Þjóðadeild karla í fótbolta

Gylfi: Danir voru miklu betri
Gylfi Þór Sigurðsson segir Dani hafa verið mun betri í kvöld og átt sigurinn fyllilega skilið.

Mjög mikið afrek að vinna svo stóran sigur hér
„Ég er mjög ánægður. Það er mjög erfitt að koma hingað og spila gegn þessu íslenska liði,“ sagði Kasper Hjulmand, þjálfari Dana, eftir 3-0 sigurinn gegn Íslandi í Þjóðadeildinni í fótbolta.

Hamrén skildi ekkert í fyrsta marki Dana
Erik Hamren, landsliðsþjálfari, var vonsvikinn eftir 3-0 tapið gegn Dönum á Laugardalsvelli í kvöld. Hann var þó stoltur af frammistöðunni í fyrri hálfleik og segir að liðið hafi átt skilið meira en að vera 1-0 undir í hálfleik.

Hannes segir boltann ekki hafa verið inni
„Nei, ég upplifði ekki að hann væri inni. Ég var mjög ánægður með að ná honum. Hann er hálfur inni. Marklínutækni hefði aldrei dæmt þetta mark,“ sagði Hannes Þór Halldórsson, markvörður Íslands, eftir tapleikinn í kvöld gegn Dönum.

Ungverjar sóttu sögulegan sigur til Serbíu
Leikið var víðar en í Reykjavík í Þjóðadeild Evrópu í kvöld og meðal annars voru Ungverjar, verðandi andstæðingar Íslands í umspili fyrir EM, í eldlínunni.

Ísland búið að fá á sig fleiri mörk í Þjóðadeildinni en öll landslið Evrópu
Íslenska landsliðið er með markatöluna 2-22 í fyrstu sjö leikjum sínum í Þjóðadeild UEFA.

Einkunnir Íslands: Gulli Victor stóð upp úr á döpru kvöldi
Karlalandslið Íslands reið ekki feitum hesti frekar en fyrri daginn frá viðureign sinni við Dani í Þjóðadeildinni í kvöld. Strákarnir okkar töpuðu 3-0 en um sjöunda tap Íslands í röð er að ræða í Þjóðadeildinni.

Twitter eftir tapið gegn Dönum: „Hvaða grín er þetta?“
Twitter hefur alltaf verið lifandi vettvangur á meðan íslensku landsliðin spila og það var engin breyting á því í kvöld.

Stórmeistarajafntefli í París
Stórmeistarajafntefli varð niðurstaðan í París í kvöld.

Umfjöllun: Ísland - Danmörk 0-3 | Allt gengur á afturfótunum í Þjóðadeild og gegn Dönum
Ísland hefur tapað öllum sínum leikjum í Þjóðadeildinni frá upphafi og aldrei unnið Danmörku í knattspyrnu karla. Sú er staðan enn eftir 3-0 sigur Dana á Laugardalsvelli í kvöld.

Sjáðu draugamarkið hjá Dönum rétt fyrir hálfleik
Íslenska landsliðið fékk á sig mjög klaufalegt mark á móti Dönum en boltinn fór samt líklega aldrei inn fyrir marklínuna.

Sjáðu leiki dagsins í Þjóðadeildinni | Risaleikur í Frakklandi
Auk viðureignar Íslands og Danmerkur er fjöldi leikja í beinni útsendingu á íþróttarásum Stöðvar 2 og í opinni dagskrá á Vísi í dag.

Mason Mount skaut Englendingum á toppinn
Englendingar tróna á toppi riðilsins okkar í A-deild Þjóðadeildarinnar eftur endurkomusigur á Belgum á Wembley í dag.

Haland hlóð í þrennu gegn Rúmenum
Norðmenn, undir stjórn Lars Lagerback, hristu af sér vonbrigði fimmtudagsins og völtuðu yfir Rúmena í B-deild Þjóðadeildarinnar í dag.

Byrjunarlið Íslands gegn Danmörku: Tvær breytingar
Erik Hamren gerir tvær breytingar á byrjunarliði Íslands sem mætir því danska á Laugardalsvelli í kvöld.

Højbjerg er spenntur fyrir tíunda leiknum á rétt rúmum mánuði
Pierre-Emile Højbjerg, leikmaður Tottenham Hotspur, býst við erfiðum leik gegn Íslandi í kvöld. Hann segir það ekkert mál að finna hvatningu fyrir jafn spennandi og erfiðan leik og hann reiknar með í kvöld.

Danir aðeins tapað tveimur leikjum á tæpum fjórum árum
Danska landsliðið sem er mætt hingað til lands hefur átt einkar góðu gengi að fagna undanfarin misseri. Liðið hefur aðeins tapað einum leik af síðustu 18 sem það hefur spilað.

Dagskráin í dag: Danir mæta í Laugardalinn
Þar sem hlé hefur verið gert á almennu íþróttahaldi hér á landi vegna kórónuveirunnar eru engar íslenskar íþróttir á dagskrá þennan sunnudaginn. Það er þó alltaf nóg um að vera á Stöð 2 Sport og hliðarrásum.

Schmeichel vonar að danska liðið komi í veg fyrir að Ísland nýti styrkleika sína
Kasper Schmeichel er spenntur fyrir leik Íslands og Danmerkur annað kvöld. Hann býst við hörkuleik en segir að danska landsliðið sé tilbúið og hungrað í sigur.

Oyarzabal hetja Spánverja gegn Sviss
Spánverjar unnu heimasigur á Sviss í A-deild Þjóðadeildarinnar í Madrid í kvöld.

Þjálfari Dana: Danska liðið verður að spila af krafti og ástríðu til að vinna Ísland
Þjálfari danska landsliðsins, segir mikilvægt að leikmenn sínir spili af krafti og jafni ástríðuna sem íslenska liðið býr yfir. Það sé eina leiðin til að landa öllum þremur stigunum í leik liðanna annað kvöld.

Svekkjandi jafntefli Færeyinga í Þórshöfn
Nokkrum leikjum er nýlokið í D-deild Þjóðadeildarinnar þar sem Færeyingar voru meðal annars í eldlínunni en þeir fengu Letta í heimsókn í Þórshöfn.

Sjáðu leiki dagsins í Þjóðadeildinni
Það er allt galopið í fjórða riðli A-deildar í Þjóðadeildinni þar sem Spánn, Þýskaland, Úkraína og Sviss leika. Allir leikir dagsins í Þjóðadeildinni eru sýndir beint á Vísi eða á íþróttarásum Stöðvar 2.

Svona var blaðamannafundur KSÍ: Hamrén tók skýrt fram að Ísland ætli sér sigur gegn Dönum
Erik Hamrén sat fyrir svörum á blaðamannafundi fyrir leik Íslands og Danmerkur í Þjóðadeildinni. Hann tók það skýrt fram að Ísland ætli sér sigur gegn Dönum þrátt fyrir að aðalverkefnið hafi verið Rúmenía.

Dagskráin í dag: Þjóðadeildin og spænski körfuboltinn
Þar sem hlé hefur verið gert á íþróttahaldi hér á landi vegna kórónuveirunnar eru engar íslenskar íþróttir á dagskrá þennan laugardaginn. Það er þó alltaf nóg um að vera á Stöð 2 Sport og hliðarrásum.

Óttast að Kári sé brotinn
Miðvörðurinn Kári Árnason fer í myndatöku í dag þar sem kannað verður hvort hann sé fótbrotinn.

Aron fær að vera áfram
Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson verður áfram í íslenska hópnum fram yfir leikinn við Danmörku í Þjóðadeildinni á sunnudaginn.

„Við erum öll öskrandi fólk“
„Þetta er bara geggjað fyrir okkur og ótrúlega mikill heiður,“ segir Hilmar Jökull Stefánsson, einn af 60 Tólfumeðlimum sem munu hvetja Ísland til dáða gegn Rúmeníu á Laugardalsvelli í kvöld.

Ísland með þaulvanar skyttur ráðist úrslitin í vítakeppni
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta gæti þurft að fara í sína fyrstu vítaspyrnukeppni í kvöld, fari svo að jafnt verði gegn Rúmeníu að loknum venjulegum leiktíma og framlengingu.

Afturhvarf til EM í Frakklandi í kvöld?
Ekki er útilokað að Ísland stilli upp nákvæmlega sama byrjunarliði og í leikjum sínum á EM 2016, þegar liðið freistar þess að komast nær næsta Evrópumóti með sigri á Rúmeníu í kvöld.