Neyðarástand í ríkinu Tsjad í Afríku 14. nóvember 2006 23:03
Ríkisstjórnin í Tsjad ákvað í dag að banna óskráð skotvopn í landinu til þess að reyna að koma í veg fyrir ofbeldi milli þjóðarbrota í landinu. Lýsti hún yfir neyðarástandi á miðnætti á mánudaginn vegna árása uppreisnarmanna á þorp í austurhluta landsins. Talið er líklegt að alþjóðlegt friðargæslulið verði sent á staðinn ef ástandið heldur áfram að versna. Talið er að upphaf þessarar öldu ofbeldis og gripdeilda sé að leita í Darfúr-héraði súdan en svo virðist sem uppreisnarmennirnir séu af arabískum uppruna og komi þar að auki úr þeirri átt. Ríkisstjórn Tsjad hefur þó sagt að þeir vilji ekki að landið verði notað til þess að koma alþjóðlegum herafla bakdyrameginn inn í Súdan. Flóttamannaaðstoð Sameinuðu þjóðanna hefur sagt að ástandið sé hættulegt og að nauðsynlegt sé að alþjóðlegt friðargæslulið verði sent þangað til þess að vernda almenna borgara. Óttast þeir að suð-austurhluti Tsjad eigi eftir að verða stríðssvæði ef ekkert verði að gert. Uppreisnarmennirnir hafa tekið yfir að minnsta kosti 20 þorp og eru flóttmenn útaf þessu orðnir allt að 68.000, sem bætast við þá 200.000 sem eru í Tsjad vegna ástandsins í Darfúr í Súdan. Í Tsjad og Súdan er rík hefð fyrir því að bera vopn og ekki er óalgengt að sjá vopnað fólk á götum úti.
Erlent Fréttir Mest lesið Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Erlent Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Innlent Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Innlent Tveir hinna látnu lögreglumenn Erlent Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Innlent Fleiri fréttir „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Tveir hinna látnu lögreglumenn Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni TikTok gert að greiða Bandaríkjunum sögulega upphæð Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Gerðu tvöfalda árás á verslunarmiðstöð fjarri víglínunni Fundu rússneskt vopnabúr í skógi fyrir utan Berlín Auka fjárútlát til varnarmála um tæpan fimmtung Getur „D-dagur“ Trumps gegn Íran skilað árangri? Réðst á grunnskólanemendur með sverði Skipstjóri sem sigldi næstum á hús fær fangelsisdóm Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Búast við fordæmalausum El niño næsta árið Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Fimm ríki fordæma nýjar landtökubyggðir á Vesturbakkanum Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Handtekinn fyrir annan glæp en ekki vegna hvarfs Anne-Elisabeth Sjóræningjar tóku tyrkneskt hergagnaskip Rúmenar grönduðu drónabát nærri borpalli Hælisleitendum kennt að það sé bannað að berja konur og nauðga Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Hætta við að bjarga gammablossasjónauka Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Hópur tengdur rétttrúnaðarkirkjunni reyndi að komast til áhrifa í Danska þjóðarflokkinum Hótar þeim hörmungum sem eiga í viðskiptum við Íran Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Sjá meira