Besta spáin 2023: Nýir leikmenn þurfa að falla eins og flís við rass Eins og svo oft áður er erfitt að lesa í lið ÍBV áður en flautað er til leiks á Íslandsmótinu. Erlendir leikmenn koma seint til móts við liðið og þá er erfitt að átta sig á hvernig undirbúningstímabilið hefur gengið. 20.4.2023 10:01
Mörk Meistaradeildarinnar: Håland nálgast fimmtíu og markasúpa á San Siro Alls voru átta mörk skoruð í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í gær, miðvikudag. Bayern München og Manchester City gerðu 1-1 jafntefli á meðean Inter og Benfica gerðu 3-3 jafntefli. 20.4.2023 09:00
Rashford fór með til Andalúsíu Marcus Rashford ferðaðist með Manchester United til Andalúsíu þar sem liðið mætir Sevilla í síðari leik liðanna í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Einvígið er í járnum eftir 2-2 jafntefli á Old Trafford. 20.4.2023 08:00
Skrásetur frasann „Wagatha Christie“ eftir að hafa tapað fleiri hundruð milljónum Rebekah Vardy, eiginkona knattspyrnumannsins Jamie Vardy, hefur fengið frasann eða orðatiltækið „Wagatha Christie“ skrásettan sem vörumerki. Vardy tapaði meiðyrðamáli sínu gegn Coleen Rooney, eiginkonu fyrrverandi knattspyrnumannsins Wayne Rooney. 20.4.2023 07:02
Dagskráin í dag: Mikilvægir leikir í Olís, undanúrslit í Subway, Evrópudeild, golf og margt fleira Það er svo sannarlega frábær fimmtudagskrá á rásum Stöðvar 2 Sport í dag. Segja má að það sé eitthvað fyrir alla á boðstólnum. 20.4.2023 06:01
„Við erum uppgefnir“ Pep Guardiola var ánægður með þá staðreynd að Manhester City væri komið í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu þriðja árið í röð en hann hefur miklar áhyggjur af leikjaálaginu næstu vikurnar. 19.4.2023 23:30
Þróttur sparkaði fyrrum nágrönnum sínum úr leik | Hádramatík hjá Stjörnunni Öllum leikjum kvöldsins í 32-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í knattspyrnu er nú lokið. Þróttur Reykjavík lagði Fram í Úlfarsárdal, Valur „marði“ neðri deildarlið RB, Stjarnan og Keflavík fóru áfram eftir framlengda leiki. 19.4.2023 23:01
Tárvotur Björgvin Páll: „Held við séum bensínlausir andlega heldur en eitthvað annað“ „Frábært tímabil endar nánast eins og martröð,“ sagði Björgvin Páll Gústavsson, markvörður Íslandsmeistara Vals, eftir hreint út sagt ótrúlegt tap Vals gegn Haukum á Ásvöllum í kvöld, lokatölur 33-14. Tapið þýðir að Íslandsmeistararnir eru á leið í sumarfrí. 19.4.2023 22:01
Inter mætir nágrönnum sínum í AC Milan í undanúrslitum Inter Milan stöðvaði Evrópuævintýri Benfica og tryggði sér sæti í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu eftir 3-3 jafntefli á San Siro í kvöld. Inter vann fyrri leik liðanna í Portúgal 2-0 og einvígið því 5-3. 19.4.2023 21:40
Manchester City í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu Bayern München þurfti kraftaverk til að komast áfram eftir 3-0 tap í fyrri leik liðsins gegn Manchester City í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Það gekk ekki eftir en leik kvöldsins lauk með 1-1 jafntefli. 19.4.2023 21:25