Staðráðin í að snúa aftur „hvað sem það kostar“ Grindvíkingar fengu að fara með flutningabíla inn í bæinn í dag, til að vitja fleiri muna en þeirra nauðsynja sem þeir hafa hingað til getað sótt. Þeir íbúar sem fréttastofa hitti á eru staðráðnir í að Hflytja aftur heim. Hugsanlegt er að hluti kvikunnar undir bænum sé storknaður. 25.11.2023 19:52
Stríðinu muni ekki ljúka þótt gíslarnir komi heim Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, segir stríðið milli Ísraelsmanna og Hamas munu halda áfram, þrátt fyrir að gíslunum sem teknir voru í síðasta mánuði verði sleppt. Ísrael muni halda áfram að berjast þar til „öllum markmiðum hefur verið náð“. 21.11.2023 21:06
Strandaglópar ýmist öskureiðir eða sultuslakir Veður hefur leikið íbúa á suðvesturhorninu og víðar grátt í dag. Ferðamenn hafa ekki heldur farið varhluta af veðrinu, og einhverjir þeirra orðið fyrir því að flugferðum þeirra var frestað eða þær felldar niður. Þeir eru misánægðir með gang mála. 21.11.2023 20:27
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Óvíst er hvort hægt verði að gera við um tuttugu hús sem nú eru heitavatns- eða rafmagnslaus í Grindavík vegna bilunar í dreifikerfi. Ráðist var í umfangsmiklar viðgerðir í gær og í dag en ástandið versnar áfram. 21.11.2023 18:00
Slíta stjórnmálasambandi við Ísrael þar til vopnahlé verður samþykkt Löggjafarþing Suður-Afríku hefur samþykkt tillögu þess efnis að sendiráði Ísraels í landinu verði lokað og stjórnmálasambandi ríkjanna tveggja slitið, uns Ísrael samþykkir vopnahlé á Gasa. 21.11.2023 17:53
Gott að geta gefið til baka: „Grindvíkingar tóku afskaplega vel á móti skrýtnum strák“ Skólastjóri Laugarlækjaskóla segir gott að geta gefið til baka til Grindvíkinga, en hann bjó sjálfur í Grindavík sem unglingur. Elstu bekkir grunnskólanemenda úr bænum fá aðstöðu til náms í skólanum. Nemendur ætla að taka vel á móti jafnöldrum sínum í Grindavík. 20.11.2023 23:01
Vonar að frumvarpið skili fullum launum til Grindvíkinga Frumvarp félagsmálaráðherra um launagreiðslur til Grindvíkinga mun gilda frá 11. nóvember, verði það að lögum. Þar er kveðið á um hámarkgreiðslu upp á 633 þúsund krónur til atvinnurekenda, fyrir hvern starfsmann. Ráðherra segist þó gera ráð fyrir því að frumvarpið tryggi full laun til þeirra sem hafa hærri tekjur en hámarkið sem kveðið er á um. 20.11.2023 21:48
Ólafía Þórunn á von á sínu öðru barni Fyrrverandi atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir á von á sínu öðru barni með eiginmanni sínum, Thomasi Bojanowski. 20.11.2023 20:34
Hvetja almenning til að tilkynna auglýsingar á útlensku til stjórnvalda Menningarráðherra og Neytendastofa hafa sent frá sér viljayfirlýsingu um átaksverkefni þar sem herör er skorin upp gegn auglýsingaefni sem ekki er á íslensku. Almenningur er hvattur til að tilkynna auglýsingaefni á öðrum málum en íslensku. 20.11.2023 18:16
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hröðun hefur orðið á landrisi í Svartsengi síðasta sólarhringinn og Veðurstofa hefur stækkað hættusvæði í nágrenninu. Almannavarnir hafa kallað til björgunarsveitarfólk af öllu landinu og biðja vinnuveitendur þess um skilning. 20.11.2023 18:01