Grænland
5 6 7 8 9 10 11 12 13 … 13 ›
Felldur í formannskjöri en hyggst sitja áfram sem forsætisráðherra Kim Kielsen, forsætisráðherra Grænlands, var felldur úr formannsstóli Siumut-flokksins á landsþingi flokksins í Nuuk í kvöld. Erik Jensen, þingmaður Siumut, sem leitt hefur andstöðu gegn Kielsen innan flokksins, hafði betur í formannskjöri, hlaut 39 atkvæði en Kielsen hlaut 32 atkvæði í síðari umferð. Erlent 30.11.2020 00:00
RAX Augnablik: „Þegar hann lítur upp þá er þar stærðar ísbjörn sem starir á hann“ Þegar hinn grænlenski Kali frá var lítill drengur gaf faðir hans honum lítinn ísbjarnarhún. Þeir voru alveg óaðskiljanlegir og bestu vinir. RAX segir söguna af Kali í nýjasta þættinum af RAX Augnablik. Lífið 29.11.2020 07:00
Færeyjar og Bandaríkin treysta vinasamstarfið Færeyjar og Bandaríkin hafa undirritað samstarfsyfirlýsingu sem mótar ramma að auknu samstarfi landanna. Grunnurinn var lagður á fundi Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, með forystumönnum Færeyja og Grænlands í Kaupmannahöfn síðastliðið sumar. Erlent 14.11.2020 14:26
RAX Augnablik: „Það var eitthvað mennskt við Qerndu“ „Ole kenndi mér það að þegar ég fer með veiðimönnum út á hafísinn, að passa mig hvað ég segi. Þegar þú færð svona frá reynsluboltum þá virðir maður það, segir ljósmyndarinn Ragnar Axelsson. Í nýjasta þættinum af RAX augnablik, segir hann söguna um einstakt samband grænlenska veiðimannsins Ole og hundsins Qerndu. Lífið 8.11.2020 07:00
Grænlendingar gramir vegna ákvörðunar IHF: „Finn til í handboltahjartanu“ Grænlendingar eru gríðarlega ósáttir við að Bandaríkjamenn hafi fengið farseðil á HM í Egyptalandi en ekki þeir. Handbolti 3.11.2020 11:30
Grænlendingar sömdu um Thule-herstöðina án undirskriftar Dana Samningar sem landsstjórn Grænlands gerði við Bandaríkjastjórn í vikunni um Thule-herstöðina, eitt hernaðarlega mikilvægasta mannvirki norðurslóða, voru án formlegrar aðildar ríkisstjórnar Danmerkur. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkt gerist. Erlent 1.11.2020 08:14
Tekjur af Thule-herstöðinni færast á ný til Grænlendinga Grænlendingar endurheimta margra milljarða verk- og þjónustusamninga við Thule-herstöðina á norðvestur Grænlandi, samkvæmt samningi sem Kim Kielsen, forsætisráðherra Grænlands, og Carla Sands, sendiherra Bandaríkjanna í Danmörku, undirrituðu í dag. Erlent 28.10.2020 23:19
RAX Augnablik: „Ef einhver vill fela sig á jörðinni þá er fínt að fela sig þarna“ Þegar RAX var að skrásetja lífið á Norðurslóðum, fékk hann að heyra margar sögur. Þar á meðal um þessi stórbrotnu Roscoe fjöll, sem RAX segir að sé mikil dulúð yfir. Lífið 18.10.2020 07:00
Kielsen rétt slapp undan vantrausti vegna grásleppu Vantrauststillögu gegn Kim Kielsen forsætisráðherra var vísað frá með aðeins eins atkvæðis mun á grænlenska þinginu í Nuuk á ellefta tímanum í gærkvöldi eftir sex stunda snarpar umræður. Kielsen heldur því áfram stöðu sinni sem leiðtogi Grænlands. Erlent 9.10.2020 06:45
Fyrsta smitið síðan í júlí Maður sem kom nýverið til Grænlands frá Danmörku hefur greinst með kórónuveiruna. Er um fyrsta smitið að ræða á Grænlandi síðan í júlí. Erlent 8.10.2020 13:41
Staðfestu tæplega þrjátíu ára gamalt kuldamet á Grænlandi Alþjóðaveðurfræðistofnunin hefur nú staðfest að -69,6°C sem mældust á sjálfvirkri veðurathugunarstöð á Grænlandi árið 1991 sé mesti kuldi sem mæst hefur á norðurhveli jarðar. Erlent 23.9.2020 12:03
Úlfaveiðar leyfðar á ný á Grænlandi Grænlensk stjórnvöld hafa ákveðið að heimila veiðar á úlfum á ný eftir 32 ára veiðibann. Veiðarnar verða þó háðar ströngum takmörkunum og aðeins leyfðar veiðimönnum sem búa á svæðum þar sem úlfarnir halda sig. Erlent 20.9.2020 08:27
110 ferkílómetra ísjaki brotnaði frá íshellu norðurskautsins Risastór ísjaki hefur brotnað frá stærstu íshellu norðurskautsins, sem kölluð er 79N eða Nioghalfjerdsfjorden, á norðausturströnd Grænlands. Erlent 14.9.2020 08:32
Skoða minni flugstöð og styttri flugbraut Flugvallafyrirtæki grænlensku landsstjórnarinnar, Kalaallit Airports, hefur skýrt fjárlaganefnd landsstjórnar Grænlands frá því að félagið sé að skoða þann möguleika að skera niður stærð fyrirhugaðrar flugstöðvar og að stytta flugbraut í Qaqortoq á Suður-Grænlandi. Erlent 13.9.2020 22:48
RAX Augnablik: „Ísbjörninn er svo klókur og snöggur að gera árás“ Örþættirnir RAX Augnablik eru sýndir á Vísi og í Stöð 2 Maraþon alla sunnudaga. Í nýjasta þættinum fer ljósmyndarinn Ragnar Axelsson yfir myndirnar sem hann tók í þegar hann fylgdi eftir veiðimönnum í leit að fjórum ísbjörnum úti á hafís þegar jökulstormur skall á. Lífið 13.9.2020 07:00
Grænlendingar kynna olíuleit norðan Íslands Grænlensk stjórnvöld hafa kynnt umhverfismat vegna fyrirhugaðrar olíuleitar við Austur-Grænland, beint norður af Íslandi. Matsskýrslan fjallar meðal annars um áhrif olíuleka á lífríki sjávar milli Íslands og Grænlands. Erlent 11.9.2020 22:35
Bakslag í uppbyggingu flugvallar á Grænlandi Flugvallafyrirtæki grænlensku landsstjórnarinnar, Kalaallit Airports, hefur frestað framkvæmdum við nýjan flugvöll við Qaqortoq, stærsta bæ Suður-Grænlands. Ástæðan er sögð sú að tilboð sem bárust reyndust öll verulega yfir fjárhagsramma verksins. Erlent 6.9.2020 09:38
Þrír látnir eftir bruna á Grænlandi Þrír eru látnir eftir eldur kom upp í íbúðahúsi í Paamiut á vesturströnd Grænlands í nótt. Erlent 1.9.2020 11:42
Vildi býtta á Grænlandi og Púertó Ríkó Donald Trump, forseti Bandaríkjanna sagðist tilbúinn til að gefa Dönum yfirvöld á Púertó Ríkó í stað þess að Bandaríkin fengju völd yfir Grænlandi. Erlent 20.8.2020 11:50
Viðurkenning á mikilvægi þessa mynda Ljósmyndarinn Ragnar Axelson hefur gengið til liðs við Vísi. Hann var í dag tilnefndur til Leica ljósmyndaverðlaunanna fyrir verkefnið Arctic Heroes – Where the world is melting Lífið 15.7.2020 21:45
Sameiginleg stefnumörkun í loftslagsmálum myndi styrkja stöðu Norðurlandanna Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, hefur skilað skýrslu um þróun norræns samstarfs á sviði utanríkis- og öryggismála. Meðal helstu tillagna í skýrslu Bjarna er aukin sameiginleg stefnumörkun Norðurlandanna á sviði loftslagsmála og segir að það myndi styrkja stöðu Norðurlandanna á alþjóðavettvangi ef slík stefna væri til staðar. Innlent 6.7.2020 13:35
Nýr markaður opnast fyrir íslenskar vörur með siglingum til Grænlands Straumhvörf í siglingum milli Íslands og Grænlands opna nýjan markað fyrir íslenskar framleiðsluvörur, þar á meðal fersk matvæli eins og grænmeti. Eimskipsmenn segja áhugann á Grænlandi hafa komið á óvart. Viðskipti innlent 23.6.2020 20:36
Íslendingar einu útlendingarnir sem mega koma óhindrað til Grænlands Grænlendingar hafa opnað land sitt gagnvart Íslendingum og eru Íslendingar núna eina þjóðin utan danska ríkjasambandsins sem leyfist að heimsækja Grænland, án strangra skilyrða. Og Íslendingar þurfa ekki að fara í tveggja vikna sóttkví, eins og Danir neyðast til. Innlent 18.6.2020 23:41
Siglingar Grænlendinga og Íslendinga tvinnast saman Tímamót urðu í samskiptum Grænlendinga og Íslendinga síðdegis þegar grænlenska skipið Tukuma Arctica sigldi inn til Reykjavíkur. Þetta er fyrsta ferðin í gagnkvæmu samstarfi sem felur í sér að Grænlendingar sigla með vörur fyrir Íslendinga og öfugt. Innlent 15.6.2020 23:09
Bandaríkin auka umsvif sín á Grænlandi Bandarísk stjórnvöld hafa opnað ræðismannsskrifstofu sína í Nuuk á Grænlandi á nýjan leik. Hún var áður starfrækt á árunum 1940 til 1953. Erlent 11.6.2020 08:01
Stærsta skip Íslendinga komið að Súesskurði á leið frá Kína Dettifoss, stærsta skip sem smíðað hefur verið fyrir Íslendinga, kom í dag að Súesskurðinum á nærri sjötíu daga heimsiglingu skipsins yfir hálfan hnöttinn frá Kína. Þetta nýjasta skip Eimskipafélagsins er væntanlegt til Íslands um miðjan júlí. Innlent 9.6.2020 21:28
Grænlandsjökull bráðnar tveimur vikum fyrr en vanalega Hitabylgja á norðurskautinu þjófstartaði bráðnunartímabili Grænlandsjökuls tveimur vikum fyrr en að meðaltali undanfarinna áratuga. Á sumum svæðum hefur verið allt að ellefu gráðum hlýrra en vanalega á þessum árstíma. Erlent 5.6.2020 11:44
Íslensk verkfræðistofa hannar jarðgöng fyrir Grænlendinga Grænlendingar undirbúa núna eins kílómetra löng jarðgöng, - í landi sem er án þjóðvegakerfis. Og það sem meira er: Það er íslensk verkfræðistofa sem ráðleggur þeim að gera þetta, hannar líka göngin og býr til útboðsgögnin. Innlent 4.6.2020 09:47
Kim Kielsen myndar nýja landsstjórn á Grænlandi Kim Kielsen, forsætisráðherra Grænlands, kynnti nýja landsstjórn á fréttamannafundi í Nuuk í gær. Nýr flokkur, Demokraterne, gekk eftir nokkurra vikna viðræður til liðs við minnihlutastjórn Siumut-flokksins og Nunatta Qitornai-flokksins, sem þar með varð meirihlutastjórn. Erlent 30.5.2020 08:10
Vara við meiriháttar flóðbylgju í Alaska vegna bráðnandi jökuls Hópur vísindamanna sem fylgist með landhræringum á norðurskautinu óttast að berghlaup úr fjallshlíð geti valdið gríðarlega stórri flóðbylgju á einu þéttbýlasta svæði Alaska á allra næstu áratugum. Aukin hætta er sögð á hamfaraskriðum og flóðbylgjum vegna hnattrænnar hlýnunar á norðurslóðum. Erlent 21.5.2020 09:01