Maður sem féll í Ölfusá fundinn Lögreglan á Suðurlandi fékk um kl. 19 í dag tilkynningu um mann sem fallið hafði í Ölfusá. 19.7.2026 20:32
Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Zohran Mamdani borgarstjóri skoðar ásamt lögfræðingum New York-borgar hvort mögulegt sé að handtaka Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, þegar hann sækir Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í september. 19.7.2026 20:25
Áfram geisar innbrotahrinan Tilkynnt var um „óvelkominn aðila“ í Hlíðahverfi Reykjavíkur, að því er fram kemur í dagbók lögreglu. Málið var leyst með því að lögregla skipaði manninum að hafa sig á brott. Þá var einnig tilkynnt um þjófnað og innbrot miðsvæðis í borginni og er málið í rannsókn. 19.7.2026 17:57
„Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Skartgripaverslunin Prakt mun loka næstu mánuði eftir að eldur kom upp í húsnæði þeirra að Laugavegi. Að baki Prakt stendur gullsmíðaparið Sigríður Edda Bergsteinsdóttir og Þorbergur Halldórsson, eða Edda og Beggi eins og þau eru kölluð í daglegu tali. 19.7.2026 00:27
Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Tveir bandarískir hermenn eru látnir og sá þriðji er týndur eftir eldflaugaárás Írans í Jórdaníu í gær, föstudag. Fjórir hermenn til viðbótar voru fluttir til nánari aðhlynningar á sjúkrahúsi en hafa þegar verið útskrifaðir. Alls hafa sextán hermenn Bandaríkjanna nú látist í átökunum. 18.7.2026 23:28
Forseti Ungverjalands segir af sér Forseti Ungverjalands, Tamás Sulyok, hefur samþykkt að segja af sér og mun forsetatíð hans taka enda á miðnætti á morgun. Ný ríkisstjórn Ungverjalands, undir forsæti Peters Magyar, hefur staðið fyrir hreinsunum innan stjórnkerfisins, auk breytinga á lögum og stjórnarskrá landsins frá miklum kosningasigri um miðjan apríl. 18.7.2026 22:52
Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Fyrri hluti júlí er sá votasti í Reykjavík frá upphafi mælinga en úrkoma mældist 65 millimetrar. Það er meira en tvöföld meðalúrkoma, sé miðað við árin 1991 til 2020. Trausti Jónsson, veðurfræðingur, hefur gert upp veðurfar á landinu þennan fyrri part mánaðar á bloggi sínu. 18.7.2026 20:33
Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Spáð er að þriðja stóra hitabylgja sumarsins skelli á Spáni í næstu viku. Hiti byggist upp frá deginum í dag, hitabylgja verður ríkjandi frá þriðjudegi og mun hiti ná hámarki á fimmtudaginn, samkvæmt spám. 18.7.2026 19:19
Lögregla klippti á plöturnar Lögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu stöðvuðu í dag ökumann sem ekki hafði staðið skil á vátryggingargreiðslu. Var skráningarmerki bifreiðarinnar, oft í daglegu tali kallað númeraplata, fjarlægt og bíllinn þannig tekinn úr umferð. 18.7.2026 18:22
Áhrifavaldur losar sig við steinefni Arnar Gauti Arnarson, markaðsstjóri Happy Hydrate, greinir frá því í tilkynningu að félagið hafi verið selt til hóps fjárfesta. Arnar Gauti, sem lesendur þekkja ef til vill betur sem Lil Curly, var áður í eigandahópi fyrirtækisins. 18.7.2026 00:10