíðinni í Moskvu. Vestræni kvikmyndaiðnaðurinn hefur ákveðið að sniðganga keppnina að mestu leyti vegna innrásar Rússlands inn í Úkraínu. 9.4.2024 23:04
Dvölin í Búlgaríu dýrmæt reynsla á Bessastöðum Ásdís Rán Gunnarsdóttir forsetaframbjóðandi, einnig þekkt sem ísdrottningin, segir dvöl sína í Búlgaríu hafa veitt henni dýrmæta reynslu í landkynningum. Hún hafi starfað sem eins konar heiðursráðsmaður Íslands þar úti og telur að það hafi þjálfað hana vel til að gegna embætti forseta. 9.4.2024 22:39
Alveg óvíst hvort ríkisstjórnin lifi kjörtímabilið af Eiríkur Bergmann prófessor í stjórnmálafræði segir jafnvel meiri styr munu standa um ríkisstjórnina undir forystu Bjarna Benediktssonar en Katrínar Jakobsdóttur. Stólaskiptin feli ekki í sér mikla efnisbreytingu en mikla ásýndarbreytingu sem hann telur að geti reynst ríkisstjórninni erfið þegar fram í sækir. 9.4.2024 22:07
Þrír teknir höndum á Bessastöðum Blásið var til mótmæla vegna ríkisráðsfundar þar sem ný ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar tók við völdum. Roði, félag ungra sósíalista og aðstandendur Samstöðutjaldsins stóðu að mótmælunum. Samskipti mótmælenda og lögreglu voru ekki með öllu friðsæl og þrír voru handteknir. 9.4.2024 21:56
Katrín á leið í „óvissuferð“ Katrín Jakobsdóttir fráfarandi forsætisráðherra gekk út af ríkisráðsfundi eftir að hafa verið í ríkisstjórn með hléum frá árinu 2009. Hún segir tilfinninguna stórkostlega og að hún sé alsæl við að fara í það sem hún kallar „dálitla óvissuferð.“ 9.4.2024 20:36
Mótmælt við Bessastaði Nokkur fjöldi fólks kom saman við afleggjarann að Bessastöðum til að mótmæla nýrri ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar. Ríkisráðsfundur hófst upp úr klukkan sjö í kvöld og tók Bjarni formlega við embætti forsætisráðherra. 9.4.2024 20:21
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Bjarni Benediktsson segir endurnýjaða ríkisstjórn ætla að fara að krafti í orkumálin og aðlaga útlendingalöggjöfina að því sem þekkist á Norðurlöndunum. Ný ríkisstjórn verður formlega sett í embætti á Bessastöðum í kvöld. Við förum yfir atburði dagsins og verðum í beinni þaðan. 9.4.2024 18:09