Fréttir
318 319 320 321 322 323 324 325 326 … 334 ›
Ys og þys á markaði með vinnuafl Á Krókhálsinum í Reykjavík er Ráðningarþjónustan starfrækt sem, eins og nafnið gefur glögglega til kynna, er sérhæfð í ráðningum og þjónustar jafnt fyrirtækja sem umsækjendur. Viðskipti innlent 14.11.2006 17:32
Yfir 6,3 milljarða hagnaður sparisjóða á fyrri hluta árs Heildarhagnaður 23 sparisjóða var rúmir 6,3 milljarðar króna eftir skatta á fyrri helmingi ársins samkvæmt tölum frá Sambandi íslenskra sparisjóða. Til samanburðar nam hagnaður þessara sömu sparisjóða 9,5 milljörðum króna allt árið 2005. Viðskipti innlent 14.11.2006 17:32
Stórverslanir opna í Kauptúni Mikil uppbygging verslunarhúsnæðis á sér stað í Kauptúninu í Garðabæ þar sem IKEA opnaði tuttugu þúsund fermetra verslun í október. Viðskipti innlent 14.11.2006 17:32
Verðmat á Marel lækkað Greiningardeild Glitnis hefur uppfært verðmat sitt á Marel. Hefur verðmatsgengi verið lækkað úr 79 krónum í 75 krónur á hlut og er virði fyrirtækisins nú metið á 27,4 milljarða króna. Nýja verðmatsgengið er 5,1 prósenti undir gengi á markaði og 1,4 prósentum yfir útboðsgengi í hlutafjárútboði félagsins í september. Ráðleggur greiningardeildin hluthöfum að halda bréfum sínum horft til lengri tíma. Viðskipti innlent 14.11.2006 17:33
Tanganyika tapar Olíu- og gasleitarfyrirtækið Tanganyika tapaði rúmum fjórum milljónum Bandaríkjadala, eða 290 milljónum króna, á þriðja ársfjórðungi. Tap félagsins nam um 540 milljónum króna fyrir fyrstu níu mánuði ársins. Viðskipti innlent 14.11.2006 17:32
Aeroflot kaupir ekki Boeing-vélar Rússneska flugfélagið Aeroflot, sem er að stærstum hluta í eigu ríkisins, hefur frestað kaupum á 22 Dreamliner-farþegaþotum frá flugvélasmiðjum Boeing. Fyrirhugað var að kaupa vélarnar á næstu sex árum. Nú stefnir í að af kaupum verði ekki fyrr en eftir að minnsta kosti átta ár. Viðskipti erlent 14.11.2006 17:32
Mistök upp á 214 milljónir króna „Samtals virðist sem útgerðin hafi hagnast um 214 milljónir króna á þremur árum vegna sakleysislegra mistaka starfsmanna sjávarútvegsráðuneytisins," segir Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, í nýrri grein í tímaritinu Vísbendingu. Viðskipti innlent 14.11.2006 17:33
Við eigum eftir að landa þeim stóra Baugur tók í síðustu viku við lyklunum í House of Fraser. Fjárfesting þar sem heildarfjármögnunin nam 77 milljörðum króna. Með Baugi í þessari fjárfestingu eru gamlir kunningjar sem eiga það sameiginlegt að hafa selt Baugi rekstur á undanförnum misserum. Viðskipti innlent 14.11.2006 17:33
Árvakur tapaði í þriðja skipti á fimm árum Hálfs milljarðs breyting til hins verra á rekstri útgáfufélags Morgunblaðsins frá 2004 til 2005. Rekstrartap fyrir afskriftir (EBITDA) nam 66 milljónum króna. Viðskipti innlent 14.11.2006 17:33
PS3 næstum uppseld í Japan Sala á leikjatölvunni PlayStation 3 frá Sony hófst í Japan á laugardag. Tölvurnar dvöldu ekki lengi í hillum verslana því óþreyjufullir leikjatölvuunnendur rifu þær jafnóðum út. Strax á mánudag voru þær við það að seljast upp enda fóru einungis hundrað þúsund stykki í sölu. Leikjavísir 14.11.2006 17:32
Ekki hægt að útiloka fyrirbyggjandi árásir Bandaríkin eða aðrar þjóðir verða að íhuga möguleikann á fyrirbyggjandi árás ef Íran eða Norður-Kórea halda áfram að sækjast eftir kjarnorkuvopnum. Þessu skýrði háttsettur embættismaður innan bandarísku stjórnarinnar frá í kvöld. Erlent 14.11.2006 23:35
Leit að strokufanga stendur enn yfir Lögreglan í Reykjavík leitar enn að strokufanganum Ívari Smára Guðmundssyni. Ívar er refsifangi af Litla Hrauni og er að afplána 20 mánaða dóm vegna fíkniefnamála. Hann strauk frá fangaflutningsmönnum, sem starfa á Litla-Hrauni, við Héraðsdóm Reykjavíkur um kl. 15:00 í dag. Telur lögregla ástæðu til að ætla að hann geti verið varasamur. Innlent 14.11.2006 23:21
Neyðarástand í ríkinu Tsjad í Afríku Ríkisstjórnin í Tsjad ákvað í dag að banna óskráð skotvopn í landinu til þess að reyna að koma í veg fyrir ofbeldi milli þjóðarbrota í landinu. Lýsti hún yfir neyðarástandi á miðnætti á mánudaginn vegna árása uppreisnarmanna á þorp í austurhluta landsins. Talið er líklegt að alþjóðlegt friðargæslulið verði sent á staðinn ef ástandið heldur áfram að versna. Erlent 14.11.2006 23:03
Búið að frelsa flesta gísla í Írak Búið að frelsa flesta gísla sem var rænt í mannráni í Bagdad í dag. Gíslarnir voru frelsaðir í aðgerðum víðsvegar um Bagdad, í kringum miðnætti að staðartíma, samkvæmt tilkynningu frá talsmanni írösku stjórnarinnar. Erlent 14.11.2006 22:43
Bílaumboð eiga ekki að hvetja til utanvegaaksturs Bílaumboð eiga að sjá sóma sinn í því að taka auglýsingar sínar, sem hvetja til utanvegaaksturs, úr umferð. Þetta segir framkvæmdastjóri Landverndar. Innlent 14.11.2006 22:13
Lögreglumanni á Akureyri hótað lífláti "Ég ætla að drepa þig og fjölskyldu þína". Þannig hljóðaði morðhótun sem lögreglumaður á Akureyri fékk í dag. "Hvítu fíkniefnin" svokölluðu ógna öryggi lögreglumanna sem aldrei fyrr. Innlent 14.11.2006 21:57
Sendiherra segir árás hafa verið mistök Utanríkisráðherra afhenti í morgun sendiherranum bréf til utanríkisráðherra Ísraels, þar sem morðum á óbreyttum borgurum á Gaza í síðustu viku var harðlega mótmælt. Það sama gerði formaður Samfylkingarinnar á snubbóttum fundi með sendiherranum á Alþingi í dag. Innlent 14.11.2006 21:11
Íslendingur dregst inn í hneykslismál í Las Vegas Vestur-Íslendingurinn Sig Rogich, sem var sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi 1992 og 1993, hefur dregist inn í hneykslismál sem skekur stjórnmálalíf í Las Vegas. Nýkjörinn ríkisstjóri Nevada er sakaður um að hafa ráðist á gengilbeinu fyrir utan veitingastað í borginni og síðan hafi hann og Rogich reynt að hylma yfir málið. Erlent 14.11.2006 20:22
Jólin kosta þjóðina átta milljarða króna Jólin kosta þjóðina átta milljarða króna, fyrir utan virðisaukaskatt, ef spá Rannsóknarseturs verslunarinnar gengur eftir. Átta milljarðar samsvara því að hvert mannsbarn eyði um þrjátíu þúsund krónum, með virðisaukaskatti, í jólin á þessu ári. Innlent 14.11.2006 20:08
Stjórnvöld verða að taka á málefnum innflytjenda segja Vinstri grænir og Samfylkingin Farsæl aðlögun og barátta gegn fordómum hefst ekki án atbeina stjórnvalda en þetta kemur fram í framkvæmdaáætlun um málefni innflytenda sem borgarstjórnarflokkar Vinstri grænna og Samfylkingarinnar kynntu í dag. Innlent 14.11.2006 20:02
Bolur til loftgítarspils Ástralskur vísindamaður hefur búið til þarfaþing fyrir þá sem hafa gaman af því að leika á loftgítar. Um er að ræða bol sem þarf að smeygja sér í áður en framkallaðir eru fagrir tónar. Erlent 14.11.2006 18:26
Tilbúinn til viðræðna gegn breyttri stefnu Mahmoud Ahmadinejad, Íransforseti, sagðist í dag tilbúinn til viðræðna við Bandaríkjamenn um kjarnorkuáætlun stjórnvalda í Teheran ef bandarísk stjórnvöld breyti stefnu sinni gagnvart Íran. Hann sagði Bandaríkjamenn fara gegn Írönum með yfirgangi. Skýringar á stefnu Íransstjórnar væri að vænta. Erlent 14.11.2006 18:20
Öryggi á frönskum flugvöllum ábótavant Stéttarfélag flugvallarstarfsmanna í París sýndi í dag sviðsettar myndir af manni smygla leirklumpi um borð í flugvél. Myndin á að sýna fram á hversu einfalt sé fyrir hryðjuverkamenn að koma plastsprengiefnum um borð í flugvélar. Myndin var tekin um nótt á Charles de Gaulle flugvellinum. Erlent 14.11.2006 19:10
Heimilislausum fjölgar í Lundúnum Góðgerðarsamtök í Bretlandi segja mikla hættu á því að Búlgarir og Rúmenar, sem leiti betra lífs í Bretlandi, endi á götunni. Löndin tvö ganga í Evrópusambandið í janúar á næsta ári. Heimilislausum í Bretlandi, úr hópi Austur-Evrópubúa, hefur fjölgað um tæp fjögur þúsund það sem af er þessu ári. Erlent 14.11.2006 18:18
Annar frambjóðenda hafnar kosningatölum í Kongó Jean-Pierre Bemba, forsetaframbjóðandi í Kongó, hefur hafnað úrslitum úr lokaumferð forsetakosninganna þar í landi sem gefa í skyn að Joseph Kabila, núverandi forseti landsins hafi unnið hana. Öruggt er talið að spenna í höfuðborg Kongó, Kinshasa, eigi eftir að aukast í kjölfarið en 4 létust í byssubardögum á milli stuðningsmanna forseta frambjóðendanna á laugardaginn var. Erlent 14.11.2006 18:55
5 lögreglumenn handteknir vegna mannrána Allt bendir nú til þess að 50 starfsmönnum og gestum rannsóknarstofu á vegum menntamálaráðuneytisins í Írak hafi verið rænt í morgun en ekki rúmlega hundrað eins og var sagt í fyrstu. 20 hefur verið sleppt. 5 lögreglumenn hafa verið handteknir og búið er umkringja hús þar sem talið er að gíslar séu í haldi. Erlent 14.11.2006 18:11
Skýrsla Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar staðfestir að Íranir séu að auðga úran Sérfræðingar Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar (IAEA) hafa uppgötvað plútóníum sem er ekki hægt að gera grein fyrir og leifar af auðguðu úrani. Úranleifarnar sem fundust voru af hárri gráðu en þó ekki nógu hárri til þess að hægt hafi verið að nota það í kjarnorkusprengjur. Erlent 14.11.2006 18:03
Fimm háttsettir lögreglumenn handteknir vegna mannránanna í Írak Fimm háttsettir lögreglumenn hafa verið handteknir í tengslum við mannránið sem var framið í Írak í dag. Rúmlega 100 karlmönnum var þá rænt við rannsóknardeild íraska menntamálaráðuneytisins en ekki er vitað hver nákvæmur fjöldi þeirra er. Þremur hefur verið sleppt nú þegar og samkvæmt nýjustu fréttum gæti tólf hafa verið sleppt í viðbót. Erlent 14.11.2006 17:48
Stjórn Samtaka iðnaðarins sendir frá sér tilkynningu vegna kaupa Íslandspósts hf. á Samskiptum ehf. Stjórn Samtaka iðnaðarins sendi í dag frá sér tilkynningu vegna kaupa Íslandspósts hf. á Samskiptum ehf. Segir í tilkynningunni að stjórnin ítreki þá stefnu sína að ríkið eigi að draga sig af markaði þar sem rekstur er allt eins vel eða betur kominn í höndum einkaaðila. Innlent 14.11.2006 17:30
Krónan veikist Gengi íslensku krónunnar veiktist um 2,3% í dag. Krónan hefur veikst um þrjú prósent á síðustu tveimur dögum og styrking síðustu sex vikna hefur því gengið til baka á aðeins þessum tveimur dögum. Í Hálf fimm fréttum greiningadeildar KB-banka segir að svo virðist sem að 4-5 mánaða nær samfelld styrking krónunnar sé nú rofin. Innlent 14.11.2006 17:16
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent