„Íslenska ríkið er gott í að skrifa skýrslur en svo gerist ekki neitt“ Lina Elisabet Hallberg er Svíi sem ólst upp í Sviss en flutti til Íslands árið 2016. Lina starfar sem tannlæknir á Íslandi en þurfti á sínum tíma að minnka verulega við sig í starfi, þar sem hún vildi klára að læra íslensku. Eina leiðin sem hún mat færa var að fara beinlínis í háskólanám, þar sem aðra valkosti skorti. 8.9.2022 08:41
Spyr hvort ekki megi endurskilgreina hvenær lax teljist veiddur Hvenær telst lax veiddur? Þegar maður er kominn með hann í hendurnar eða þegar hann er kominn alveg upp að bakka eftir viðureign um nokkra stund, og jafnvel þótt hann sleppi þá af önglinum? Borgarfulltrúi, sem jafnframt er mikill veiðimaður, kallar eftir umræðu um nýja talningaraðferð á veiddum löxum. Hví ekki, þegar þeim er nær öllum sleppt hvort eð er. 4.9.2022 10:01
Segir nauðsynlegt að efla íslenskukennslu fyrir innflytjendur Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir erlent vinnuafl nauðsynlegt til þess að sinna megi þeim stöfum sem skapist þegar þjóðin eldist og færri verða á vinnumarkaði. Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus í íslenskri málfræði segir bráðnauðsynlegt að efla íslenskukennslu fyrir þá sem komi erlendis frá til landsins og vilji vinna. Hann hafi áhyggjur af íslensku máli. 4.9.2022 00:22
Erlent starfsfólk gæti orðið helmingur vinnuaflsins innan nokkurra áratuga Erlent starfsfólk gæti verið orðið allt að helmingi vinnuafls á Íslandi á næstu áratugum samkvæmt mati framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins. Þjóðin eldist og það vantar fleiri vinnandi hendur; náttúruleg fólksfjölgun dugar þar engan veginn. 3.9.2022 20:30
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ljóst er að heilmikið tjón hafi orðið þegar vatnslögn rofnaði í höfuðborginni í gær. Íbúar segjast aldrei hafa séð annað eins en ekki liggur fyrir hvað varð til þess að lögnin rofnaði. Þá liggur ekki heldur fyrir hver muni bera kostnaðinn vegna tjónsins. Fjallað er um þetta og annað í kvöldfréttum Stöðvar 2. 3.9.2022 18:01
Íslendingar á meginlandinu glíma við margfalt hærri reikninga Staðan á orkumarkaði í Evrópu er grafalvarleg að sögn Íslendinga búsettra á meginlandinu. Dæmi eru um að fólk sé að fá allt að 200 prósentum hærri reikninga fyrir hita og rafmagni nú en fyrir ári síðan. Rússar munu ekki opna fyrir Nordstream gasleiðsluna til Evrópu á morgun líkt og til stóð, sem er talið viðbragð við nýjum aðgerðapakka G-7 ríkjanna. 3.9.2022 09:31
„Fólk gerir sér ekki grein fyrir því hversu alvarlegt þetta er“ Fólk gerir sér ekki grein fyrir því hversu alvarlegt það er að fjórtán hjúkrunarfræðingar hafi sagt upp störfum á bráðamóttöku Landspítala. Þetta segja tveir hjúkrunarfræðinganna. Uppsögn var að þeirra sögn síðasta úrræðið. 2.9.2022 19:33
„Ósanngjarnt að hengja sig í smáatriðum“ Forstöðumaður kjarasviðs Fagfélaganna segir ósanngjarnt af veitingastöðunum Flame og Bambus að ætla að fara að hengja sig í smáatriðum í launaþjófnaðarmáli sem höfðað hefur verið gegn þeim. Kjarni málsins sé sá að farið hafi verið illa með fólk - og því borgað of lítið fyrir of mikla vinnu. 2.9.2022 17:36
Gengur fram af fólki og eignast aðdáendur með svæsnasta hlaðvarpi landsins Kynlífsklúbbar í Berlín, misgóð Tinder-deit og það eilífa verkefni að hætta að deita meth-hausa. Þetta eru ósköp eðlileg viðfangsefni Vigdísar Howser Harðardóttur í hlaðvarpi hennar Kallaðu mig Howser og á engan er hallað þegar fullyrt er að þar fari yfirgengilegasta hlaðvarp landsins. 2.9.2022 08:01
„Af hverju er ekki búið að gera eitthvað?“ Móðir stúlku sem varð fyrir bíl á rafmagnshlaupahjóli kallar eftir hjálmum á Hopp-hlaupahjól og bættu umferðaröryggi á hættulegustu gatnamótum landsins. Stúlkan mjaðmabrotnaði en hún kveðst þakklát fyrir að ekki hafi farið verr. 1.9.2022 19:18