Vísindi
46 47 48 49 50 51 52 … 52 ›
Lögregla á Bretlandi tekur smáþyrlu í gagnið Lögreglan í Liverpool tekur á næstunni í gagnið nýtt tæki sem nýtast á í baráttuni við glæpamenn og óeirðaseggi. Um er að ræða litla fjarstýrða þyrlu með bæði eftirlitsmyndavél og nætursjónmyndavélum. Þyrlan er aðeins einn metri í þvermál, er hljóðlát og kemst í loftið á aðeins þremur mínútum. Erlent 21.5.2007 13:58
James Webb leysir Hubble af hólmi Speglar James Webb-stjörnusjónaukans eru þrisvar sinnum stærri en Hubble. Hubble-sjónaukinn hefur þjónað mannkyninu vel. Eftir að honum var skotið á sporbaug 1990 hafa myndir hans gert stjarnfræðingum kleift að auka skilning okkar á umheiminum margfalt. Erlent 21.5.2007 02:39
Segjast hafa þróað ofurbóluefni gegn ofnæmi Svissneskir vísindamenn telja sig vera langt komna með að þróa bóluefni við hvers kyns ofnæmi, exemi og asma. Eftir því sem fram kemur á vef norska blaðsins Verdens Gang eru það vísindamenn hjá lyfjafyrirtækinu Cytos Biotechnology sem hafa þróað þetta ofurbóluefni en það er sagt innihalda erfðaefni svipuðu því sem er að finna í bakteríunni sem veldur berklum. Erlent 21.5.2007 10:09
Fíkniefnahljóð á netinu Íslensk ungmenni hafa sótt sér hljóðskrár á netið sem sögð eru hafa viðlíka áhrif á vitundina og eiturefni á borð við kókaín, marijúana og fleiri vímuefni. Lífeðlisfræðingur við Háskóla Íslands hefur ekki áhyggjur af skaðsemi hljóðanna, en telur æskunni betur varið í skemmtilegri afþreyingu. Erlent 18.5.2007 18:56
Ál á bílinn? Bandarískir vísindamenn hafa fundið nýja leið til þess að framleiða vetni. Smákúlur búnar til úr áli og gallium framleiða hreint vetni þegar vatni er hellt á þær. Litið er á vetni sem einn besta kostinn af hreinum eldsneytum, sérstaklega fyrir bíla, vegna þess að vatnsgufa er það eina sem myndast við bruna á því. Erlent 18.5.2007 16:37
Ryksuga veitir raðfullnægingar Heimavinnandi bandarísk húsmóðir hefur fundið upp kynlífshjálpartæki sem tengist við ryksugu og veitir fullnægingu á aðeins tíu sekúndum. Erlent 18.5.2007 11:11
Mikill ís leynist á Mars Bandaríski vísindamaðurinn Joshua Bandfeld telur að stór hluti af yfirborði reikistjörnunnar Mars geti verið þakinn ís. Þetta segist hann hafa fundið út með nýjum greiningaraðferðum. Erlent 17.5.2007 22:12
Kyn fóstra greint eftir sex vikur Hægt er að greina kyn fósturs eftir aðeins sex vikna meðgöngu með nýlegri tækni sem gagnrýnendur segja hafa í för með sér alvarlegar siðferðislegar spurningar. Erlent 16.5.2007 20:29
Heini fær sjónina aftur og hittir mömmu sína Hinn átta mánaða gamli blindi nashyrningur Heini hefur nú fengið hluta sjónar sinnar aftur. Fyrir tveimur vikum fór hann í augnaðgerð sem gekk vel. Mikil eftirvænting ríkti þegar hann hitti hjörð sína aftur eftir aðgerðina. Ef hún myndi hafna honum væri lífið svo gott sem búið fyrir Heini. Erlent 16.5.2007 15:12
Listin og vísindin Norska listakonan Ellen Karin Mæhlum hefur á undanförnum árum unnið röð verka sem hún kallar „Geoþrykk“ og opnar sýningu á þeim á vegum Íslenskrar grafíkur í dag. Innlent 11.5.2007 18:58
NASA kynnir arftaka Hubble geimsjónaukans Geimferðastofnun Bandaríkjanna, NASA, hefur kynnt James Webb geimsjónaukann sem ætlað er að leysa Hubble af hólmi. Erlent 11.5.2007 12:35
Hvað er erfðamengun? Margar tegundir lífvera mynda staðbundna stofna. Stofnar þessir eru oft vel erfðafræðilega aðgreindir frá öðrum slíkum stofnum. Sá munur stafar af erfðafræðilegri einangrun og náttúruvali. Þannig verða stofnar aðlagaðir að því umhverfi sem þeir búa við og gerist sú aðlögun með náttúruvali. Innlent 10.5.2007 23:27
Munnmök gætu verið krabbameinsvaldandi Bandarískir vísindamenn staðhæfa að vírus sem smitast getur með munnmökum geti orsakað ákveðna tegund krabbameins í hálsi. Rannsakendur við John Hopkins Háskólann segja að HPV vírusinn sé jafnvel stærri áhættuþáttur en neysla tóbaks og áfengis. Erlent 10.5.2007 16:32
Enga víbratora hér Fjarstýrðir víbratorar hafa verið bannaðir á Kýpur. Breska fyrirtækið Anne Summers framleiðir þessi og önnur hjálpartæki ástarlífsins. Fyrirtækið hefur beðið kýpverska viðskiptavini sína afsökunar á því að þeir fá ekki að njóta þessarar tækninýjungar. Erlent 10.5.2007 14:38
Fullorðinsvefur fyrir blinda og sjónskerta Athafnamaður á Bretlandi hefur sett upp nýja vefsíðu með efni fyrir fullorðna á. Hún er hins vegar frábrugðin að því leyti að hún er ætluð þeim sem eru blindir eða sjá mjög illa. Erlent 9.5.2007 23:36
Sködduð mæna löguð með nanótækni Læknum hefur tekist að gera við skaddaða mænu í músum með hjálp nanótækni. Tæknin getur mögulega læknað Parkinsons og Alzheimer. Erlent 9.5.2007 13:55
Morgnarnir erfiðastir Erfiðast er að gera margt í einu á morgnana og kvöldin. Vísindamenn finna sér mismunandi viðfangsefni og sum þeirra koma spánskt fyrir sjónir. Vísindamaðurinn Daniel Bratzke starfar við háskólann í Tübingen í Þýskalandi. Hann hefur síðustu ár rannsakað viðbragðstíma fólks á mismunandi tímum sólarhringsins. Erlent 9.5.2007 14:39
Te dregur úr líkum á húðkrabbameini Rannsóknir sýna að grænt og svart te minnkar hugsanlega líkur á húðkrabbameini. Tveir bollar af grænu eða svörtu tei gætu dregið úr líkum á krabbameini. Þetta eru niðurstöður breskra og bandarískra rannsókna á greindum húðkrabbameinstilfellum árin 1993 til 1995 og 1997 til 2000. Erlent 9.5.2007 13:49
Grafhvelfing Heródesar fundin Eftir að hafa leitað í yfir 30 ár telur ísraelski fornleifafræðingurinn, Ehud Netzer, sig hafa fundið gröf Heródesar konungs. Heródes réð yfir Júdeu þegar Jesú Kristur fæddist. Erlent 8.5.2007 15:09
Eins og 150 sólir spryngju - jörðin væri horfin Stjörnufræðingar hafa náð myndum af stærstu og skærustu sprengistjörnu sem þeir hafa nokkrusinnum séð. Stjarnan sem sprakk er 150 sinnum stærri en sólin. Kraftinn er hreinlega ekki hægt að ímynda sér. Sem betur fer er stjarnan 240 milljón ljósár frá jörðinni, og hún því ekki í neinni hættu. Erlent 8.5.2007 13:28
Jarðarbúar hafa ráð á að stöðva hlýnun Jarðarbúar þurfa að draga verulega úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda til þess að hægja á hlýnun jarðarinnar. Í þriðja hluta skýrslu Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna eru helstu leiðirnar að þessu marki sagðar vera þær að gera orkunotkun í byggingum og farartækjum hagkvæmari, nota endurnýjanlega orkugjafa í staðinn fyrir jarðefnaeldsneyti og gera verulegar umbætur á sviði skógræktar og landbúnaðs. Erlent 4.5.2007 20:21
Litli bróðir er pínulítill Eineggja fyrirburatvíburar, þar sem annar er aðeins þriðjungur af stærð bróður síns, eiga báðir góðar lífslíkur. Erlent 3.5.2007 15:08
Nýjar myndir af Júpíter Geimferðastofnun Bandaríkjanna hefur gefið út nýjar myndir af plánetunni Júpíter. Þær eru teknar úr geimfarinu New Horizons. Á annarri myndinni má sjá hnúð á norðurpól stjörnunnar sem er af völdum gríðarlegs eldgoss. Erlent 2.5.2007 14:50
Grafreitur skylmingaþræla í Tyrklandi Vísindamenn telja sig hafa fundið grafreit skylmingaþræla í Efesus í Tyrklandi. Þar var stórborg í austrómverska keisaradæminu. Þegar beinin eru skoðuð og áverkar á þeim kemur í ljós nýr fróðleikur um líf, bardagaaðferðir og dauða skylmingaþræla. Erlent 2.5.2007 14:27
Skjalda -hættu að prumpa Metan er einna sterkust af þeim gastegundum sem teljast til gróðurhúsalofttegunda. Það er 23 sinnum öflugra við að binda hita í gufuhvolfinu en kol-díoxíð. Vísindamenn segja ef hægt yrði að hafa stjórn á útblæstri metans væri það risastórt skref í því að draga úr loftslagsbreyttingum. Erlent 30.4.2007 13:53
Hópkynlíf stundað á steinöld Hópkynlíf, kynlífsþrælar og kynlífsleikföng eru ekkert nýtt fyrirbæri. Timothy Taylor, fornleifafræðingur við Bradford háskólann í Bretlandi, segir að forfeður okkar á steinöld hafi stundað fjölbreytt kynlíf og ekkert dregið af sér. Fram til þessa hefur verið talið að steinaldrarmenn hafi eðlað sig eins og dýr, til þess eins að viðhalda stofninum. Erlent 30.4.2007 10:59
Vísindamenn heiðraðir Guðmundur Þorgeirsson prófessor var útnefndur heiðursvísindamaður Landspítala – háskólasjúkrahúss 2007 á föstudag. Útnefningin fór fram á vísindadagskrá við upphaf Vísinda á vordögum. Við sama tækifæri var Sveinn Hákon Harðarson valinn Ungur vísindamaður ársins 2007. Erlent 28.4.2007 18:10
Frá uppgröftrum Mikil umskipti í fornleifarannsóknum á síðustu árum eru að skila bráðabirgðaniðurstöðum og þeim verður að skila til almennings og fræðasamfélagsins, heima og heiman. Fornleifafræðingar halda ráðstefnu í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands í dag og kynna bráðabirgðaniðurstöður úr rannsóknum sem eru í gangi og hefst hún kl. 13 í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins. Erlent 27.4.2007 18:36
Mæting nemenda skráð með fingraförum Háskóli í Kína hefur tekið í notkun fingrafaraskanna til þess að fylgjast með mætingu nemenda sinna. Dagblaðið The China daily greindi frá þessu á þriðjudag. Ekki eru víst allir á eitt sáttir við nýja kerfið. Erlent 25.4.2007 15:46
Ný eyja fannst við strendur Grænlands Ný eyja er fundin við austurströnd Grænlands. Hún er margra kílómetra löng og er í laginu eins og hönd með þrjá fingur. Eyjan er um 640 kílómetra norðan við heimskautsbaug. Hún er komin í ljós vegna bráðnunar grænlensku íshellunnar. Erlent 25.4.2007 11:14