
Hinsegin

Blöskrar fordómafull ummæli um pabba sinn
Álfrún Perla Baldursdóttir, dóttir Baldurs Þórhallssonar forsetaframbjóðanda, segir að sér hafi blöskrað ummæli og almenn leiðindi byggð á fordómum í kosningabaráttunni. Þetta segir Áfrún í pistli á Facebook.

Ítarleg úttekt á þjónustu við börn með kynama þungur áfellisdómur
Ný skýrsla Dr. Hilary Cass um þjónustu við börn með kynmisræmi og/eða kynama á Bretlandi er þungur áfellisdómur yfir kerfinu. Cass segir langa biðlista og ógagnreyndar meðferðir hafa komið harkalega niður á börnum og ráðleggur víðtækar breytingar.

Þorði loks á 22, gekk að Felix og sagði hæ
Stjórnmálafræðiprófessorinn Baldur Þórhallsson vill verða næsti forseti Íslands en hann og Felix Bergsson hafa eftir mikla umhugsun með fjölskyldunni tekið þessa ákvörðun.

Rowling enn bitur út í Harry Potter-stjörnurnar
Joanne Rowling, höfundur bókanna um galdradrenginn Harry Potter, er fjarri því búin að fyrirgefa aðalleikurunum úr kvikmyndunum um Potter fyrir að vera ósammála henni um trans fólk. Hún heldur áfram að lýsa trans fólki sem hættulegu konum.

Fordæma kynleiðréttingaraðgerðir og staðgöngumæðrun
Páfagarður lýsir kynleiðréttingaraðgerðum og staðgöngumæðrun sem alvarlegu broti gegn mannlegri virðingu í nýrri stefnuyfirlýsingu sem var birt í dag að skipan páfa. Afstaða kaþólsku kirkjunnar til þess er þannig sú sama og til þungunarrofs og líknardráps.

Homminn Baldur
Tugir einstaklinga hafa lýst sig reiðubúna til að gegna því mikilvæga verkefni að vera forseti lýðveldisins. Það endurspeglar eflaust heilbrigt lýðræði hve margir eru boðnir og búnir í starfið þó sumum finnist það orðið skrípaleikur.

Rowling ekki sótt til saka fyrir að kalla trans konur „karlmenn“
Lögregluyfirvöld í Skotlandi segja rithöfundinn JK Rowling ekki hafa brotið lög þegar hún kallaði trans konur „karlmenn“ á X/Twitter. Rowling var að gagnrýna nýja haturslöggjöf sem tók gildi á mánudag og sagði hana aðför að tjáningarfrelsinu í Skotlandi.

Hægt að fagna bæði upprisu Jesú og trans fólki á sama tíma
Forseti Trans Ísland segir ekkert óvænt við orðræðu Repúblikana í Bandaríkjunum um að forseti landsins, Joe Biden, taki trans fólk fram yfir Jesú með því að mæla með því að almenningur standi með trans fólki á alþjóðlegum sýnileikadegi þeirra, í dag Páskadag.

Í tilefni alþjóðlegs sýnileikadags trans fólks
31. mars er alþjóðlegur dagur sýnileika trans fólks (TDOV = Trans Day of Visibility). Það er viðeigandi að í ár skuli þessi dagur koma upp á Páska sunnudegi þar sem við minnumst upprisu Jesú Krists og þann kærleik sem hann stóð fyrir, en undanfarin fimm ár hefur ofbeldi og árásum gegn trans fólki aukist í Bretlandi um tæp 200%

Páll Óskar genginn í það heilaga: „Besti dagur lífs okkar“
Söngvarinn Páll Óskar gekk í hjónaband með manni sínum, Edgar Antonio Lucena Angarita, við fallega athöfn heima í stofu í gær. Páll segist aldrei hafa verið jafn hamingjusamur.

Taíland skrefinu nær því að leyfa samkynja hjónabönd
Taíland tók stórt skref í gær þegar neðri deild þingsins þar í landi samþykkti ný lög, sem heimila samkynja hjónabönd. Efri deild þingsins á enn eftir að taka frumvarpið fyrir og samþykki konungsins.

Regnbogastríðið
Margir samkynhneigðir karlmenn ganga í gegnum tímabil sjálfskoðunar og velta fyrir sér stöðu okkar í heiminum. Það er augljóst að við erum í minnihluta og að það er eitthvað öðruvísi við okkur þegar við horfum til jafningja okkar og heimsins í kringum okkur þegar við vöxum úr grasi.

Bjarndís tekur við af Álfi
Bjarndís Helga Tómasdóttir er nýr formaður Samtakanna '78. Hún tekur við formennsku af Álfi Birki Bjarnasyni sem hefur verið formaður í tvö ár.

Fjármálaráðuneytið hvetur forsetann til að undirrita ekki löggjöf gegn hinsegin fólki
Fjármálaráðuneyti Gana hefur hvatt forseta landsins til að undirrita ekki umdeilda löggjöf gegn hinsegin fólki sem var samþykkt í þinginu í síðustu viku.

Vonin við enda regnbogans
Samtökin ’78 þjónusta milli 60-70 einstaklinga sem leita að alþjóðlegri vernd á Íslandi eða hafa fengið dvalarleyfi af mannúðarástæðum. Okkar fólk er mislangt komið í ferlinu. Sum þeirra eru nýkomin til landsins, önnur hafa verið lengi, sum hafa fengið sjálfkrafa viðbótarvernd og önnur dvalarleyfi af mannúðarástæðum. Öll bera þau þá von í brjósti að geta lifað lífinu sem þau sjálf.

Vill bæði geta verið skvísa og gæi
Raunveruleikastjarnan og áhrifavaldurinn Binni Glee sló upphaflega í gegn á samfélagsmiðlinum Snapchat þar sem hann var að sýna frá förðun. Binni segist ekki hafa séð marga stráka mála sig á þeim tíma en segir fjölbreyttar fyrirmyndir skipta miklu máli.

Var hræddur um að pabbi hans myndi hata hann
Raunveruleika- og samfélagsmiðlastjarnan Binni Glee kom út úr skápnum fyrir tæpum níu árum síðan. Honum fannst auðveldara að segja stelpum að hann væri hommi og tók þetta í skrefum en þegar uppi er staðið segist hann einungis hafa fengið ást og stuðning frá fjölskyldu sinni og vinum.

Hjónabönd samkynja para leidd í lög í Grikklandi
Grikkland varð í gær fyrsta ríkið þar sem meirihluti íbúa tilheyrir kristinni rétttrúnaðarkirkju til að heimila hinsegin fólki að ganga í hjónaband.

Bað LGBTQ+ samfélagið afsökunar á áralöngum ofsóknum
Þáttastjórnandi hjá ríkismiðlinum TVP í Póllandi hefur beðist afsökunar á afstöðu og framkomu miðilsins í garð LGBTQ+ fólks síðustu ár. Ráðist var í umfangsmiklar breytingar á stjórn TVP þegar Donald Tusk varð forsætisráðherra í desember síðastliðnum.

Lætur af störfum sem framkvæmdastjóri Samtakanna '78
Daníel E. Arnarsson lætur af störfum sem framkvæmdastjóri Samtakanna ‘78 í sumar. Hann tilkynnti þetta á Facebook-síðu sinni í dag. Hann mun þá hafa gegnt embættinu í sjö ár.

Ölgerðin breytir slagorðinu fyrir Kristal
Ölgerðin hefur breytt slagorði sínu fyrir sódavatnsdrykkinn Kristal. Breytingin er hluti af sýnilegum breytingum út á við í framhaldi af vottun Samtakanna 78 á Ölgerðinni sem hinseginvænum vinnustað, fyrst íslenskra fyrirtækja. Breytingin er lítil en táknræn. Upphafið að mun lengri og betri vegferð okkar allra segir forstjórinn.

Lagði snemma áherslu á að herbergið væri hans einkaheimur
Þórdís Þórðardóttir tók ákvörðun fyrir fimm árum um að halda á lofti minningu um son sinn sem féll fyrir eigin hendi langt fyrir aldur fram. Hún hvetur til vakningar í samfélaginu varðandi fordóma og hatursorðræðu í garð hinsegin fólks sem geti haft alvarlegar afleiðingar.

Hinsegin ungmenni í Rússlandi þvinguð í bælingarmeðferðir
Upp hafa komið mál í Rússlandi þar sem efnaðir foreldrar hafa greitt óþokkamennum fyrir að flytja hinsegin ungmenni gegn vilja sínum á einkastofnanir sem sérhæfa sig í svokallaðri bælingarmeðferð.

Hommar eru gæðablóð
Árið 2006 á Hinsegin dögum gengu hinsegin stúdentar undir slagorðinu „Hommar eru gæðablóð“ og ég tel flest ekki þurfa að hugsa sig lengi um af hverju. Jú, það er vegna mismununar milli kynhneigða í reglum um hver megi gefa blóð. Það var alls ekki fyrsta né síðasta skiptið sem vakin var athygli á þessu og nú gerum við það enn og aftur.

Viðhorfspistlar ársins 2023: Hænsn, hatur og allt þar á milli
Hvað var fólki efst í huga á árinu 2023? Hvar liggja átakalínurnar? Þessar raunverulegu. Hvað er umhugsunarinnar virði?

Billie Eilish komin út úr skápnum
Tónlistarkonan og Óskarsverðlaunahafinn Billie Eilish opinberaði á dögunum að hún laðist að konum. Hún segist almennt ekki hrifin af skilgreiningum en er þó glöð að þetta sé komið út.

Lögregla ruddist inn á hinsegin skemmtistaði í Moskvu
Lögreglan í Moskvu gerði húsleitir í fjölda hinsegin skemmtistaða í borginni í gær eftir að hæstiréttur þar í landi bannaði „alþjóðlegu LGBT-hreyfinguna“ í fyrradag.

Banna réttindabaráttu hinsegin fólks
Hæstiréttur Rússlands hefur samþykkt kröfu dómsmálaráðuneytisins um að skilgreina „alþjóðlegu LGBT hreyfinguna“ sem öfgasamtök. Engin slík samtök eru til en úrskurðurinn bannar í raun réttindabaráttu hinsegin fólks í Rússlandi.

Dropinn holar steininn
20. nóvember er dagur þar sem við minnumst þess trans fólks sem við höfum misst. Fólk sem hefur orðið ofbeldi að bráð eða hefur fallið fyrir eigin hendi í kjölfar útskúfunar samfélagsins eða vegna þeirrar vanlíðunar sem það veldur að fá ekki viðeigandi þjónustu.

Stórforeldri nýtt orð um kynhlutlaust foreldri foreldris
Samtökin ´78 hafa valið nýyrði ársins. Fyrr á árinu var auglýst eftir kynhlutlausu orði yfir foreldri foreldris, kynhlutlausu ábendingarfornafni og íslenskum þýðingum á ýmsum enskum orðum. Valin hafa verið tvö ný orð og ein skammstöfun.